Morgunblaðið - 27.07.2015, Side 23
felur í sér sífelld skýrsluskrif sem
ekki verða tíunduð hér en í meist-
aranáminu sendum við Haraldur
Ólafsson veðurfræðingur frá okkur
lærða grein í erlent veðurfræði-
tímarit um úrkomumælingar mínar
sumarið 2006 í Svarfaðardal og ná-
grenni.“
Fjölbreytt sumarstörf
Á uppvaxtarárunum á Dalvík
vann Sveinn ýmis sumarstörf eins
og gengur: „Flest þau störf voru
tengd sjávarútveginum. Ég á góðar
minningar um þessi störf og þau
færðu mér dýrmæta reynslu sem
hefur fylgt mér út í lífið. Þegar
Vinnuskóla Dalvíkur sleppti fórum
við fjórir félagar að vinna í Salthúsi
KEA síðustu tvær vikurnar áður en
grunnskólinn hófst. Framhalds-
skólakrakkarnir voru allir komnir í
skólann en við fengum aðeins að
vinna þarna hálfan daginn. Ég man
að ég taldi mig vera í góðu formi en
var samt lurkum laminn af sina-
skeiðabólgu eftir að hafa rifið salt-
fisk upp úr stæðum. Næstu sumur
var ég í skreið, saltfiski, á áhalda-
húsi bæjarins sem bauð upp á mjög
fjölbreytt störf, vann í rækjuverk-
smiðjunni, bakaríinu, sundlauginni,
við löndun, netagerð og við smíðar.“
Á háskólaárunum gaf Sveinn sér
svo loks tíma til að eyða sumrunum
á togara: „Það var nokkuð sem ég
hafði alltaf ætlað að prófa en mátti
aldrei vera að því meðan á keppn-
isferlinum á skíðum stóð. Þar varð
ég þess heiður aðnjótandi að fá að
ganga inn í ótrúlega samhenta og
notalega áhöfn Björgúlfs EA 312 og
verða ein af hetjum hafsins um
stund.“
Veturinn áður en Sveinn hóf störf
á Veðurstofunni vann hann við aðal-
áhugamál sitt sem mótað hefur líf
hans hvað mest, en það er skíða-
mennskan. Þá þjálfaði hann yngri
börnin hjá Skíðafélagi Dalvíkur.
Áhugi Sveins á náttúrunni og
snjónum hefur lengi tengst skíða-
mennsku hans og fjallgöngum:
„Náttúrufræðiáhuginn hefur alla
tíð fylgt mér og má það helst þakka
föður mínum sem alltaf hefur verið
duglegur að benda okkur bræðrum
á og útskýra hin ýmsu jarðfræðifyr-
irbæri á ferðum okkar. Ég hef alla
tíð verið skíðamaður og haft mikið
dálæti á snjó og að sama skapi verið
lítt hrifinn af vetrarhlákum. Mikill
áhugi á fjallgöngum hefur svo sam-
tvinnast við skíðamennskuna í
gönguskíða-, og hin síðustu ár, í
fjallskíðaferðum.
Skepnur og búskapur hafa líka
alltaf heillað mig en ég hef frá
barnsaldri notað hvert tækifæri til
að komast í sveitastörf.
Um tíma var ég svo býsna virkur
í skátastarfi og í björgunarsveitinni
á Dalvík en hef því miður ekki gefið
mikið kost á mér í það góða og
skemmtilega starf síðustu árin.“
Fjölskylda
Eginkona Sveins er Þóra Gunn-
steinsdóttir, f. 10.4. 1983, bóndi.
Foreldrar hennar eru Gunnsteinn
Þorgilsson, f. 27.1. 1961, og Dag-
björt Hrönn Jónsdóttir, f. 30.11.
1960, bændur á Sökku í Svarf-
aðardal.
Sveinn og Þóra verða gefin saman
í dag, í Melrakkadal, uppi í fjalli fyr-
ir ofan Efstakot á Dalvík. Það verð-
ur séra Oddur Bjarni Þorkelsson
sem gefur þau saman: „Þetta hefur
staðið lengi til og því ágætt að slá
saman. afmælinu og brúðkaupi.
Okkur fannst líka tilvalið að hafa at-
höfina úti í náttúrunni enda á það
vel við okkur bæði, þó auðvitað
séum við ekkert á móti kirkjum sem
slíkum.“
Börn Seins og Þóru eru Brynj-
ólfur Máni Sveinsson, f. 3.10. 2004;
Dagur Ýmir Sveinsson, f. 14.4. 2006,
og Álfrún Mjöll Sveinsdóttir, f. 4.9.
