Morgunblaðið - 27.07.2015, Side 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. JÚLÍ 2015
Elsku besta
Inga Sigga, mér
finnst svo óraun-
verulegt að ég sitji
hérna heima og skrifi minning-
argrein um þig. Það er mikil
sorg sem ríkir hjá okkur, fólk-
inu þínu núna. Þú barðist
hetjulega við þennan ömurlega
sjúkdóm sem enginn á skilið að
fá. Guð hefur nú fengið þig til
sín og mikið er hann heppinn
með það því þú ert svo einstök
manneskja. Þegar maður geng-
ur í gegnum erfiða tíma, þá eru
það minningarnar sem hjálpa
manni og ég á þær óteljandi til
að ylja mér. Þú hefur verið í lífi
mínu síðan ég man eftir mér.
Mamma tvö eins og ég kallaði
þig stundum.
Ég man þegar þú hringdir í
mig og bauðst mér að koma yf-
ir til þín og læra að búa til kjöt-
Ingibjörg Sigríður
Guðmundsdóttir
✝ Ingibjörg Sig-ríður Guð-
mundsdóttir fædd-
ist 22. október
1962. Hún lést 6.
júlí 2015.
Útför hennar fór
fram 17. júlí 2015.
súpu, það var sko
skemmtilegt.
Ég man eftir svo
mörgum kvöldum
sem við fjölskyld-
urnar áttum saman
bæði í númer 8 og í
númer 3. Við Aron
vorum oft að brasa
ýmislegt og ég
man í eitt skiptið
þegar við vorum í
eltingarleik og það
mátti ekki snerta gólf, við
hoppuðum á glerborðið í stof-
unni ykkar Gumma og brutum
það, við vorum heldur betur
skömmustuleg en þið voruð
ekkert reið við okkur. Þú varst
aldrei reið, alltaf svo skemmti-
leg og yndisleg. Ég man þegar
ég fékk að gista hjá ykkur einn
virkan dag, það var skóli dag-
inn eftir og þú vaktir okkur Ar-
on með því að syngja „Siggi fór
í bæinn og Siggi fór í búð, Siggi
sat á torginu og var að borða
snúð.“ Ég hef aldrei vaknað
jafn hress og kát eins og þenn-
an morgun.
Ég man eftir spilakvöldunum
sem við fjölskyldurnar áttum
saman, mér fannst skemmtileg-
ast að vera með þér í liði. Þá
vann ég sko alltaf!
Ég man þegar ég var nýbúin
í kjálkaskurðaðgerðinni og gat
ekki talað, þá hlógum við mikið.
Þegar við gátum hvorug talað
og töluðum saman í „Dóru“. Ég
get skrifað endalaust um minn-
ingar sem ég á tengdar þér því
þær eru óteljandi. Þú gerðir
svo ótrúlega margt fyrir mig,
kenndir mér svo margt. Ég á
þér margt að þakka, elsku
mamma tvö.
Ég er svo þakklát fyrir það
að þú hafir treyst mér í það
verkefni að farða þig og gera
fínt í hárið þitt þegar þú varst
hætt að geta gert það. Ég mun
geyma allar stundirnar sem við
áttum saman vel í hjarta mínu.
Stundirnar sem við hlógum og
grétum saman til skiptis eru
mér mikilvægar. Stundin þegar
ég og Tinna komum í heimsókn
til þín upp á sjúkrahús var ljúf
og góð. Þegar ég lá hjá þér,
fann hjartað þitt slá, þú hélst í
höndina mína og kreistir hana
af og til. Stundin þegar við
Tinna vorum að labba út, sner-
um okkur við og þú gafst okkur
fingurkoss. Þeirri stund mun
ég aldrei gleyma.
Ég veit að þér líður betur
núna. Þetta líf er svo óútreikn-
anlegt og skrítið stundum.
Takk fyrir allt, elsku besta
Inga Sigga. Takk fyrir að vera
alltaf til staðar fyrir okkur fjöl-
skylduna. Takk fyrir að vera
alltaf svo frábær og yndisleg.
