Morgunblaðið - 04.07.2015, Page 26
26 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 2015
Um nokkurt skeið
hefur þeirri bab-
ýlonsku (bábilju) verið
haldið að fólki að veð-
urfar hafi farið hlýn-
andi vegna brennslu
kolefna. Við bruna á
lífrænum jarðefnum
losnar frumefnið kol-
efni úr föstu formi og
umbreytist í lífsanda,
öðru nafni koldíoxíð
(CO2). Þar með er við-
haldið þeirri hringrás kolefnis sem
er undirstaða lífs á jörðinni. Því
meira sem er af lífsanda í andrúm-
inu, þeim mun gróðursælla verður
umhverfi okkar og fæða fyrir fleira
fólk verður aðgengileg.
Naglasúputilgátan var í upphafi
kennd við gróðurhús en samlíkingin
er svo fráleit að nú reynir enginn að
halda því fram að opið andrými jarð-
ar eigi eitthvað sammerkt með lok-
uðu rými gróðurhúss. Hins vegar er
staðreynd að lífsandinn hlýnar fyrir
áhrif hitageislunar. Við hlýnunina
þenst hann út og verður eðlisléttari.
Hlutfallslega eðlislétt gasefni stíga
til himins og kólna þar hraðar en
niðri við jörðu. (Ég geri ráð fyrir að
lesendur þekki söguna um nagla-
súpuna.)
Heimskuleg afstaða
kaþólsku kirkjunnar
Forystu um blekkinguna um
„hlýnun veðurfars af völdum
manna“ hefur haft fólk sem að eðlis-
fari er öfgamenn. Þetta er fólk sem
við á Íslandi sáum taka undir Ice-
save-kröfur nýlenduveldanna og
sem horfir til Evrópusambandsins
með sömu löngun og gyðingar
horfðu til Gósenlandsins í Egypta-
landi. Það sem er nýtt og ógnvekj-
andi við umræðuna er hin fráleita
aðkoma kaþólsku kirkjunnar, en
páfinn hefur sent
heimsbyggðinni um-
burðarbréf þar sem
hann tekur afstöðu til
vísindalegs deiluefnis.
Upp í hugann kemur
glæpsamleg fram-
ganga páfastóls gegn
Jordanus Brunus og
Galileo Galilei. Menn
hafa ekki heldur
gleymt sölu páfans á
aflátsbréfunum al-
ræmdu.
Jordanus Brunus
(1548-1600) var ítalskur stjarnfræð-
ingur, heimspekingur og stærðfræð-
ingur. Hann er í hávegum hafður
fyrir tilgátur um veröldina, sem
hann taldi vera endalausa og án til-
tekinnar miðju. Jordanus taldi
stjörnurnar vera fjarlægar sólir,
sem hefðu eigin flandur-stjörnur
(planetes asteres) og á þeim væru
hugsanlega lífverur. Rannsókn-
arréttur kaþólsku kirkjunnar
dæmdi Jordanus til dauða og var
hann brenndur á báli.
Galileo Galilei (1564-1642) var
ítalskur stjörnufræðingur, verk-
fræðingur og heimspekingur. Hann
er talinn einn mesti vísindamaður
allra tíma og forgöngumaður vís-
indabyltingarinnar á endurreisnar-
tímanum. Í andstöðu við kirkjuna
hélt Galileo einarðlega fram þeirri
tilgátu að sólin væri miðja heimsins
og flandur-stjörnurnar snerust um
hana. Fyrir afstöðu sína hlaut hann
ofsóknir og fangelsun.
Á okkar dögum gengur kaþólska
kirkjan fram fyrir skjöldu og ræðst
með glórulausu ofstæki gegn orku-
framleiðslu með brennslu kolefna úr
iðrum jarðar. Staðbundin vandamál
vegna mengunar hafa víðast verið
leyst og ekki verður andmælt að
ódýr orkuframleiðsla er undirstaða
þeirrar velmegunar sem stækkandi
mannfjöldi nýtur. Jafnvel páfanum
ætti að reynast auðvelt að skilja,
hvers vegna aukning lífsanda getur
ekki valdið hlýnandi veðurfari og
þar að auki hefur hlýnunin sem
mældist á síðustu öld ekki haldið
áfram.
Vísindalegar staðreyndir
afsanna naglasúputilgátuna
Naglasúputilgátan segir okkur að
hlýnun einhverra hluta í andrúmi
jarðar er sambærileg við hlýnun
nagla í súpu. Sú varmaorka sem í
súpunni fer til að hita naglann getur
ekki komið annars staðar frá en úr
súpunni sjálfri. Þetta hefur að ein-
hverju litlu leyti þau áhrif að súpan
sjálf kólnar, en alls ekki þau áhrif að
allt sem er í pottinum hitni. Hlið-
stæð atburðarás verður í andrúminu
þegar lífsandinn (CO2) hitnar.
Lífsandinn tekur til sín varma og
auðvitað þeim mun meiri sem and-
rúmið inniheldur meira af koldíoxíði.
Þessi varmi kemur úr umhverfi lífs-
andans, sem að stærstum hluta er
vatnsgufa. Heildarvarmaorka í and-
rúminu eykst ekki við þennan orku-
flutning. Lífsandi sem hefur hitnað
rís til himins eins og stóra systir
vatnsgufan, þar sem varmaorkan
streymir út í geiminn. Hvort varma-
jafnvægi ríkir á jörðinni ræðst af
hlutfalli innstreymis frá sólu og út-
streymis frá gufuhvolfinu.