2012.
Systkini Sveins eru Skafti Brynj-
ólfsson, f. 22.1. 1982, sem stundar
doktorsnám í jöklajarðfræði í
Þrándheimi, og Kári Brynjólfsson,
f. 26.5. 1987, rafvirki í Prómens á
Dalvík.
Foreldrar Sveins eru Brynjólfur
Sveinsson, f. 4.5. 1954, landfræð-
ingur og kennari, og Jóhanna
Skaftadóttir, f. 28.5. 1953, smíða-
kennari á Dalvík.
Úr frændgarði Sveins Brynjólfssonar
Sveinn
Brynjólfsson
Anna Júlíusdóttir
húsfr. á Steinsstöðum
Jóhann Jóhannsson
verkam. á Steinsstöðum á Dalvík
Guðrún Jóhannsdóttir
húsfr. á Dalvík
Skafti Þorsteinsson
b. og netagerðarm. í Efstakoti á Dalvík
Jóhanna Skaftadóttir
húsfr. á Dalvík
Kristrún Sigríður Friðbjörnsdóttir
húsfr. í Efstakoti
Þorsteinn Antonsson
b. og útgerðarm. í Efstakoti á Dalvík
Ólafía Valgerður Hálfdánardóttir
húsfr. á Einarsstöðum
Jón Árelíus Þorvaldsson
b. á Einarsstöðum í Kræklingahlíð
Kristrún Jónsdóttir
húsfr. í Efstalandskoti og á Akureyri
Sveinn Brynjólfsson
b. í Efstalandskoti og vegaverkstj. á Akureyri
Brynjólfur Sveinsson
kennari á Dalvík
Laufey Sumarrós Jóhannesdóttir
húsfr. í Efstalandskoti
Brynjólfur Sveinsson
b. hreppstj. í Efstalandskoti
ÍSLENDINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. JÚLÍ 2015
Haraldur fæddist 27.7. 1891,sonur Björns Jónssonar,hreppstjóra og ættföður
Veðramótaættar í Skagafirði, og
Þorbjargar Stefánsdóttur, systur
Stefáns skólameistara, föður Valtýs,
ritstjóra Morgunblaðsins, föður
Helgu leikkonu og Huldu, fyrrv.
blaðamanns. Systir Valtýs var Hulda
skólastjóri, móðir Guðrúnar Jóns-
dóttur arkitekts. Annar bróðir Þor-
bjargar var Sigurður, pr. og alþm. í
Vigur, faðir Bjarna í Vigur, föður
Sigurðar, ritstjóra Morgunblaðsins,
alþm. og sendiherra, og föður Sig-
urlaugar, fyrrv. alþm., móður Bjarg-
ar Thorarensen lagaprófessors.
Meðal systkina Haralds var Ólaf-
ur, skólastjóri og heiðursborgari
Sauðárkróks, faðir Jóhannesar
Geirs myndlistarmanns, Þorbjargar
skólastjóra og Ólínu Ragnheiðar,
móður Óskars Magnússonar, fyrrv.
útgáfustjóra Morgunblaðsins.
Meðal barna Haralds voru Stefán
yfirlæknir og Jón arkitekt.
Haraldur lauk gagnfræðaprófi,
kennaraprófi og verslunarprófi í
Danmörku 1915. Hann var síðan
sölustjóri hjá KEA til 1924.
Haraldur var mikill frumkvöðull í
leiklist hér á landi. Hann sagði lausu
góðu starfi á Akureyri, fór félítill til
Kaupmannahafnar með fjölskyldu
sína og lærði þar leiklist, fyrstur Ís-
lendinga. Hann útskrifaðist og debu-
teraði í Konunglega leikhúsinu 1927
og varð fyrsti íslenski atvinnuleik-
arinn.
Hann var leikari og leikstjóri hjá
Leikfélagi Reykjavíkur 1927-50, hjá
Ríkisútvarpinu frá stofnun 1930 og
fastráðinn hjá Þjóðleikhúsinu frá
stofnun 1950. Hann var formaður
LA, formaður LR, sat í Þjóðleik-
húsráði, rak einkaleikskóla 1930-50
og kenndi við Leiklistarskóla Þjóð-
leikhússins frá 1950.
Haraldur var stórbrotin persóna,
hispurslaus, hressilegur í framkomu
og mikill húmoristi. Endurminn-
ingar Haralds, Sá svarti senuþjófur,
voru skráðar af Nirði P. Njarðvík.
Haraldur lést aðfaranótt 9.12.
