Bændablaðið - 06.03.2014, Side 34
34 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. mars 2014
Lesendabás
Kæri Árni, ég var í vafa um hvort
ég ætti að senda þér þessar línur
beint eða á síður blaðsins en þar
sem missagnir þínar voru svo
alvarlegar sem raun ber vitni og
snerta svo marga æruverðuga
einstaklinga sem ekki mega vamm
sitt vita verð ég að senda þetta til
ritstjórans.
Fyrst ber að nefna að þú segir
fyrrverandi stóðhest vorn, Hrylling,
hafa skort fríðleika og opinberar þar
þekkingarskort þinn á hestum, enda
fyrrverandi kúabóndi, en Hryllingur
dró verulega dám af föður sínum
Illingi frá Tóftum hvað fríðleika
varðar enda er Illingur sá stóðhestur
sem hefur frá upphafi hrossaræktunar
gefið hvað fríðust hross hér á landi.
Hætt er við að þú hafir með þessu
áunnið þér allt að því óvild sumra
félaga í Hryllingsfélaginu því
eigendur eru viðkvæmir ef sómi og
stolt félagsins sætir hallmælum og
má því búast við að væringar geti
hlotist af. Um aðra meinta kosti
Hryllings kýs ég að tjá mig ekki um.
En held að …
Bullið eftir dilk sér dragi
í dauðateygjum allur friður,
það eina sem var allt í lagi
ertu búinn að rakka niður.
Síðan tíundar þú að félagið sé
stofnað af mönnum í héraði sem
er alrangt því þetta var frá upphafi
landsbyggðarfélag sem hafði
þann tilgang að bæta mannlíf og
hrossarækt um allt land, nema á
höfuðborgarsvæðinu, því sumu er
ekki viðbjargandi, enda eru aðeins tvö
skilyrði til inngöngu og það er að eiga
ekki heima á höfuðborgarsvæðinu og
vera skemmtilegri en í meðallagi,
enda urðu nokkur dæmi um að fólk
flutti burt þaðan til að komast í
félagið, þótt það dygði ekki öllum
sem uppfylltu ekki skilyrðið um
skemmtilegheitin. Hins vegar vil
ég geta þess að þú bæði varst og ert
mikill happafengur fyrir félagið og
hefur þar iðulega náð meðallagi hvað
skemmtilegheit varðar á samkomum.
Sumir hafa undrast að hesturinn
hafi verið geltur, en þannig er með
alla góða kynbótagripi, eins og orðið
segir til um, að afkvæmin eiga að taka
föðurnum fram og er því ástæðulaust
að nota þá meira en eitt til tvö ár og
hefur það sannast hjá okkur að svo
er. Hitt sem Hryllingsfélagið hefur
gert er að það er stórbætt geðheilsa
hjá öllum félagsmönnum og þeir fáu
sem voru á geðlyfjum þegar þeir
gengu í félagið eru hættir því og má
segja að félagið sé því þjóðhags- og
heilsufarslega hagkvæmt.
Ég vil að lokum þakka þér vel
fyrir vísnaþáttinn þinn þótt hann
hefði iðulega getað verið betri
enda er ekki á færi allra að ná þeim
hæðum hvað vísnaþáttargerð varðar
sem Guðmundur frændi minn Bratti
hefur setið í um árabil í blaðinu
Feyki, enda Guðmundur ættgöfugur
og borinn og barnfæddur í fegurstu
sveit landsins.
Vil ég svo enn þakka þér fyrir alla
okkar vináttu og þú veist að þú getur
treyst mér til að standa að baki þér
ef móti blæs héðanaf sem hingaðtil.
Með Hryllingskveðju
Reynir Hjartarson, Æjatolla
(alvaldur) félagsins
Opið bréf til Árna Jónssonar fyrrverandi sparisjóðsstjóra:
„Vegna missagna í viðtali í Bændablaðinu
fimmtudaginn 20. febrúar sl."
Hryllingur - ekki er skortur á fríðleika. Á myndinni hægra megin sést að búið er að gera afsteypu af hrossinu.
Hryllingur við Sleipnisbikarinn.
REYKJAVÍK
Krókháls 5F
110 Reykjavík
Sími: 414-0000
AKUREYRI
Baldursnes 2
603 Akureyri
Sími: 464-8600
www.VBL.is
REYKJAVÍK Sími: 414-0000 /// AKUREYRI Sími: 464-8600 /// www.VBL.is
SNAPP TAGGS
LAMBAMERKIN
Verð kr. 29 án vsk.
Áprentun innifalin
VERÐLÆKKUN
NÚNA ER GÓÐUR TÍMI TIL AÐ TRYGGJA SÉR
LAMBAMERKIN Á LÆGRA VERÐI
Söng- og gamanleikurinn
Stöngin inn
frumsýndur í Lyngbrekku föstudaginn 14. mars kl .20:30
2. sýning sunnudaginn 16. mars kl. 20:30
3. sýning miðvikudaginn 19. mars kl. 20:30
4. sýning fi mmtudaginn 20. mars kl. 20:30
5. sýning föstudaginn 21. mars kl. 20:30
6. sýning sunnudaginn 23. mars kl. 20:30
Miðapantanir í síma 846 2293
Veitingasala á sýningum - enginn posi á staðnum
Ársfundur 2014
Ársfundur Lífeyrissjóðs bænda 2014 verður haldinn
föstudaginn 21. mars 2014 í Kötlu, á 2. hæð í Bændahöllinni
við Hagatorg í Reykjavík, og hefst kl. 16:00.
Dagskrá ársfundarins verður eftirfarandi:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Kynning ársreiknings 2013.
3. Gerð grein fyrir tryggingafræðilegri úttekt.
4. Gerð grein fyrir fjárfestingarstefnu sjóðsins.
5. Breytingar samþykkta sjóðsins.
6. Önnur mál.
Tillögur til ályktunar, sem taka á fyrir á ársfundi, þurfa að
berast stjórn sjóðsins eigi síðar en viku fyrir ársfund.
Allir sjóðfélagar, jafnt greiðendur sem lífeyrisþegar, eiga
rétt til fundarsetu.
Sjóðfélagar eru hvattir til að nýta sér rétt sinn.
Lífeyrissjóður bænda
Bændahöllinni við Hagatorg - 107 Reykjavík
Sími 563 0300 - lsb@lsb.is - www.lsb.is