Auk þess sem tilgátan um „hlýn-
un veðurfars af völdum manna“
stenst ekki eðlisfræðilega sýna mæl-
ingar að ekkert samband er annars
vegar á milli magns lífsanda í and-
rúminu og hins vegar meðal-
hitastigs. Koldíoxíð í andrúminu
eykst árlega nær samfellt um 0,54%
en meðalhitinn hefur haldist stöð-
ugur síðustu 18 ár og sex mánuði,
eða í 222 mánuði samfleytt. Með-
fylgjandi tvö línurit sýna þessar
staðreyndir.
Það er illa komið fyrir mannkyni
ef æsingamenn í páfagarði eiga að
skera úr um vísindaleg álitaefni.
Sérstaklega er þetta mikið áhyggju-
efni ef um er að ræða undirstöðu
hagkerfa margra ríkja eins og gildir
um orkunotkun. Þá er ekki síður
mikilvægt að losun lífsanda gefur
lífríkinu aukna fæðu og milljónum
manna líf. Ísland ætti að hafa for-
ustu um að berjast gegn babýlonsk-
um ranghugmyndum eins og nagla-
súputilgátunni um „hlýnun
veðurfars af völdum manna“.
Naglasúputilgátan um hlýnun
veðurfars af völdum manna
Eftir Loft Altice
Þorsteinsson
» Ísland ætti að hafa
forystu um að berj-
ast gegn babýlonskum
ranghugmyndum eins
og naglasúputilgátunni
um „hlýnun veðurfars af
völdum manna“.
Loftur Altice
Þorsteinsson
Höfundur er verkfræðingur og
vísindakennari.
Mælt magn lífsanda (CO2)
C
O
2
st
yr
ku
r(
m
ill
jó
nu
st
u
hl
ut
ar
).
Koldíoxíð-styrkur við mælistöðina á eldfjallinu Mauna Loa.
Síðasti CO2 aflestur 25. júní 2015.
402,76 ppm
Frávik frá meðalhitastigi í andrúmi jarðar
Hnattræn meðal hitabreyting, mæld með örbylgjumælum:
222 mánuðir desember 1996 til maí 2015.
Engin hnattræn hlýnun í 18 ár og 6 mánuði
Fyrir fleiri árum en
ég kæri mig um að
muna, eða rúmum ald-
arfjórðungi, fór vinur
minn að læra guð-
fræði. Ég man ennþá
þegar ég hugsaði:
„Hvað er að honum?
Ekki trúir hann því
sem stendur í Biblí-
unni?“ Athyglisverð
staðhæfing í ljósi þess
að sjálf hafði ég aldrei lesið hana.
Ég hafði vissulega lesið eitt og eitt
vers og lært biblíusögur í skóla en
Biblíuna sjálfa hafði ég aldrei lesið.
Sem betur fer er leyfilegt að
skipta um skoðun og afstaða mín
breyttist þegar ég fór að kynna
mér Biblíuna. Af og til síðan hefur
fólk orðið á vegi mínum sem hefur
viljað rökræða kristna trú. Sú um-
ræða hefst iðulega á spurningu um
hvort ég trúi því að aldingarðurinn
Eden hafi verið til og Adam og
Eva. Hvort heimurinn varð til í
miklahvelli eða aldingarðinum
Eden skiptir mig ekki miklu máli
dagsdaglega. Hvernig sem hann
varð til þá trúi ég því að Guð hafi
verið við stjórnvölinn. Miðað við
hraðann í himingeimnum tel ég
okkur öllum fyrir bestu að einhver
sé við stjórnvölinn. Og það er þessi
einhver sem ég hef valið að leggja
traust mitt á. Biblían segir frá
áhrifamiklum persónu-
leika sem tímatalið
okkar er miðað við.
Fyrir og eftir Krist.
Sjálf get ég miðað við
það tímatal í tvennum
skilningi. Annars vegar
sem skilgreiningu á ár-
tölum fyrir og eftir ár-
ið núll. Hins vegar sem
þann andlega fjársjóð
sem ég eignaðist þegar
ég tók þá ákvörðun að
trúa því að Jesús væri
sá sem hann sjálfur sagðist vera.
Það er kjarni Biblíunnar. Að trúa
því að Jesús hafi sagt satt. Ef hann
sagði satt þá er ekki annað hægt en
fylgja honum. Fyrsta skrefið þitt í
þá átt getur verið að lesa um hann í
Biblíunni. Kynna þér sögurnar um
hann.
Hið íslenska biblíufélag fagnar
200 ára afmæli sínu föstudaginn 10.
júlí. Vertu velkominn í Dómkirkj-
una kl. 16 þann dag.
Eftir Dögg
Harðardóttur
Dögg Harðardóttir
» Það er kjarni Biblí-
unnar. Að trúa því
að Jesús hafi sagt satt.
Ef hann sagði satt
þá er ekki annað hægt
en fylgja honum.
Höfundur er hjúkrunarfræðingur.
„Ekki trúir hann
því sem stendur
í Biblíunni?“
Heildsöludreifing: ACT ehf, Dalvegi 16b, 201 Kópavogi, sími 577 2150
Leiðandi framleiðandi lítilla heimilistækja
fyrir hjarta heimilisins
60 ára reynsla á Íslandi