1967 eftir að hafa farið á kostum á
sviði sem Jón bóndi í Fjalla-Eyvindi
kvöldið áður.
Merkir Íslendingar
Haraldur
Björnsson
90 ára
Auðbjörg Stefánsdóttir
Ragnheiður Eyjólfsdóttir
85 ára
Benedikt Frímannsson
Elísabet Auður Ólafsdóttir
80 ára
Guðný Hrefna Jónsdóttir
Guðrún E. Skúladóttir
Hólmfríður S.
Guðmundsdóttir
Margrét Jómundsdóttir
Matthildur Guðný
Guðmundsdóttir
Rafn Hjartarson
75 ára
Birgir Guðjónsson
Filippía Jónsdóttir
Guðrún J. Jónsdóttir
Ragnhildur Theódórsdóttir
Þórhildur Elíasdóttir
70 ára
Ásmundur Reykdal
Birgir Einarsson
Hilmar Sigurðsson
Margrét Sverrisdóttir
Rósa Júlíusdóttir
60 ára
Agrita Kezbere
Áslaug Guðmundsdóttir
Bjarni Smári Jónasson
Guðmundur Heiðar
Óskarsson
Gústaf Valberg
Halla Tómasdóttir
Hugrún Gunnarsdóttir
Jakobína Björg Ketilsdóttir
Lúðvík Guðberg
Gunnarsson
Oddfríður Sæby Jónsdóttir
Ragnheiður S.
Jóhannsdóttir
Sigurbjörn S. Gústafsson
Smári Björgvinsson
Úlfar Garðarsson
Þórólfur Óskarsson
50 ára
Aðalbjörn Þorkell
Baldursson
Elfa Karólína Egilsdóttir
Guðlaug Bjarnadóttir
Guðmundur S Borgarsson
Hrönn Unnarsdóttir
Jón Smári Valdimarsson
María Guðrún Jónsdóttir
Ómar Ástþórsson
Sigrún Guðmarsdóttir
Trausti Þórisson
40 ára
Finnbogi Valur Reynisson
Guðrún Bergsteinsdóttir
Hlynur Torfi Torfason
Ivica Gregoric
Jóhanna Sigríður
Viggósdóttir
Julie Okechi Eme Omoniyi
Vidmantas Milasiunas
Þórunn Baldvinsdóttir
30 ára
Birgir Smári Ársælsson
Halldóra Sif Halldórsdóttir
Hildur Gunnarsdóttir
Jóhannes Helgason
Katarzyna Ostrowska
Signý Sigurðardóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Þóra ólst upp í
Reykjavík, Edinborg og
Stokkhólmi, býr í Reykja-
vík, lauk BSc-prófi í sál-
fræði frá HÍ og starfar hjá
INNOENT.
Maki: Bragi Reynisson, f.
1985, framkvæmdastjóri.
Synir: Hugi, f. 2012, og
Breki, f. 2013.
Foreldrar: Guðrún Þóra
Magnúsdóttir, f. 1961,
jarðfræðingur, og Óskar
Knudsen, f. 1959, jarð-
fræðingur.
Þóra
Óskarsdóttir
30 ára Pétur Örn ólst upp
í Hafnarfirði, er þar bú-
settur, lauk prófum í raf-
eindavirkjun frá Iðnskól-
anum í Reykjavík og
stundar nú nám í tölv-
unarfræði við HR.
Maki: Íris Ösp Ólafsdóttir,
f. 1989, fjármálaráðgjafi.
Foreldrar: Guðmundur
Ingvason, f. 1936, mál-
arameistari, og Margrét
Kolbeinsdóttir, f. 1948,
fyrrv. kaupmaður. Þau eru
búsett í Hafnarfirði.
Pétur Örn
Guðmundsson
40 ára Ingibjörg ólst upp
í Hafnarfirði, býr þar, lauk
prófi í viðskiptafræði frá
Háskólanum á Bifröst og
er sérfræðingur á Hag-
stofu Íslands.
Maki: Jón Björn Æv-
arsson, f. 1964, tækja-
stjóri hjá Eimskip.
Dóttir: Lilja Hrönn Jóns-
dóttir, f. 2013.
Foreldrar: Sólveig Magn-
úsdóttir, f. 1941, og Sig-
urður Magnússon, f.
1936.
Ingibjörg
Sigurðardóttir
Kvarnir/Brimrás/Pallar ehf | Akralind 8 | 201 Kópavogur | sími 564 6070
Fax 564 6071 | kvarnir@kvarnir.is | www.kvarnir.is | www.pallar.is
Þarftu að framkvæma?
Við eigum pallana fyrir þig
mbl.is/islendingar