Fréttablaðið - 29.04.2016, Page 2
Veður
Enn er útlit fyrir norðvestlæga átt
og snjókomu norðan til, en þó
minnkandi og léttir jafnvel til í kvöld.
Sunnan til er heldur hægari vindur
og bjartviðri, en þó er útlit fyrir lítils-
háttar skúrir eða él við suðaustur-
ströndina. sjá síðu 22
Stelpur taka yfir tæknigeirann
Um fjögur hundruð stelpur á grunnskólaaldri og tuttugu fyrirtæki í tæknigeiranum komu saman í HR í gær og kynntu sér tæknigreinar. Markmiðið
er að vekja áhuga stúlkna á tækninámi og -greinum auk þess að brjóta niður þá staðalímynd sem fylgir tæknigeiranum. Fréttablaðið/Vilhelm
Grillbúðin
Smiðjuvegi 2, Kópavogi - (við hliðina á Bónus) - Sími 554 0400
Þýski grillframleiðandinn Landmann er 50 ára
gasgrill 3ja brennara
Niðurfellanleg
hliðarborð
4 litir
• 3 brennarar úr ryðfríu stáli
• Postulínsemalerað eldhólf
• Grillgrindur úr pottjárni
• PTS hitajöfnunarkerfi
• Kveiking í öllum tökkum
• Niðurfellanleg hliðarborð
• Tvöfalt einangrað lok
• Postulínsemaleruð efri grind
• Hitamælir
• Auðveld þrif - Bakki fyrir fitu
undir öllu grillinu
• Afl 10,5 KW
Á R A
grillbudin.is
AFMÆLISTILBOÐ
79.900
VERÐ ÁÐUR 98.900
Dómsmál Fjarskipti hf., móður-
félag Vodafone, var á þriðjudaginn
sakfellt í þremur tilfellum af fimm
vegna gagnalekans sem átti sér stað
í nóvember 2013.
Fimm einstaklingar kærðu Fjar-
skipti á grundvelli þess að persónu-
legum upplýsingum um þau var lekið
eftir að tölvuþrjótur hafði brotist inn
á vefsvæði Vodafone og lekið upp-
lýsingum um smáskilaboð sem send
voru af vefnum. Í tveimur tilfellanna
var fyrirtækið sýknað.
Hæstu skaðabæturnar voru
greiddar konu sem fór fram á 90
milljónir í miskabætur frá Fjar-
skiptum. Henni voru dæmdar 1,5
milljónir í skaðabætur og 800 þúsund
krónur í málskostnað.
Í lekanum kom fram að 2.566
skilaboðum er vörðuðu konuna var
lekið á netið. Í mörgum tilfella var
um að ræða afar persónulegar upp-
lýsingar er vörðuðu meðal annars
börn stefnanda, kynfæri hennar og
kynlíf, meinta áfengis- og lyfjamis-
notkun hennar og fjármál hennar. Að
auki var fjallað um fyrirtækjarekstur
hennar, skattamál og forsjármál.
Kveðst stefnandi hafa verið úti-
lokuð frá því að afla sér tekna með
vinnuframlagi frá því að upplýsing-
arnar birtust, hún hafi verið óvinnu-
fær af bæði andlegum og líkamlegum
ástæðum. Hún hafi haft verulegan
kostnað af því að flytja milli landa
með fjölskyldu sína, en með því að
flytja af landi brott hafi hún gert
ráðstafanir til að lágmarka tjón sitt,
sem hefði ella orðið annað og meira.
Þá hafi upplýsingar um hana, börn
hennar og heimilisfang verið opin-
beraðar á internetinu eftir birtingu
gagnanna.
Þá voru öðrum kæranda dæmdar
200 þúsund krónur í skaðabætur og
400 þúsund í málskostnað. Sá hafði
gert kröfu upp á 600 þúsund krónur
en í lekanum komu fram upplýsingar
um trúarskoðun og fjárhagsörðug-
leika viðkomandi.
Annar stefnandi fór fram á tólf
milljónir króna en var dæmd millj-
ón í skaðabætur og 600 þúsund í
málskostnað. Í því tilfelli láku upp-
lýsingar um skilnaðarmál viðkom-
andi og eiginkonu hans. Málið hafi
verið sérlega slæmt þar sem þau hafi
viljað halda ágreiningsefni frá syni
sínum. „Þetta hafi verið gríðarlega
óþægilegt og virðing hans hafi beðið
hnekki. Þá hafi skilaboð til kunningja
verið rangtúlkuð á þann veg að þeir
tengdust fíkniefnamálum og kvaðst
stefnandi hafa orðið fyrir óþægind-
um og spurningum vegna þess, m.a.
frá fjölmiðlum og vinnufélögum,“
segir í dómnum.
