Morgunblaðið - 27.07.2015, Síða 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. JÚLÍ 2015
YOUR TIME IS NOW.
MAKE A STATEMENT WITH EVERY SECOND.
Pontos Day/Date
Sígild en engu að síður nútímaleg
hönnun sem sýnir það allra nauðsynlegasta.
Áreiðanlegt sjálfvindu úrverk sem sýnir
vikudaga og dagsetningu. Einfalt
og stílhreint úr sem sendir skýr skilaboð.
jonogoskar.is Sími 5524910 Laugavegi 6 1 Kringlan Smáralind
Laufey Rún Ketilsdóttir
laufey@mbl.is
„Þegar þú ferð að koma öðruvísi fram
við fólk, vegna þess að það er öðruvísi,
þá er farið að sverfa verulega að frelsi
manna og slæmir hlutir gerast,“ sagði
Barack Obama, forseti Bandaríkj-
anna, á blaðamannafundi í gær með
Uhuru Kenyatta, forseta Kenýa.
Obama var í opinberri heimsókn í
Kenýa, fæðingarlandi föður síns, um
helgina.
Bandaríski forsetinn sagði við
Kenyatta að ríkið hefði engan rétt til
að refsa fólki fyrir það „hvern það
elskar“. Líkti hann meðal annars for-
dómum gegn samkynhneigð við kyn-
þáttamisrétti sem hann hefði sjálfur
orðið fyrir í Bandaríkjunum.
Breska blaðið The Guardian seg-
ir að aldrei áður hafi áhrifamikill er-
lendur þjóðarleiðtogi boðið Afríku-
mönnum birginn með svo bein-
skeyttum hætti í opinberri heimsókn.
Fyrir hana voru uppi getgátur um, að
Obama myndi beina sjónum sínum að
viðskiptum og öryggsmálum og horfa
framhjá stöðu samkynhneigðra í
landinu, en annað kom á daginn.
Sakaður um brot á fullveldi
Kenyatta lýsti því í kjölfarið yfir
að hann væri ekki sammála Obama.
„Það eru sumir hlutir sem við munum
ekki ná saman um,“ sagði Kenyatta
og bætti við að réttindi samkyn-
hneigðra væru ekki framarlega í hug-
um landsmanna. „Það er erfitt fyrir
okkur að þröngva einhverju upp á
fólk sem það sjálft hefur ekki trú á.“
Í Afríku gætir mikilla fordóma
gagnvart samkynhneigðum en sam-
neyti á milli einstaklinga af sama kyni
er ólöglegt í 36 af 54 Afríkulöndum og
sætir dauðarefsingu í nokkrum
þeirra. Þingmaður í ríkisstjórnar-
flokki Kenyatta lét hafa eftir sér að
ummæli Obama væru smekkleysa og
brot á fullveldi ríkisins. „Hann getur
ekki komið hingað og sagt okkur hvað
sé óviðunandi.“
Í heimsókninni fór Obama lof-
samlegum orðum um efnahagslega
stöðu landsins og framfarir í stjórn-
málunum. Varaði hann þó við spill-
ingu sem hann sagði hamla hagvexti
og framþróun og líkti því við krabba-
mein.
Talaði fyrir réttind-
um samkynhneigðra
Obama talaði opinskátt í opinberri heimsókn í Kenýa
AFP
Hylltur Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, fékk hlýjar viðtökur hjá íbú-
um Kenýa þegar hann var þar í opinberri heimsókn um helgina.
John Sewel,
varaforseti lá-
varðadeildar
breska þingsins,
hefur sagt af sér
embætti eftir að
breska dagblaðið
The Sun birti
myndskeið af
honum í sam-
kvæmi þar sem
hann sést taka kókaín í nefið innan
um vændiskonur.
Í myndskeiðinu má sjá hinn 69
ára gamla Sewel afklæðast í sam-
kvæmi heima hjá sér fyrir rúmum
tveimur vikum. Með honum í sam-
kvæminu voru tvær vændiskonur.
Er hann sagður hafa fengið sér
þrjár línur af kókaíni á 45 mínútum.
