Morgunblaðið - 18.07.2015, Page 1
L A U G A R D A G U R 1 8. J Ú L Í 2 0 1 5
Stofnað 1913 167. tölublað 103. árgangur
ÚR SKÓM
DREKANS Í
BÍÓ PARADÍS
MIÐSTÖÐ
SKÖPUNAR AÐ
LAUGARVATNI
GULLKISTAN 39Á HEIMAVELLI 10
Morgunblaðið/Eggert
Hjúkrun Starfsmannaleiga er næsta
útspil hjúkrunarfræðinga.
„Það felst mikill kraftur í því að
selja vinnu sína eins og maður met-
ur hana sjálfur.“ Þetta segir Sóley
Ósk Geirsdóttir sem er ein af þeim
hjúkrunarfræðingum sem ráðgera
nú að stofna starfsmannaleigu í
hjúkrun til þess að sinna íslenskum
sjúkrastofnunum.
Sóley segir undirbúningsvinnu
komna á fullt skrið og myndarlegur
hópur hafi safnast saman í kringum
verkefnið. Margir hjúkrunarfræð-
ingar hyggi á vinnu erlendis en
þetta sé kostur fyrir þá sem vilji
starfa hér áfram. Landspítalinn
ætti að sjá góðan kost í því að ráða
innlendan starfskraft í stað þess að
borga flug og húsnæði fyrir útlend-
inga sem kæmu í staðinn. »14
Starfsmannaleiga á
vegum hjúkrunar-
fræðinga í bígerð
Sigurður Tómasson
sigurdurt@mbl.is
Lánshæfiseinkunn Ríkissjóðs Ís-
lands var hækkuð í gær úr neðsta
fjárfestingarflokki, BBB-, í BBB af
lánshæfismatsfyrirtækinu Standard
& Poor’s, S&P. Þetta er í fyrsta sinn
frá hruni sem S&P hækkar lánshæf-
ismat ríkissjóðs en þó kemur hækk-
unin Bjarna Benediktssyni fjármála-
ráðherra ekki á óvart. „Við gerðum
ráð fyrir að þegar við gætum sýnt
fram á að við værum með tök á rík-
isfjármálunum og áætlun um afnám
hafta væru allar aðstæður fyrir
hækkun á lánshæfismati.“
Þetta er önnur hækkun lánshæf-
ismats ríkissjóðs á skömmum tíma
en Moody’s hækkaði mat sitt þann
29. júní úr Baa3 í Baa2 sem eru sam-
bærileg þrep og hækkun S&P.
Trúverðug aðgerðaáætlun
Ákvörðunin um hækkunina bygg-
ist m.a. á trúverðugri aðgerðaáætlun
stjórnvalda til losunar fjármagns-
hafta, segir í tilkynningu frá S&P.
„Næsta skref er að sýna fram á að
við getum hrint áformum okkar í
framkvæmd og tekist á við breytta
stöðu í ríkisfjármálum og opinberum
fjármálum með ábyrgum hætti,“
segir Bjarni jafnframt.
Lánshæfi ríkissjóðs batnar
Til marks um að hjólin séu farin að snúast af meiri hraða segir fjármálaráðherra
MHjálpar fyrirtækjum strax »16
Morgunblaðið/Golli
Lax Veiði á stöng er mjög áþekk því
sem var í fyrra, eða um 34.100 laxar.
Eftir góða laxveiði í ánum á Vestur-
og Norðurlandi í liðinni viku er
heildarveiði sumarsins í góðu með-
allagi síðustu áratuga.
Veiðin í aflahæstu ánum, Blöndu
og Norðurá, tók mikinn kipp. Í
Blöndu veiddust 478 laxar á 14
stangir og 438 laxar á 15 stangir í
Norðurá. Þá veiddust 345 í Langá en
130 höfðu veiðst fram að því.
Veiðin í ánum á Vesturlandi er
miklum mun betri en í fyrra, þegar
aflabrestur varð. Á Norðurlandi
hafa einnig verið fínar göngur í
margar ár. Líflegt hefur verið í Laxá
í Aðaldal, þar sem veiðimenn hafa
sett í allt að tuttugu laxa neðan við
Æðarfossa á morgunvaktinni. Stað-
arhaldarinn á Nessvæðinu segir
mjög sterkar göngur í ána og að áin
virðist í fínu standi. Hins vegar sé
það kalt nú fyrir norðan að takan
dofni ofar í ánni.
Leiðsögumaður við Miðfjarðará
tekur undir að nú séu öflugar göng-
ur í ána, enda veiddust þar 348 laxar
í vikunni. „Fossarnir í Vesturá eru
hálfstíflaðir af laxi þessa dagana,
það eru bunkar fyrir neðan þá,“ seg-
ir hann. »12
Góð meðalveiði í laxánum
Í Blöndu veiddust 478 laxar á einni viku á 14 stangir
Boðið var upp á drullubolta í Nauthólsvík síð-
degis í gær þar sem fólk gat spreytt sig í drullu-
malli og boltaleik. Tilefnið var Mýrarboltinn sem
fram fer á Ísafirði um verslunarmannahelgina í
tólfta skipti. Það leyndi sér ekki að bæði eldri og
yngri höfðu gaman af tiltækinu.
Ertu búinn að drulla þig allan út, strákur?
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Boðið var upp á drullubolta í Nauthólsvík í gær
Talsvert úrval
af íslenskum
vörum, einkum
ferskvörum,
verður á boð-
stólum í verslun
Costco sem til
stendur að verði
opnuð í Urriða-
holti í Garðabæ
næsta sumar.
Þetta segir Steve
Pappas, framkvæmdastjóri Costco
á Bretlandi sem telur íslenska neyt-
endur kostgæfna og markaðinn já-
kvæðan. Í byrjun verða 160 ráðnir,
en búist er við að starfsmenn verði
um 250 eftir um þrjú ár. »14
Um 250 munu
starfa hjá Costco
Costco Verslunin
verður opnuð 2016.
Ljóst er að kostnaður sjúklinga
vegna krabbameins getur orðið tals-
verður hér á landi, ólíkt nágranna-
löndum okkar. Sunnudagsblað
Morgunblaðsins ræddi við sjúklinga
og í einu tilfelli hafði viðkomandi
þurft að borga meira en 600 þúsund í
beinan kostnað vegna sinnar með-
ferðar síðan hann greindist fyrir
þremur árum. Að óbeinum kostnaði
meðtöldum var áætlaður kostnaður
meiri en ein og hálf milljón.
Greiðslubyrði sjúklinga hefur auk-
ist jafnt og þétt síðastliðin tuttugu
ár, sem kemur sér sérstaklega illa
fyrir krabbameinssjúklinga, segir
forstjóri Krabbameinsfélagsins. Áð-
ur hafi greiðslubyrði krabbameins-
sjúklinga verið minni en annarra en
því hafi verið breytt.
Annars staðar á Norðurlöndum og
á Bretlandseyjum taka sjúklingar
engan eða afar takmarkaðan þátt í
fjármögnun meðferðarinnar, skv.
upplýsingum frá Krabbameinsfélag-
inu. Hér á landi taka sjúklingar þátt í
greiðslu margvíslegrar þjónustu á
göngudeild o.fl. þótt þeir greiði
hvorki fyrir krabbameinslyfin sjálf
né fyrir að vera lagðir inn á deild.
Krabbamein reynist
sjúklingum dýrt