Ég tel mig vera afskaplega lán-
sama að hafa fengið að tengjast
þér svo vel. Þú munt alltaf eiga
risastóran stað í hjartanu mínu.
Ég elska þig, alltaf.
Þín,
Helga Þuríður
Hlynsdóttir Hafberg.
Það var döpur stund þegar
okkur bárust fréttir af alvar-
legum veikindum Ingibjargar
Sigríðar Guðmundsdóttur (Ingu
Siggu), kennara við Grunnskól-
ann á Ísafirði, og síðan sorg-
arfregn um andlát hennar nú í
byrjun júlímánaðar.
Við hjónin eigum einkar ljúf-
ar minningar frá kynnum okkar
af þeim hjónum, Guðmundi Sal-
ómoni Ásgeirsyni (Gumma
Sala) og Ingu Siggu, frá Ísa-
fjarðarárum okkar. Það var
einmitt Gummi Sali sem sótti
búslóðina okkar í Hrútafjörð
árið 1995 og flutti okkur vestur
og síðan til Reykjavíkur að sjö
árum liðnum. Kynnin við Ingu
Siggu voru einstaklega ljúf og
gefandi þar sem hún var kenn-
ari við Grunnskólann á Ísafirði.
Hún var þá að ljúka kennara-
námi og horfði björtum augum
til framtíðar. Inga Sigga var
einn af þeim kennurum sem
helga sig starfinu, stöðugt vak-
andi og áhugasöm um að gera
Látinn er í Nes-
kaupstað góður vin-
ur, Guðmundur
Bjarnason, fyrrver-
andi bæjarstjóri. Guðmundur var
einstaklega ljúfur og skemmtileg-
ur maður sem gott var að vera í
návist við. Hann sá alltaf hinar
spaugilegu hliðar tilverunnar.
Það yljar manni að rifja upp
þær skemmtilegu stundir sem við
áttum saman.
Kynni okkar hófust árið 1986
þegar ég kom til starfa hjá Síld-
arvinnslunni. Næstu 13 árin vor-
um við meira og minna í daglegu
sambandi, bæði beint og óbeint.
Fyrstu fimm árin var Guðmundur
einn af nánustu samstarfsmönn-
Guðmundur
Bjarnason
✝ GuðmundurBjarnason
fæddist 17. júlí
1949. Hann lést 11.
júlí 2015.
Útför Guð-
mundar fór fram
18. júlí 2015.
um mínum sem
starfsmannastjóri
SVN og eftir að
hann varð bæjar-
stjóri var Sveina mín
heitin orðin einn af
hans nánustu sam-
starfsmönnum sem
félagsmálastjóri
bæjarins. Guðmund-
ur kom í stjórn Síld-
arvinnslunnar eftir
að hann hætti sem
starfsmaður og þannig áttum við
áfram mikil samskipti sem aldrei
bar skugga á. Á þessum árum
voru miklar sviptingar í atvinnu-
lífinu og þurfti oft að taka erfiðar
og stefnumótandi ákvarðanir. Það
var einstaklega gott að kryfja til
mergjar ákvarðanir um framtíð-
arrekstur SVN með Guðmundi
sem stjórnarmanni. Það var líka
skemmtilegt að ræða framtíð-
arþróun í byggðamálum við Guð-
mund. Hann hafði mjög einbeitta
skoðun á að samfélögin eystra
þyrftu að standa saman til að ná
árangri fyrir fjórðunginn. Um
þetta voru alltaf skiptar skoðanir
en sem betur fer náðist að leggja
hrepparíginn til hliðar þegar
virkilega þurfti á að halda þó hann
hverfi væntanlega ekki fyrr en
með næstu kynslóð. Það fór vel á
því að Guðmundur yrði fyrsti bæj-
arstjóri hins sameiginlega sveit-
arfélags, Neskaupstaðar, Eski-
fjarðar og Reyðarfjarðar.