Í einu sýknutilfelli hafði stefnandi
kært vegna leka á skilaboðum sem
hann fékk send frá Samfylkingunni
og Framsóknarflokknum. Hann
vildi meina að lekinn hafi látið það
líta út fyrir að hann væri skráður í
stjórnmálasamtök og að ekki eigi að
opinbera stjórnmálaskoðanir með
þessum hætti. – srs
Leki olli stefnendum
miklum erfiðleikum
Þrír einstaklingar fengu greiddar skaðabætur frá Vodafone vegna gagnalekans
árið 2013. Vodafone sýknað í tveimur málum. Skilnaðarmál, fjárhagsörðugleik-
ar og kynlífsskilaboð opinberuðust í lekanum. 1,5 milljónir hæstu bæturnar.
stjórnmál Árni Páll Árnason hefur
ákveðið að gefa kost á sér til endur-
kjörs sem formaður Samfylkingar-
innar. Þetta tilkynnti hann á blaða-
mannafundi í þinghúsinu í gær.
Hann segir í bréfi til félagsmanna
Samfylkingarinnar að hann hafi
skoðað feril sinn í leit að svari við
því hvort hann ætti að gefa kost
á sér aftur. Niðurstaða hans er að
gildi hans og pólitísk hugsun hafi
ekki goldið afhroð.
Í framboði til formanns Sam-
fylkingarinnar eru, auk Árna,
Oddný Harðardóttir, Helgi Hjörvar,
Magnús Orri Schram og Guðmund-
ur Ari Sigurjónsson. – srs
Árni Páll ætlar
að taka slaginn
Vodafone átti undir högg að sækja eftir lekann umfangsmikla árið 2013.
Fréttablaðið/Daníel
Fyrirtæki Hagnaður varð af rekstri
365 miðla á árinu 2015 að fjárhæð
22 milljónir króna miðað við 1.360
milljóna króna tap árið áður.
Tekjur voru 11.160 milljónir
króna og rekstrarhagnaður fyrir
afskriftir og fjármagnsliði nam 955
milljónum króna. Heildareignir
samstæðunnar námu í árslok 12.880
milljónum króna. og skuldir 10.033
milljónum króna. Eigið fé nam
2.847 milljónum króna.
„Starfsfólk 365 hefur náð frábær-
um árangri í störfum sínum á árinu
2015,“ segir Sævar Freyr Þráinsson
forstjóri 365 miðla. „Félagið sýndi
afar jákvæðan rekstrarhagnað og
ber síðasta rekstrarár með sér mik-
inn viðsnúning í rekstri miðað við
fyrra ár. Við höfum fest rætur okkar
á íslenskum fjarskiptamarkaði og
verið þar leiðandi með verðbreyt-
ingar til hagsbóta fyrir viðskiptavini
okkar.“
Sala jókst um tæp 11 prósent og
nam 11.160 milljónum króna, sam-
anborið við 10.079 milljónir króna
á árinu 2014. Töluverð aukning varð
í fjarskiptatekjum á árinu 2015 eftir
sameiningu við Tal á miðju ári 2014.
Sala jókst um 4,8 prósent af afþrey-
ingarhluta starfsemi 365. – srs
Tapi 365
snúið við
í hagnað
Félagið sýndi afar
jákvæðan rekstrar-
hagnað og ber síðasta
rekstrarár með sér mikinn
viðsnúning í rekstri miðað
við fyrra ár.
Sævar Freyr
Þráinsson,
forstjóri 365 miðla
Árni Páll Árnason,
formaður Sam-
fylkingarinnar
2.566
skilaboð er vörðuðu einn
stefnanda láku á netið.
2 9 . a p r í l 2 0 1 6 F Ö s t u D a G u r2 F r é t t i r ∙ F r é t t a B l a ð i ð
2
9
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:3
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
4
1
-3
3
F
8
1
9
4
1
-3
2
B
C
1
9
4
1
-3
1
8
0
1
9
4
1
-3
0
4
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
7
2
s
_
2
8
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K