Morgunblaðið - 04.07.2015, Síða 19
VIÐSKIPTI 19Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 2015
Frábærlega staðsett og vel viðhaldið 231,8 fm einbýlishús á tveimur hæðum við Laugarásveg í
Reykjavík. Húsið er staðsett neðan við götu og rétt við útivistarparadísina í Laugardalnum. Stutt
í skóla, heilsurækt og fleira. Gert er ráð fyrir aukaíbúð á fyrstu hæð með sérinngangi. Húsið
er teiknað af Skarphéðni Jóhannssyni, einum fremsta arkitekt Íslendinga á síðustu öld. Að sögn
eiganda var allt múrverk yfirfarið og lagað fyrir um tveimur árum og húsið málað í kjölfarið.
Þak hefur verið vel við haldið og er í góðu standi. Allar ofnalagnir hafa verið endurnýjaðar. Að
sögn eiganda er einnig mögulegt að byggja við húsið. Eignin er laus til afhendingar. V. 89 m. 8374
Laugarásvegur 60 104 Rvk
Nánari upplýsingar á eignamiðlun.is og hjá sölumönnum.
VIÐTAL
Margrét Kr. Sigurðardóttir
margret@mbl.is
„Ég lít á fjárfestinguna sem mikil-
vægt skref í samfélagslegri ábyrgð
okkar til að draga úr mengun í heim-
inum,“ segir Li Shufu, stjórnarfor-
maður og stofnandi kínverska stór-
fyrirtækisins Zhejiang Geely
Holding Group (Geely Group), í við-
tali við Morgunblaðið. Í gær voru
kynnt áform fyrirtækisins um 45,5
milljóna dollara fjárfestingu í Car-
bon Recycling International (CRI)
næstu þrjú árin, fjárhæð sem sam-
svarar rúmum sex milljörðum króna.
CRI var stofnað árið 2006 með það
að markmiði að framleiða umhverfis-
vænt eldsneyti. Fyrirtækið rekur
verksmiðju í Svartsengi á Reykja-
nesi sem er sú fyrsta sinnar tegund-
ar í heiminum þar sem koltvísýrings-
útblæstri frá jarðvarmavirkjun er
breytt í endurnýjanlegt metanól sem
blanda má við bensín til notkunar
sem eldsneyti í bifreiðum. Hjá fyr-
irtækinu starfar á fjórða tug starfs-
manna á Íslandi og erlendis.
Geely Group er einn stærsti bíla-
framleiðandinn í Kína. Fyrirtækið
selur bíla í Kína og víða um heim
undir vörumerkinu Geely Auto, auk
þess að vera eigandi bílaframleið-
andans Volvo og London Taxi Comp-
any í Bretlandi sem á og rekur
svörtu leigubílana sem notaðir eru í
borginni.
Mögulegar tilraunir á Íslandi
Li segir að CRI hafi náð miklum
árangri í þeirri tækni sem þróuð hef-
ur verið og hann vilji styðja fyrir-
tækið í að koma lausninni víðar.
Hann segir að heimurinn þurfi aðra
valkosti en þá hefðbundnu til að
knýja ökutæki og telur að metanól sé
góður orkugjafi fyrir bifreiðar, þar
sem það sé einstaklega hreint auk
þess sem auðvelt sé að flytja það og
geyma. „Við sjáum þetta sem góða
framtíðarlausn til að nota í miklu
magni.“ Samstarf verður milli fyr-
irtækjanna um áframhaldandi þróun
á metanól-framleiðslunni auk þess
sem þróa á bifreiðar sem knúnar
verða með metanóli.
Þegar Li er spurður hvort ætlunin
sé að setja upp í Kína sambærilegar
verksmiðjur og eru í Svartsengi seg-
ir hann að fyrirtæki hans sé í bíla-
framleiðslu og ætli sér sjálft ekki að
fara í metanólframleiðslu. Hins veg-
ar segir hann mikil tækifæri vera
fyrir CRI að vaxa og koma sér fyrir á
fleiri stöðum í heiminum. Lausnir
þess eigi erindi víða, í Kína og ann-
ars staðar. „Heimurinn stendur
frammi fyrir þeirri áskorun að draga
verður úr mengun og útblæstri öku-
tækja. Metanól er einn af þeim orku-
gjöfum sem gætu dregið verulega úr
því.“
En er ætlunin að breyta bílunum
sem fyrirtækið framleiðir í Kína, bíl-
unum sem eru framleiddir undir
vörumerki Volvo eða svörtu leigubíl-
unum í London? „Það gerist ekki á
einni nóttu. Í framleiðsluferlinu er
að mörgu að huga en við höfum
áform um að halda áfram að gera
prófanir. Metanól er góður valkostur
en við erum einnig að prófa fleiri
orkugjafa.“ Fyrirtækið hóf prófanir
með metanól fyrir 10 árum og hefur
einnig framleitt rafknúna bíla. Þegar
Li er spurður hvort til greina komi
að gera tilraunir með bíla hér á landi
segir hann að það gæti vel komið til
greina. „Ég er auðvitað áhugasamur
um slíkt en það þyrfti að vera í sam-
starfi við íslensk yfirvöld. Ef slíkt
væri gert gæti Ísland orðið enn
grænna og sjálfbærni orðið meiri.