Við Guðmundur fórum árlega
saman í góðum hópi í veiðiferð í
Selá í Vopnafirði. Þetta var oftast
með fyrstu hollum sumarsins og
gátu veður stundum verið válynd
sem bara jók á fjölbreytileikann. Í
veiðihúsinu á kvöldin var alltaf
mjög glatt á hjalla og flugu þá
margar skemmtisögur og var
Guðmundur þar engum líkur. Ég
sá Guðmund síðast um síðustu
verslunarmannahelgi þegar við
Berglind heimsóttum hann og
Klöru í Heiðarbýli. Það var frá-
bær stund og þá voru ýmsar sög-
ur rifjaðar upp, m.a. úr Selárferð-
um. Ekki trúði ég því að þetta yrði
okkar síðasti fundur. Ég vil þakka
þér, Guðmundur, fyrir okkar góða
samstarf í gegnum tíðina og þær
gleðistundir sem þú gafst okkur
öllum. Elsku Klara, Bogga, Ívar
og fjölskylda, ég sendi ykkur okk-
ar innilegustu samúðarkveðjur
við fráfall mikils höfðingja.
Finnbogi Jónsson.
Guðmundur Bjarnason og
Smári Geirsson voru lengi leið-
togar Alþýðubandalagsins í Nes-
kaupstað ásamt Hjörleifi Gutt-
ormssyni; sannarlega ólíkir menn
en þeir héldu því merki á loft sem
þeir höfðu hafið til skýjanna
Bjarni Þórðarson, Jóhannes Stef-
ánsson og Lúðvík Jósepsson. Al-
þýðubandalagið og þar áður
Sósíalistaflokkurinn höfðu meiri-
hluta í Neskaupstað í hálfa öld.
Neskaupstaður var stolt okkar fé-
laganna um allt land. Minn for-
ystutíma í Alþýðubandalaginu í 21
ár hafði ég það fyrir reglu að
heimsækja Neskaupstað til að
tala við félagana um fyrirtækið og
fólkið, til að læra og til að vera
með í sköpun, þróun og endurnýj-
un. Við Guðmundur Bjarnason
hittumst ótal sinnum á þessum ár-
um; vissum vel hvor af öðrum og
virtum verk hvor annars. Guð-
mundur hafði ekki einasta
ákveðna pólitíska sýn; hann var
skemmtilegur og fyndinn og sá
skoplegar hliðar tilverunnar.
Þorrablót Alþýðubandalagsins í
Neskaupstað eru enn í fullu fjöri.
Þar áttum við margt sporið og ég
varð þess heiðurs aðnjótandi að
koma þar til ræðuhalda. Það var
gaman. Guðmundur var þrátt fyr-
ir knöpp efni ungur maður einn
þeirra fjölmörgu í Neskaupstað
sem lögðu fram hlutafé í nýja
Þjóðviljahúsið að Síðumúla 6.
Hann var alltaf með. Átök í Al-
þýðubandalaginu eftir minn for-
mannstíma settu merki sitt á okk-
ur öll, en þau snerust ekki um
aðalatriðin. Eftir að ég kom aftur
til verka eftir nokkra fjarveru
kom það í minn hlut að skrifa um
Lúðvík Jósepsson fyrir tímaritið
Andvara. Og hvert leitaði ég þá
nema til Guðmundar og Smára
eins og ekkert hefði ískorist og
tíminn hefði staðið kyrr? Þeir
voru enn þá í hausnum á mér eins
og þeir voru forðum. Traustir
talsmenn byggðarlagsins og sögu
þess, öruggir liðsmenn þeirra
hugsjóna um betra samfélag sem
við eignuðumst allir ungir. Guð-
mundur veitti mér stuðning í
þessum skrifum, ræddi við mig
löngum og þeir félagar útveguðu
mér ómetanleg gögn. Guðmundur
var eins og áður hjálparhella og
félagi; ég vissi að hann var veikur
orðinn, en sögur hans voru óborg-
anlegar og hjálpsemi sem fyrr.
