Morgunblaðið - 27.07.2015, Blaðsíða 13
Púttað Skagamenn hafa forustu í harðri keppni um Húsasmiðjubikarinn.
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Akurnesingar leiða í afar spennandi
púttkeppni á milli Skagamanna og
Borgnesinga og nærsveitarmanna,
þegar tveimur mótum af þremur í
Húsasmiðjubikarnum er lokið.
Keppnin er haldin núna í þriðja sinn
en Borgnesingar og nærsveitarmenn
báru sigur úr býtum í fyrra og árið
þar á undan.
„Við ætlum að sjálfsögðu að
tryggja okkur sigur í ár og leiðum
eftir fyrstu tvær keppnir sumarsins
og því hörkuspennandi keppni fram-
undan hjá okkur 13. ágúst næstkom-
andi en þá fer fram lokakeppni móts-
ins á Akranesi,“ segir Þorvaldur
Valgarðsson, formaður íþrótta-
nefndar eldri borgara á Akranesi og
fyrrverandi bóndi á Eystra-Miðfelli í
Hvalfjarðarsveit.
Keppt er í tvígang á Akranesi og
einu sinni í Reykholtsdal í Borgar-
firði á golfvellinum í Nesi, þar sem
Bjarni Guðráðsson ræður ríkjum og
hefur ásamt fjölskyldu sinni byggt
upp myndarlegan 9 holu golfvöll.
Það var Hannes Þorsteinsson sem
hannaði þann völl og er hann sagður
vera á pari við bestu golfvelli lands-
ins.
Fyrst og fremst að skemmta sér
Einn keppandi sem blaðamaður
Morgunblaðsins, sem var viðstaddur
keppnina í Nesi, ræddi við sagði að
um harða bæjarkeppni væri að ræða,
þó ekki eins harða og í gamla daga
þegar hnefar voru látnir tala á böll-
unum í Logalandi. Á þeim tíma hafi
hrepparígurinn verið meiri en í dag.
„Við hittumst tvisvar í viku og æf-
um okkur á Garðavelli enda keppnin
hörð í ár og við ætlum að tryggja
okkur bikarinn í fyrsta sinn. Það er
þó rétt að taka það fram að keppnin
fer fram í mesta bróðerni enda er
þetta gert til þess að hafa gaman af,“
segir Þorvaldur.
Áhuginn á keppninni er mikill en
allt að 40 manns taka þátt í henni og
gilda sjö bestu skor í hverju liði. Að
keppni lokinni fá keppendur sér kaffi
og með því en að lokinni keppni í
Nesi, sem fór fram í blíðskaparveðri,
var boðið upp á kaffisopa í Byrg-
ishóli, golfskálanum hjá Bjarna Guð-
ráðssyni.
Hvíld Keppendur fara yfir skorkortið og safna kröftum milli leikja.
Afar spennandi
púttkeppni í Nesi
Skagamenn með forustu á mótinu
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. JÚLÍ 2015
Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.isFuruvöllum 3 • Akureyri • 461 2288
Alhliða þjónusta fyrir vökvadælur
og vökvamótora
Sala - varahlutir - viðgerðir
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Skógræktarfélag Reykjavíkur vinn-
ur að uppgræðslu og endurbótum á
votlendissvæði í Einarsmýri í Esj-
unni en verkið felst í að flytja núver-
andi göngustíg til austurs yfir á
melasvæði þar sem álagsþol er
meira. „Um er að ræða vestari
göngustíginn en hann liggur í gegn-
um Einarsmýri og er orðinn mjög
leiðinlegur að sjá,“ segir Magnús
Bjarklind, hjá EFLU verkfræði-
stofu og umsjónarmaður eftirlits
verksins.
„Lögð verður rík áhersla á að fella
stíginn vel að umhverfi sínu og
landslagi en markmiðið með fram-
kvæmdunum er að bæta gönguleið-
ina og auka þannig öryggi göngu-
manna en jafnframt græða upp rof
og álagsskemmdir í Einarsmýri og
endurheimta staðargróður.“
Gönguleiðin upp að Steini í Esj-
unni er gífurlega vinsæl og fer fjöldi
fólks upp á hverjum degi á sumrin.
Vinna Framkvæmdir við nýjan göngustíg í Esjunni eru hafnar og þeim á að
ljúka í ágúst að sögn umsjónarmanns verksins frá EFLU verkfræðistofu.
Unnið að lagningu nýs
göngustígs upp Esju
Endurheimta á staðargróður í Einarsmýri í Esjunni