Morgunblaðið - 04.07.2015, Page 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 2015
Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður
Vinstri grænna, er ræðukóngur 144.
löggjafarþings Alþingis, sem lauk í
gær. Þetta er annað árið í röð sem
Steingrímur hlýtur þennan titil.
Hann talaði í 2.419 mínútur samtals
úr ræðustóli þingsins, eða í rúmar 40
klukkustundir. Flutti hann alls 293
þingræður á þinginu sem stóð yfir frá
9. september á síðasta ári skv. ræðu-
lista þingsins og gerði 496 athuga-
semdir.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir,
flokkssystir Steingríms, vermir ann-
að sætið yfir samanlagða ræðulengd
á nýafstöðnu þingi. Hún talaði sam-
tals í 1.964 mínútur, eða um 33
klukkustundir, í ræðustól Alþingis,
flutti 254 ræður og kom 381 sinni í
ræðupúltið til að gera athugasemdir.
Össur Skarphéðinsson, þingmaður
Samfylkingarinnar, er svo í þriðja
sæti á lista þingmanna sem töluðu
lengst á nýafstöðnu þingi. Hann tal-
aði samtals í 1.824 mínútur, eða um
30 klukkustundir. Össur flutti 171
ræðu og gerði 543 athugasemdir. Er
Össur í efsta sæti ef litið er á lengd
athugasemda úr ræðustóli, en at-
hugasemdir hans stóðu samtals yfir í
962 mínútur.
Bjarni Benediktsson, fjármála- og
efnahagsráðherra og formaður Sjálf-
stæðisflokksins, er eini stjórnarliðinn
sem kemst á lista yfir þá tíu þing-
menn sem töluðu mest á síðasta
þingi. Bjarni er í 9. sæti. Hann talaði í
1.167 mínútur, eða um 20 klukku-
stundir, flutti 214 ræður og gerði 209
athugasemdir.
Enginn þingmaður Framsóknar-
flokksins og Bjartrar framtíðar
kemst á lista yfir þá tíu þingmenn
sem töluðu lengst á þinginu. Fjórir
þingmenn Samfylkingarinnar og fjór-
ir þingmenn Vinstri grænna eru á
listanum og Jón Þór Ólafsson, þing-
maður Pírata, vermir tíunda sætið.
Elín Hirst, Sjálfstæðisflokki, er sá
þingmaður sem talaði styst, eða í
samtals 111 mínútur. Hún flutti 29
ræður og gerði sjö athugasemdir.
Haraldur Einarsson, þingmaður
Framsóknarflokks, talaði í 122 mín-
útur á þinginu, flutti nokkru færri
ræður en Elín, eða 21, og gerði 22 at-
hugasemdir. Þórunn Egilsdóttir,
flokkssystir hans og þingflokks-
formaður Framsóknar, talaði í 123
mínútur, flutti 36 ræður og gerði 26
athugasemdir.
Alls fluttu alþingismenn 7.267
þingræður á síðasta löggjafarþingi,
sem stóðu yfir í rúmar 452 klukku-
stundir.
Athugasemdum úr ræðustól fjölg-
aði mikið miðað við fyrri þing, eða um
49,4% frá þinginu á undan, og voru
alls gerðar 9.272 athugasemdir á
þingfundum á nýafstöðnu þingi, sem
stóðu yfir í rúmlega 233 klukkustund-
ir samtals. omfr@mbl.is
Steingrímur
ræðukóngur
9.272 athugasemdir á Alþingi
Fjölgar um 49,4% frá síðasta þingi
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
„Þingstörfin í vetur og vor, og nú
fram á sumar, hafa fjarri því gengið
fyrir sig eins og ég hefði kosið.
Starfsáætlun fór úr skorðum og þing-
haldið hefur dregist til mikilla muna.
Ég get ekki hér og nú leynt von-
brigðum mínum með það, persónu-
legum vonbrigðum, enda hef ég lagt
áherslu á að starfsáætlun standist og
það ekki að ástæðulausu,“ sagði Ein-
ar K. Guðfinnson, forseti Alþingis, er
hann ávarpaði þingheim við lok þing-
funda 144. löggjafarþings í gær.
Einar sagði ánægjulegt að víðtæk
og góð sátt skapaðist um afgreiðslu
haftafrumvarpanna, sem voru sein-
ustu frumvörpin sem lögfest voru á
þinginu og sagði hann að telja mætti
að þessi frumvörp væru mikilvæg-
asta og merkasta löggjöf þessa þings
og þótt lengra væri leitað.