Ein vændiskonan segir við hann í
myndskeiðinu. „Þú ert nú meiri
partípinninn.“ Sewel svarar: „Ég
veit það, er ég ekki ógeðslegur?“
Forseti lávarðadeildar þingsins,
lafði D’Souza, sagði hegðun Sewels
„hneykslanlega og óvænta,“ og
kvaðst hafa vísað málinu til lögregl-
unnar í Lundúnum. „Lávarðadeild
þingsins mun áfram halda uppi sið-
ferðisreglum í opinberu lífi og sam-
þykkir ekki á nein frávik frá þeim,“
sagði hún, að því er fram kemur á
vef The Guardian.
Strangari siðareglur
Er hegðan Sewels einnig sérstök
fyrir þær sakir að fyrr í mán-
uðinum skrifaði hann grein á vef
Huffington Post um að til stæði að
setja strangari siðareglur fyrir
þingmenn. Gegndi hann þá for-
mennsku í siðanefnd þingdeild-
arinnar. „Nokkrir svartir sauðir í
hópi þingmanna eyðileggja fyrir
hinum,“ sagði hann.
Í kókaíni með
vændiskonum
Varaforseti lávarðadeildar sagði af sér
John Sewel
Að minnsta kosti þrettán manns létu lífið í sjálfs-
morðsárás sem gerð var á lúxushótel í nágrenni
flugvallar í Mógadisjú, höfuðborg Sómalíu, í gær.
Að minnsta kosti 21 særðist og sumir þeirra al-
varlega.
Fréttaritari BBC sagði frá því að flutningabíll
fullur af sprengiefni hefði verið notaður í árás á
Jazeera-hótelið. Lýsti hann vettvangi sprengju-
árásarinnar sem einu af því skelfilegasta sem
hann hefði séð í Sómalíu.
Sómalísku hryðjuverksamtökin al-Shabaab
hafa lýst árásinni á hendur sér. Í yfirlýsingu
segja samtökin að þau séu að svara árás sem her-
ir ríkja Afríkusambandsins hafi gert á samtökin.
Þau hafa háð hatramma baráttu til að steypa
stjórn Sómalíu af stóli en hún nýtur stuðnings
Vesturlanda.
Erlendir embættismenn dvelja oft á hótelinu og í byggingunni eru vist-
arverur nokkurra starfsmanna sendiráða, m.a. þess kínverska og egypska.
AL-SHABAAB SVARAR ÁRÁS
Árás Heil hlið sprakk af
hótelinu í sprengjuárás.
Sprengjuárás á lúxushótel í Sómalíu
Sýrlenski herinn hefur neyðst til
að láta sum svæði af hendi til að
halda velli á öðrum í stríðinu gegn
uppreisnarmönnum sem geisað
hefur í um fimm ár. Þetta viður-
kenndi forseti Sýrlands í sjón-
varpsávarpi í gær, að því er fram
kemur á vef BBC.
Sagði hann einnig að herinn sæi
fram á mikinn skort á hermönn-
um. Átökin hafa nú þegar kostað
um 230.000 manns lífið.
„Herinn er ekki með þann
mannafla sem þarf til að verja allt
landið þegar
uppreisnarhóp-
arnir fá ut-
anaðkomandi að-
stoð,“ sagði
hann og átti þar
við aðstoð frá
Sádi-Arabíu,
Tyrklandi og
Katar. Talaði
hann þó einnig
kjark í landa sína. „Við munum
berjast á móti og við munum
vinna.“
Herinn hefur ekki nægan mannafla
Bashar Assad
SÝRLAND
Ofurhugi stingur sér til sunds af
brúnni „Ura e Shejt“ nálægt bæn-
um Gjakova í Kosovo. Er hann þátt-
takandi í árlegri og sögulegri dýf-
ingakeppni af brúnni, sem er
tuttugu og tveir metrar á hæð.
Leika þeir listir sínar í loftinu og
áhorfendur fylgjast ákafir með.
AFP
Ofurhugar í dýfingum