Ég hlakka til að eiga frekara sam-
starf við Íslendinga.“
Mikilvæg fjárfesting
Hvaða framtíðarsýn hefur Li
Shufu fyrir bílaiðnaðinn? „Við stönd-
um frammi fyrir því að annars vegar
erum við með takmörkun á orkugjöf-
um og hins vegar verðum við að hafa
hreinna loft. Loftlagsbreytingarnar
eru mikil áskorun og því þarf að
huga vel að því að í framtíðinni verði
ökutæki knúin með endurnýjanlegri
orku. Þess vegna er fjárfestingin í
CRI mikilvæg fyrir okkur, þar sem
fyrirtækið er komið með lausn sem
við viljum halda áfram að prófa.“
Hann nefnir einnig að jafnvægi þurfi
að vera milli eftirspurnar neytenda
og þeirrar tækni sem boðin er á bíla-
markaðnum.
Í ræðu Li við undirskrift samning-
anna milli fyrirtækjanna í Hörpu í
gær kom fram að hann liti á fjárfest-
inguna bæði sem úthugsaða við-
skiptalega ákvörðun og sem tákn um
skuldbindingu fyrirtækisins við
sjálfbærni. Hann nefndi að kínversk
yfirvöld stefndu að því að 20% af allri
bílasölu framtíðarinnar yrðu bifreið-
ar knúnar með nýjum orkugjöfum.
Metanól er góð framtíðarlausn
Morgunblaðið/Kristinn
Bílar Li Shufu segir að nota þurfi nýja orkugjafa fyrir ökutæki þar sem draga verði úr útblæstri og mengun.
Morgunblaðið/Kristinn
Undirskrift Samningur undirritaður milli Geely Group og CRI í Hörpu.
Væri hægt að nota í miklu magni, segir stjórnarformaður og stofnandi eins stærsta bílaframleiðanda
Kína um fjárfestingu í CRI sem nemur sex milljörðum króna Tækni CRI gæti farið víða um heim
Li Shufu er fæddur árið 1963 og
býr í Hangzhou í Kína þar sem höf-
uðstöðvar fyrirtækisins eru. Hann
er stjórnarformaður og stofnandi
Zhejiang Geely Holding Group.
Hann er á lista Forbes yfir ríkustu
einstaklinga heimsins en eignir
hans eru metnar á 2,9 milljarða
bandaríkjadollara. Hann er númer
53 á lista yfir kínverska milljarða-
mæringa.
Li er með MSc-gráðu frá
Yanshan University og er talinn
einn fárra sem hafa náð árangri í
viðskiptum utan Kína. Fyrirtækið
framleiðir margar tegundir bíla
sem seldir eru undir vörumerkinu
Geely víða um heim þótt stærsta
markaðssvæðið sé Kína. Að sögn
Forbes seldi Geely 550 þúsund bif-
reiðar árið 2013.
Fyrirtæki hans keypti Volvo bíla-
framleiðandann sænska árið 2010
fyrir 1,8 milljarða bandaríkjadoll-
ara. Á síðasta ári eignaðist fyr-
irtækið United Kingdom‘s London
Taxi Company sem rekur svörtu
leigubílana í London. Li er sjálfs-
prottinn milljarðamæringur en í
Forbes segir að hann hafi búið til
fyrsta bílinn úr sandi þegar hann
var 10 ára.
Keypti Volvo og
svörtu leigubílana
Li Shufu er á auðmannalista Forbes
Morgunblaðið/Kristinn
Skálað KC Tran forstjóri CRI, Li Shufu og Peter Zhang úr stjórn Volvo.