Bændablaðið - 06.03.2014, Page 32

Bændablaðið - 06.03.2014, Page 32
32 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. mars 2014 Fróðleiksbásinn Vilmundur Hansen þjóðfræðingur og garðyrkjufræðingur Tilgangurinn með því að klippa limgerði er að halda runnum í ákveðinni hæð og breidd. Klippingin er einnig til þess ætluð að runnarnir þétti sig og haldi ákveðinni lögun. Til að fá þétt og fallegt limgerði verður að klippa það reglulega frá gróðursetningu. Limgerði sem trassað er að klippa verða gisin. Á fyrsta til þriðja ári eftir gróðursetningu á að byrja að móta limgerðið með því að klippa burt um tvo þriðju af ársvexti hraðvaxta tegunda en minna, um fjórðung, af tegundum sem vaxa hægar. Taka skal bæði utan og ofan af runnunum. Best er að reglulega tvisvar til fjórum sinnum á ári. Gæta verður þess að tré eins og birki, reynir, heggur, lerki og greni hafa tilhneigingu til að mynda leiðandi stofn og á ekki að klippa ofan af þeim fyrr en réttri hæð er náð. Skjólið er tíu sinnum hæðin Limgerði, sem eru breið að neðan og mjókka eftir því sem ofar dregur, eru það sem er kallað A-laga og besta formið. Lögunin tryggir að sól skín á allar greinarnar og dregur úr að snjór sligi þær. Mjó og nett limgerði, sem eru ekki nema 50 til 60 sentímetra að neðan og mjókka upp í topp, veita alveg jafnmikið skjól og breið og fyrirferðarmikil limgerði. Almennt veita limgerði skjól fyrir vindi sem nemur tíu sinnum hæð þeirra. Þægilegasti tíminn til að klippa limgerði er snemma á vorin og fram að laufgun, eða á meðan greinarnar eru lauflausar og sjáanlegar. Klipping á sumrin er meira snyrting en stórklipping. Hversu stíft limgerði eru klippt fer eftir vaxtarlagi plantnanna sem í því eru. Limgerði með birki, reyni, toppum, misplum, alparifsi eða víði getur verið fallegt og gott að klippa mikið og nánast eftir reglustiku. Limgerði úr fjallarifsi, kvistum og roðaberi er aftur á móti fallegt að láta vaxa frjálslegar og eilítið villt. Endurnýjun gamalla limgerða Gömul og gisin limgerði má endurnýja með því að klippa þau rækilega niður að vori og skilja eftir 15 til 20 sentímetra stubba. Víðir, fjallarifs, blátoppur og gljámispill þola svona klippingu vel en fara verður gætilega með aðrar tegundir til dæmis birki, sem ekki þolir niðurstýfingu. Gott er í öllum tilfellum að skilja eftir nokkrar greinar svo að plantan eigi auðveldara með að endurnýja sig. Hand- eða vélklippur Áður en hafist er handa við klippinguna er nauðsynlegt að yfirfara öll verkfæri vel, hvort sem um er að ræða vél- eða handverkfæri. Ef endurnýja þarf verkfærin margborgar sig að eyða aðeins meira í góðar klippur en að kaupa ódýr og léleg verkfæri. Klippur eiga alltaf að vera hreinar og beittar. Sé bitið í klippunum sljótt mer það greinarnar í sundur í stað þess að klippa þær og slíkt getur auðveldlega valdið vanþrifum og sveppasýkingu í þeim. Grænar kynjamyndir Formklipping trjáplantna á sér langa hefð erlendis þótt ekki sé vitað hver byrjaði fyrstur á þeirri iðju. Listin að forma plöntur í myndir er grein af sama meiði og þegar menn höggva skúlptúr í grjót. Ólíkt grjóti eru plöntur lifandi og síbreytilegar og myndin vex burt ef henni er ekki haldið við. Plöntur sem henta til formklippinga þurfa að vera fljótsprottnar, blaðsmáar, þéttar og þola klippingu. Erlendis eru ýmsar tegundir af sígrænum trjám og runnum sem henta vel til formunar en hér á landi er úrval þeirra takmarkað. Hugsanlega má notast við, kínalífvið, sýprus og ývið við góð skilyrði. Himalajaeinir er að öllum líkindum harðgerðasta sígræna plantan hér á landi sem hægt er að forma til á þennan hátt. Brekkuvíðir og aðrar laufsmáar plöntur, eins og birki, gljámispill, fjallarifs, blátoppur, rauðtoppur og kvistur, ættu einnig að henta vel. Auðveldasta leiðin til að ná formi er að kaupa ungar plöntur og setja yfir þær vírnet sem búið er að forma til í þá mynd sem ætlunin er að skapa. Netið er fest í jörðina utan um smáplönturnar og greinarnar klipptar þegar þær hafa vaxið um það bil tommu út fyrir möskva netsins. Myndin er fullgerð þegar greinar og lauf hafa hulið netið að fullu. Þegar réttu formi er náð þarf að sinna listaverkinu af alúð svo að það haldi þeirri lögun sem ætlast er til. Klippt í limgerði Formklipping. Gott er að snyrta runna á sumrin eftir að þeir hafa laufgast. Mars / Apríl - forræktun 7 til 9 vikur • Basilíka • Blaðlaukur / púrra • Garðablóðberg / timían • Majoram / meiran • Rauðkál • Rósakál • Stilksellerí Apríl / maí - forræktun 6 til 7 vikur • Blómkál • Fenill / sígóð • Hvítkál • Kjarrmynta / oregano • Kóríander • Sítrónumellissa / hjartafró • Spergilkál / brokkoli • Steinselja • Toppkál Maí - forræktun 4 til 5 vik- ur eða sá beint út í garð • Beðja • Blaðsalat • Dill / sólselja • Ertur • Gulrófa • Grænkál • Hnúðkál • Höfuðsalat • Íssalat • Klettasalat • Kínakál • Lambasalat • Næpa • Rauðrófa • Vorlaukur Sáð beint í garðinn • Gulrætur • Karsi • Kartöflur • Pastinakka / nípa • Radísur / hreðkur • Spínat Fjölærar matjurtir • Graslaukur • Piparminta • Rabarbari • Skessujurt Sáningartími krydd- og útimatjurta

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.