Ég er þakklátur fyrir kynni
mín af Guðmundi Bjarnasyni,
þakklátur fyrir þau störf sem við
unnum saman fyrir hreyfinguna
og góðan málstað. Við Guðrún
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Smellt á Morgunblaðs-
lógóið í hægra horninu efst og
viðeigandi liður, „Senda inn
minningargrein,“ valinn úr felli-
glugganum. Einnig er hægt að
slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum dög-
um fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað get-
ur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skilafrestur
rennur út.
Minningargreinar
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts ástkærs eiginmanns,
föður, tengdaföður, afa, langafa,
langalangafa og vinar,
HENRY SKOVGÅRD JACOBSEN.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk
Heilbrigðisstofnunar Suðurlands fyrir
einstaka umönnun.
Fyrir hönd aðstandenda,
.
Inger Jacobsen.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
SVAVA SUMARRÓS ÁSGEIRSDÓTTIR,
Laugarnesvegi 87,
sem lést á Landspítalanum við Hringbraut
mánudaginn 20. júlí, verður jarðsungin
frá Bústaðakirkju miðvikudaginn 29. júlí kl. 11.
.
Ásgerður Þórisdóttir, Kristinn Sigmundsson,
Esther Þorvaldsdóttir, Guðjón Kristleifsson,
Matthías Gísli Þorvaldsson, Ljósbrá Baldursdóttir,
börn og barnabörn.
Ástkæra móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
SIGFRÍÐ ÞORVALDSDÓTTIR,
lést hinn 22. júlí 2015.
.
Þorvaldur Gunnlaugsson, Katrín Guðjónsdóttir,
Helgi M. Gunnlaugsson, Laufey Hrönn Jónsdóttir,
Heiða Björk Gunnlaugsdóttir
og barnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
MARGRÉT KRISTÍN BJÖRNSDÓTTIR,
Langatanga 2a,
áður Teigagerði 16,
er látin.
Útförin fer fram frá Árbæjarkirkju fimmtudaginn 30. júlí kl. 13:00.
.
Björn Úlfar Sigurðsson, Ósk Halldórsdóttir,
Sigríður M. Sigurðardóttir, Ágúst Benediktsson
og fjölskyldur.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ELSA ÁRNADÓTTIR
frá Bolungarvík,
lést á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða 23. júlí.
Jarðsett verður frá Hólskirkju, Bolungarvík,
fimmtudaginn 30. júlí nk.
kl. 14.
.
Valgerður Gunnarsdóttir,
Guðjón Magnússon, Sopa Thamrongsakulsiri,
Auður Magnúsdóttir, Kristinn Sigurðsson,
Ragna Magnúsdóttir, Jón Bjarni Geirsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar og
tengdamóðir,
RANNVEIG ÓLAFSDÓTTIR,
Lækjasmára 8,
Kópavogi,
lést á líknardeild Landspítalans í
Kópavogi fimmtudaginn 23. júlí.
Útförin verður auglýst síðar.
.
Guðjón Örn Kristjánsson,
Guðbjörg Guðjónsdóttir, Stefán Þórisson,
Ólafur Jón Guðjónsson, Eyrún Ásta Bergsdóttir,
Katrín Guðjónsdóttir,
Erla Björk Guðjónsdóttir, Gunnar Ólafsson,
Örn Már Guðjónsson, Sigrún Svava Gísladóttir
og fjölskyldur þeirra.
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og
langamma,
BIRNA G. ÞÓRLINDSDÓTTIR,
Safamýri 83,
Reykjavík,
lést á Landakoti 24. júlí.
Jarðarförin auglýst síðar.
.
Gunnar Þór Guðmannsson, Sigrún A. Jónsdóttir,
Katrín Ösp Gunnarsdóttir,
Björn Þór Gunnarsson, Helga Elíasdóttir
og barnabarnabarn.