Morgunblaðið - 27.07.2015, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. JÚLÍ 2015
Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000
www.heimsferdir.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
um
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
sé
r
ré
tt
til
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
.a
ð
ve
rð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
Alicante
frá kr.19.900
Flugsæti aðra leið með sköttum.
Flutningabíll fór á hliðina í Ártúnsbrekku síðdegis á
föstudag, en hún var lokuð í austurátt í þrjá tíma á
meðan rannsókn lögreglu og hreinsunarstörf fóru
fram. Bíllinn flutti möl þegar hann fór á hliðina og
dreifðist hún um veginn og þakti talsverðan hluta hans.
Lokunin hafði töluverð áhrif á umferð í höfuðborg-
inni enda margir borgarbúar á leið út úr bænum á ýms-
ar bæjarhátíðir sem fram fóru um helgina og sköp-
uðust miklar umferðateppur í kjölfar slyssins. Einnig
varð seinkun á áætlun strætisvagna sem leið eiga um
Ártúnsbrekku. Ökumaður flutningabifreiðarinnar var
fluttur á slysadeild til aðhlynningar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Flutningabíll valt í Ártúnsbrekku
Sunna Sæmundsdóttir
sunnasaem@mbl.is
„Á Íslandi er staðan þannig að þú ert
með sama aðila sem selur þér tækið
og gerir við það. Hvatningin er lögð á
að þú eigir bara að kaupa þér nýtt,“
segir Bjartmar Alexandersson, hjá
fyrirtækinu Grænum símum. Hann
segir umboðsaðila á Íslandi vera í
þeirri stöðu að geta túlkað ábyrgð-
arreglur sér í hag. Hjá Grænum sím-
um er bæði rekin viðgerðarþjónusta
auk þess sem endurnýttir símar eru
seldir. Fyrirtækið hefur verið starf-
andi í sex ár og selt farsíma til stórra
heildsala og einstaklinga erlendis. Í
síðasta mánuði opnuðu þeir verk-
stæðið og verslunina fyrir ein-
staklinga á Íslandi.
Í viðgerðirnar eru notaðir endur-
uppgerðir varahlutir frá tjónatækj-
um. „Þessir varahlutir eru teknir af
tjónatækjum en eru prófaðir og í full-
komnu lagi. Þess vegna getum við
gert þetta ódýrt,“ segir hann en til
dæmis kostar það 17 þúsund krónur
að skipta um skjá á LG-síma hjá
Grænum símum þegar þessir vara-
hlutir eru notaðir. „Þetta er svipað og
að kaupa hluti af bílapartasölu. Þig
vantar eitthvað í bílinn en þú ert
kannski ekki tilbúinn til þess að
greiða stórfé fyrir varahlutinn hjá
umboðinu,“ segir hann.
Bjartmar segist geta rekið þjón-
ustu sem þessa á Íslandi vegna góðra
samninga við erlend tryggingafélög,
t.d. Gjensidige, eitt stærsta trygg-
ingafélag í Skandinavíu.
Þá bendir hann á að umboðsaðilar
á Íslandi bendi fólki á að leita til við-
urkennds verkstæðis ef eitthvað
kemur fyrir, s.s. skjárinn brotnar við
högg. Þetta eigi að gera til þess að
síminn haldist í ábyrgð. Viðskiptavin-
urinn þarf þannig að fara á sölustað-
inn sem sendir tækið áfram í viðgerð.
Þar flækist málið þar sem fyr-
irtækin geta síðar litið svo á að
ábyrgðin hafi í raun rofnað við höggið
þegar skjárinn brotnar. Bjartmar
segir suma framlengja ábyrðina þeg-
ar þeir gera við símann. Ef bilun
komi upp síðar geti fyrirtækið sagt að
síminn hafi áður komið inn vegna
höggskemmda, bilunina megi rekja
til þeirra og ábyrgðin gildi ekki leng-
ur.
„Ef einhver trúir þessu ekki, vill
annað álit og lætur kíkja á símann,
hefur hann rofið ábyrgðina bara með
því að láta einhvern opna símann og
skoða,“ segir Bjartmar. „Þeir eru
þannig í svokallaðri win-win stöðu og
þrátt fyrir að þeir séu örugglega að
gera allt rétt gerir ferlið það að völd-
um að fólk verður bara að fylgja því
sem sagt er.“
Morgunblaðið/Kristinn
Símtæki Fyrirtækin eru alltaf í
sterkari stöðu en viðskiptavinurinn.
Fyrirtækin alltaf
með yfirhöndina
Túlka ábyrgðarreglurnar sér í hag
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Útgáfufélagið Fótspor ehf. sem gefið
hefur út 12 blöð og þar með nokkur
vikublöð. s.s. Reykjavík Vikublað,
Akureyri Vikublað, Bæjarblaðið
Kópavogur o.fl. blöð, hefur hætt út-
gáfu sinni og selt útgáfufélagi Björns
Inga Hrafnssonar, Vefpressunni
ehf., útgáfurétt blaða sinna.
Ingimar Karl Helgason, ritstjóri
Reykjavíkur Vikublaðs, segir fréttir
af sölu útgáfuréttarins hafa komið
sér verulega á óvart en hann er í fríi
með fjölskyldu sinni í Bandaríkjun-
um og heyrði fyrst fréttir af sölunni
þegar fjölmiðlar leituðu viðbragða
hans.
