Morgunblaðið - 04.07.2015, Page 52
LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 185. DAGUR ÁRSINS 2015
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 790 ÁSKRIFT 4995 HELGARÁSKRIFT 3120 PDF Á MBL.IS 4420 I-PAD ÁSKRIFT 4420
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Von á 22°C
2. Gáfu ungbarni heróín og kókaín
3. Kynferðisofbeldi sprengdi …
4. Skólafélagi dómarans brotnaði …
Listaverkefninu RÓT 2015 lýkur í
dag kl. 15-17 í Listasafninu á Ak-
ureyri, Ketilhúsi, eftir tveggja vikna
ferli, sjö vinnudaga og þátttöku 31
skapandi einstaklings. Þar með er
sýningin fullunnin og verður opnuð
formlega. Opnunin í dag er sú seinni
af tveimur og á henni verður síðasti
hópur þátttakenda önnum kafinn við
að fullvinna síðasta verkið á sýn-
inguna. RÓT sameinar listamenn úr
ólíkum listgreinum í gerð verka sem
eru þróuð á staðnum með ólíkum
áherslum. Hver dagur hófst á hug-
flæði þar sem allar hugmyndir voru
viðraðar þangað til rótin fannst, eins
og það er orðað í tilkynningu. Hug-
myndin að verkefninu kviknaði einn
vetrardag á sameiginlegri vinnustofu
þriggja listamanna; Freyju Reyn-
isdóttur, Karólínu Baldvinsdóttur og
Jónínu Bjargar Helgadóttur. Þær
langaði að nýta margföldunaráhrifin
sem gott samstarf framkallar.
RÓT lýkur í Ketilhúsi
Samtökin Wift á Íslandi, þ.e. Women
in film and television eða Konur í kvik-
myndum og sjónvarpi, halda nám-
skeið í stuttmyndagerð fyrir stelpur
4.-18. ágúst, í samstarfi við Alþjóðlega
kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF, og
Kvikmyndaskóla Íslands. Námskeiðið
ber yfirskriftina Stelpur skjóta og er
ætlað stúlkum á framhaldsskólaaldri.
Á því verða kennd undirstöðuatriði
kvikmyndagerðar og lýkur því með
gerð stuttmyndar. Myndirnar verða
sýndar á RIFF í haust. Kvikmynda-
gerðarkonurnar Ása
Helga Hjörleifsdóttir
og Dögg Mósesdóttir
kenna á námskeiðinu
og er hægt að fá frek-
ari upplýsingar og
skrá sig með tölvu-
pósti á
stelpurskjota-
@gmail.com.
Stelpur skjóta í ágúst
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan og norðaustan 3-8 m/s á en 8-13 á Suðausturlandi. Víða
bjartviðri og hiti 14 til 21 stig en skýjað og líkur á þokulofti með austurströndinni.
Á sunnudag Austlæg átt 5-13 m/s. Dálítil rigning á Suður- og Austurlandi og hiti 8 til 13
stig en bjart með köflum fyrir norðan og vestan, hiti að 19 stigum. Á mánudag og
þriðjudag Norðaustlæg átt 3-10 m/s. Þurrt og skýjað með köflum eða bjartviðri. Hiti frá
7 stigum við norðausturströndina, upp í 18 stig í uppsveitum Suðvestur- og Vesturlands.
„Ég hef fundið fyrir miklum áhuga,
sérstaklega frá liðum í Austur-
Evrópu,“ segir knattspyrnumaðurinn
Arnór Smárason meðal annars við
Morgunblaðið í dag, en hann er kom-
inn aftur til Helsingborg í Svíþjóð eft-
ir að hafa spilað sem lánsmaður í
Rússlandi seinni hluta síðasta tíma-
bils. Hann segist þegar hafa hafnað
nokkrum tilboðum. »1
„Finn mikinn áhuga eft-
ir Rússlandsævintýrið“
Heimsmeistaramóti kvenna
í knattspyrnu lýkur form-
lega í Kanada um helgina.
