Bændablaðið - 06.03.2014, Blaðsíða 48

Bændablaðið - 06.03.2014, Blaðsíða 48
48 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. febrúar 2014 5. tölublað 2014 Fimmtudagur 6. mars Næsta tölublað Bændablaðsins kemur út 20. mars „Þetta er ljómandi góður pískari og mér fannst á sínum tíma engin ástæða til að henda honum,“ segir Benjamín Baldursson bóndi á Ytri-Tjörnum í Eyjafjarðarsveit. Hann hefur dregið fram pískara sem hann keypti um miðjan áttunda áratug síðustu aldar og notaði óspart um nokkurra ára skeið, en var síðan lagður á hilluna þar sem hann lá í 33 ár þar til hann var dregin fram í dagsljósið á ný. Pískarann notar Benjamín til að hræra út mjólkurduftsblöndu sem hann gefur kálfum sínum. Benjamín og eiginkona hans Hulda M. Jónsdóttur hófu búskap á Ytri- Tjörnum árið 1974, fyrst í félagi við foreldra hans, Baldur H. Kristjánsson og Þuríði Kristjánsdóttur. „Á þeim tíma var mikill uppgangur í íslenskum landbúnaði og við kappkostuðum að framleiða sem mesta mjólk. Margir byggðu á árunum upp úr 1970 ný fjós og þá var stefnan að framleiða sem sem mest til að borga nýbyggingar upp á sem skemmstum tíma,“ rifjar Benjamín upp. Flestar voru kýrnar 54 talsins árið 1978 og framleiðslan nam um 212 þúsund lítrum á ári. „Til að framleiða sem mesta mjólk ákváðum við að gefa smákálfunum mjólkurduft sem hrært var út í volgu vatni. Ég lagði því leið mína í bæinn og keypti fljótlega á mínum ferli sem kúabóndi þennan svonefnda pískara til að hræra út blönduna. Hann var í notkun hér á bænum til ársins 1980,“ segir Benjamín. Á þeim tíma fór að syrta í álinn, tímabil offramleiðslu var runnið upp og kvóti var settur á mjólkurframleiðslu. Nýtni í blóð borinn Pískarinn var lagður á hilluna, komið fyrir í blásaraskúr sem þá var, en hýsir nú mjólkurdælu, rafmagnstöflu og fleira. „Ef til vill var það nýtni sem manni er í blóð borinn,“ svarar Benjamín spurður um af hverju pískarinn hafi hreinlega ekki lent í ruslinu. „Hann var í ágætu ásigkomulagi, vel brúklegur þó auðvitað hafi hann látið á sjá.“ Næstu 33 árin lá pískarinn óhreyfður þar sem honum hafði verið komið fyrir, engin not voru fyrir hann enda var kálfum gefin spenvolg mjólk í stað mjólkurduftshrærunnar. „Mjólkurkvóti okkar fór niður í 163 þúsund lítra þegar minnst var og skerðingar höfðu dunið yfir, sáralítið eða ekkert fékkst fyrir umframmjólk þannig að ekki borgaði sig lengur að kaupa duftin, næg mjólk var til fyrir kálfana,“ segir Benjamín. Fljótvirkasta aðferðin að skjóta inn erlendu erfðaefni Á liðnu hausti voru bændur hvattir til að auka mjólkurframleiðslu og varð Benjamín eins og margir fleiri við þeirri hvatningu. Þá var aftur tekið til við að hræra í fjósinu á Ytri-Tjörnum og pískurinn dreginn fram á ný. Alls eru 53 kýr í fjósi og framleiðslan nemur um 280 til 300 þúsund lítrum af mjólk á ári. „Skilvirkasta aðferðin nú til að auka framleiðsluna er sú að skjóta inn í íslenska kúastofninn erlendu erfðaefni. Fullur vilji er til þess meðal bænda að anna aukinni eftirspurn eftir mjólkurvörum, það gerum við best að mínu mati með því að fá inn í íslenska kúastofninni erfðaefni frá Noregi. Ávinningur af því yrði tvöfaldur, bæði væri þá hægt að auka mjólkurframleiðsluna en einnig gefa þær af sér meira kjöt en þær íslensku. Eins og staðan er núna er innflutningur á nautakjöti töluverður. Með þessu fyrirkomulagi myndum við slá tvær flugur í einu höggi.“ /MÞÞ Benjamín Baldursson bóndi á Ytri-Tjörnum að auka mjólkurframleiðsluna: Pískari frá miðjum sjöunda áratugnum dreginn fram á ný -Dugar vel við að hræra út mjólkurduftsblöndum handa kálfunum Benjamín Baldursson bóndi á Ytri-Tjörnum dró fram písk sem ekki hafði verið notaður í 33 ár og notar á ný þegar aftur er tekið til við að hræra Mynd / MÞÞ

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.