„Ekkert benti til þess Fótspor ehf.
væri að hætta útgáfu sinni og selja
útgáfuréttinn til Vefpressunnar.
Málið kemur mér því verulega á
óvart. Síðustu samskipti mín við út-
gefanda Fótspors ehf., Ámunda
Ámundason, voru á þá leið að fjölga
síðum í Reykjavík Vikublaði í 24 í
haust og ég hef verið með hugann við
það. Ég frétti ekki af þessu fyrr en
þetta var um garð gengið og okkar
síðustu samskipti því snautleg,“ segir
Ingimar en tekur þó fram að bæði
samskipti hans og samstarf við
Ámunda og son hans, Ámunda Stein-
ar Ámundason, framkvæmdastjóra
Fótspor, hafi alltaf verið góð.
Fjölmiðlaveldi Björns Inga vex
Ámundi Ámundason stofnaði Fót-
spor ehf. útgáfufélag árið 2008 og
hefur útgáfa þess vaxið stöðugt frá
þeim tíma. Sala hans á útgáfurétti fé-
lagsins til Vefpressunnar eykur því
enn á fjölmiðlaveldi Björns Inga en
félag hans Vefpressan á og rekur DV
og dv.is og vefmiðlana Pressuna,
Eyjuna og Bleikt.is. Auk þess hefur
Björn Ingi umsjón með vikulegum
umræðuþætti á Stöð 2.
Kaupsamningur Vefpressunnar á
útgáfurétti Fótspors ehf. var undir-
ritaður á fimmtudaginn í síðustu viku
en að sögn Ámunda er hann háður
fyrirvara um samþykki Samkeppnis-
eftirlitsins og Fjölmiðlanefndar.
Í tölvupósti sem Björn Ingi sendi
til mbl.is segir að öll blöðin 12, sem
Fótspor gaf áður út, muni áfram
koma út og að Vefpressan komi ekk-
ert að rekstri blaðanna fyrr en Sam-
keppniseftirlitið hafi gefið grænt ljós
á kaupin.
Lengi legið fyrir að selja
Í samtali við mbl.is í gær sagði
Ámundi Ámundason, eigandi Fót-
spors ehf., að það hefði legið fyrir í
tvö ár að hann myndi selja útgáfu-
réttinn.
„Fyrstu samskipti mín við Björn
Inga voru þegar hann bauð mér fyrir
tveimur árum að gerast auglýsinga-
stjóri hjá fyrirtækinu hans en ég
hafnaði því. Síðan eftir að hann
keypti DV hafði hann aftur samband
við mig og vildi kaupa útgáfuréttinn
og var kaupsamningurinn undirritað-
ur á fimmtudaginn,“ sagði Ámundi.
Afskiptum hans af rekstri blað-
anna er þó ekki að öllu lokið því hann
mun taka við starfi auglýsingastjóra
hjá félagi Björns Inga. „Hjá Fótspor
ehf. hef ég verið að sjá um bókhaldið,
samninga, auglýsingar og fleira. Það
verður léttara starf hjá mér núna að
verða bara aftur auglýsingastjóri
eins og ég var áður til margra ára.“
Akureyringum boðið að kaupa
Björn Þorláksson, ritstjóri Akur-
eyrar Vikublaðs, sagði við mbl.is í
gær að það hefði komið sér og nokkr-
um samstarfsmönnum sínum veru-
lega á óvart að búið væri að selja út-
gáfurétt Fótspor til Vefpressunnar.
„Nú veltur það bara á aðstæðunum
sem eru uppi hjá hverjum og einum. Í
okkar tilfelli hafa verið tvö blöð á Ak-
ureyri í fjögur ár. Þetta eru ólík blöð
og margir hafa talað um mikilvægi
þess að hafa tvö blöð. Því er heldur
ekki að leyna að fólk hefur haft sam-
band við mig og hvatt mig til að
leggja ekki árar í bát varðandi það að
gefa út blað á Akureyri. Það gæti þó
reynst öðrum ritstjórum þyngra sem
þurfa sterkara bakland eins og Fót-
spor hefur verið að veita varðandi
auglýsingar og fleira,“ segir Björn en
hann telur allt of snemmt að ræða
möguleika á útgáfu á nýju blaði.
Í samtali Ámunda við mbl.is í gær
upplýsti hann að útgáfurétturinn
hefði áður verið til sölu. Hann hefði
m.a. reynt að selja einstök blöð út úr
útgáfufyrirtækinu. Þannig hefði
hann boðið fyrirtækjum á Akureyri
að kaupa réttinn að Akureyri Viku-
blaði.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Höfuðstöðvar Ritstjórnar-
skrifstofur allra fjölmiðla
Björns Inga Hrafnssonar eru
í turni Kringlunnar. Nöfn
fleiri miðla eiga eftir að bæt-
ast á skiltið í anddyrinu.
Vefpressan kaupir tólf blöð
Eignast útgáfufyrirtæki sem gefur út
vikublöð í Reykjavík, á Akureyri og víðar
Ingimar Karl
Helgason
Björn
Þorláksson