Bronsleikurinn fer fram í
kvöld og úrslitaleikur
Bandaríkjanna og Japans
annað kvöld. „Ekkert HM er
almennilegt nema það sé
stútfullt af umdeildum at-
vikum,“ skrifar Edda Garð-
arsdóttir meðal annars í
pistli um mótið í Morg-
unblaðinu í dag. »2
Sumarveislunni
lýkur um helgina
Liðin sem léku til úrslita um bik-
armeistaratitil kvenna í knattspyrnu í
fyrra, Stjarnan og Selfoss, komust
bæði áfram í undanúrslit keppninnar
í gærkvöld. Stjarnan lagði Þór/KA í
hörkuleik en vítaspyrnukeppni þurfti
á milli Selfoss og ÍBV. »3
Stjarnan og Selfoss
unnu dramatíska sigra
Brynja Dögg Guðmundsdóttir
Briem
brynjadogg@mbl.is
Frábært veður var til siglinga í
gærmorgun í Nauthólsvík í
Reykjavík og 9-12 ára krakkar á
siglinganámskeiði nutu þess.
Þegar blaðamaður mætti á
svæðið voru krakkarnir á leið í
land með bátnum Jónasi feita, sem
er vélbátur. Nafngift bátsins
byggist á því að þetta er sá bátur
sem flesta rúmar, en börnin á
námskeiðinu voru þrjátíu talsins
auk þess sem fjöldi manns starfar
í og við bátana hverju sinni.
„Lokadeginum er varið í eins
konar ratleik á sjó og í landi. Leik-
urinn snýst um að nýta þá þekk-
ingu sem þau hafa aflað sér og
upplifað á námskeiðinu og geta
þau safnað armböndum fyrir góð-
an árangur,“ segir Óttarr Hrafn-
kelsson, deildarstjóri Sigluness.
Meðal verkefna sem börnin kljást
við er að binda og leysa tiltekna
hnúta, róa báti sem er á hvolfi,
binda bát við bryggju, synda milli
bryggna, hvolfa árabáti og margt
fleira.
Lenda alltaf í ævintýrum
„Hér er mikil áhersla lögð á æv-
intýri. Það að lenda í ævintýri get-
ur falið í sér að upplifa eitthvað al-
veg nýtt og oft óvænt, verða
kannski smá hissa eða hræddur en
svo verður allt í lagi og allt endar
vel, því að öll ævintýri enda vel,“
segir Óttarr. „Ef ævintýrin end-
uðu ekki vel kæmu krakkarnir
ekki aftur. Hér er alltaf mikil að-
sókn og oftast komast færri að á
námskeiðin en vilja.“
Siglunes hefur verið starfrækt í
48 ár en mest fer fyrir starfsem-
inni yfir sumartímann. Haldin eru
námskeið fyrir börn á aldrinum 9-
12 ára og 13-16 ára auk þess sem
starfræktur er siglingaklúbbur
fyrir 10-16 ára ungmenni sem hafa
reynslu af siglingum.
Taka heilmiklum breytingum
Siglunesi er lýst sem ævintýra-
miðstöð fyrir hressa og kjarkaða
krakka með sterka ævintýraþrá.
Óttar segist finna mikinn mun á
börnunum frá fyrsta til fimmta
dags. Í byrjun séu flestir svolítið
stressaðir en strax á öðrum degi
stökkvi vel flestir krakkarnir í sjó-
inn. Börnin eru fullklædd í björg-
unarvestum en með því að stökkva
finna þau samt kuldasjokkið sem
líkaminn fer í og átta sig á hvernig
björgunarvestið virkar. Eftir
stökkið fara þau svo beint og hlýja
sér í heitapotti Sigluness. Með
þessu ná þau að yfirbuga ákveðinn
ótta sem sumir hafa í byrjun nám-
skeiðsins og geta þá notið fram-
haldsins betur.
Börn byrja daginn á siglingu
Siglinganám-
skeið í Nauthóls-
vík eru vel sótt
Morgunblaðið/Eggert
Vélbátur Krakkarnir voru kátir þegar þau komu í land ásamt leiðbeinendum sínum eftir skemmtilega siglingu.
Morgunblaðið/Eggert
Vinátta Þeir Tómas, Uni, Úlfur og Jakob eru reynslunni ríkari eftir nám-
skeiðið og hafa eignast góðar minningar á sjó og í landi.