Einar fjallaði ítarlega um það sem
miður hefur farið í þingstörfunum og
hvatti þingmenn til að vinna rösklega
og markvisst að breytingum til að
bæta vinnubrögðin og stjórnmála-
menninguna á Alþingi.
„Uppnefni, svigurmæli og
meiðandi ummæli“
„Það er ekkert að því að menn taki
stórt upp í sig í ræðustólnum, tali svo
undan svíði, orðin úr ræðustólnum
komi blóðinu á hreyfingu, menn fari
með himinskautum og kalli fram í af
hnyttni þegar það á við. En slíkt á
ekkert skylt við fúkyrðaflaum, upp-
nefni, svigurmæli og meiðandi um-
mæli,“ sagði hann. Þingið, sem lauk
störfum í gær, er eitt hið lengsta í
þingsögunni. Það hófst 9. september
sl.. en þingfundir voru alls 147 og
þingfundadagarnir 126. Þá héldu
fastanefndir þingsins um 600 fundi
og stóðu þingfundir, umræður og at-
kvæðagreiðslur samtals í um 830
klukkutíma.
Fram kom í máli forseta Alþingis
að samþykkt lagafrumvörp og álykt-
anir eru að tölu áþekk og verið hefur
undanfarin ár. Samþykkt voru alls
105 lagafrumvörp og 22 ályktanir.
Morgunblaðið/Eggert
Þingslit Þingmenn kveðjast léttir í lundu og halda út í sumarið eftir lok seinasta þingfundarins af alls 147 fundum sem fram hafa farið frá í september.
Vinnubrögðin harðlega gagnrýnd
144 löggjafarþing Alþingis
9. september 2014 – 3. júlí 2015
Þingfundir: 147
Þingfundadagar: 126
Fundir fastanefnda: 600
Umræður og atkvæðagr.: 830 klst
-7267 þingræður: 452 klst
-9272 athugasemdir: 233 klst
Lagafrumvörp: 105
Ályktanir: 22
Steingrímur J. Sigfússon 293
Bjarkey Olsen Gunnarsd. 254
Helgi Hjörvar 231
Helgi Hrafn Gunnarsson 229
Lilja Rafney Magnúsdóttir 226
Árni Páll Árnason 223
Bjarni Benediktsson 214
Katrín Jakobsdóttir 206
Sigríður Ingibjörg Ingad. 196
Katrín Júlíusdóttir 195
Össur Skarphéðinsson 962
Steingrímur J. Sigfússon 829
Bjarkey Olsen Gunnarsd. 619
Lilja Rafney Magnúsdóttir 595
Helgi Hrafn Gunnarsson 487
Sigríður Ingibjörg Ingad. 462
Svandís Svavarsdóttir 457
Helgi Hjörvar 448
Jón Þór Ólafsson 445
Katrín Júlíusdóttir 425
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Fjöldi ræða:
Athugasemdir í
mínútum:
TIL SÖLU!
Verslunin hefur verið rekin um 5 ára skeið og er
þekkt fyrir vandaðan kvenfatnað. Verslunin er í 100m2
leiguhúsnæði og er með trygg og góð viðskipta-
sambönd.
Tuzzi hefur skapað sér ákveðna sérstöðu og á
tryggan hóp viðskiptavina.
Áhugasamir hafi samband við tuzzi@tuzzi.is.
Steingrímur J. Sigfússon 2419 mín (40 klst)
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir 1964 mín (33 klst)
Össur Skarphéðinsson 1824 mín (30 klst)
Lilja Rafney Magnúsdóttir 1654 mín (28 klst)
Árni Páll Árnason 1357 mín (23 klst)
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir 1263 mín (21 klst)
Katrín Jakobsdóttir 1242 mín (21 klst)
Helgi Hjörvar 1170 mín (20 klst)
Bjarni Benediktsson 1167 mín (20 klst)
Jón Þór Ólafsson 1163 mín (19 klst)
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
1
2
3
4
5
Þingmenn sem töluðu lengst á Alþingi
Þingmenn sem skemmst töluðu
Elín Hirst 111 mín
Haraldur Einarsson 122 mín
Þórunn Egilsdóttir 123 mín
Brynjar Níelsson 127 mín
Valgerður Gunnarsdóttir 131 mín