Fréttablaðið - 29.04.2016, Side 41
Húsin eru steypt
við bestu mögu-
legu aðstæður, sem
tryggir gæði einingana.
Með einingalausnum
fækkar óvissuþáttum og
húsin eru reist og tilbúin
á styttri tíma, sem lækk-
ar fjármagnskostnað.
Pétur Hans Pétursson
BM Vallá rekur einingaverksmiðj-
una Smellinn á Akranesi ásamt
steypustöð. Framleiðsla á Smell-
inn-einingum hófst árið 2000 og
í deildinni starfa nú 35 manns
að meðtalinni hönnunardeild og
fer starfsfólki fjölgandi. „Við hjá
BM Vallá höfum verið lánsöm að
geta rekið einingaverksmiðju og
steypustöð á Akranesi í mörg ár.
Hér hefur verið stöðugt vinnu-
afl og við erum með góðar teng-
ingar á Akranesi og öllu Vestur-
landi og höfum byggt fjöldann
allan af ýmiss konar byggingum
úr einingum og steypu. Allt frá
sumarhúsum, einbýli, iðnaðar-
húsnæði og ekki síst landbún-
aðarbyggingum víða um hérað-
ið,“ segir Pétur Hans Pétursson,
framkvæmdastjóri einingafram-
leiðslu Smellins. Hann bætir við
að mikil ánægja sé með staðsetn-
ingu verksmiðjunnar. „Við lítum á
þetta sem mikið framtíðarsvæði
og erum að leita leiða til að auka
við framleiðsluna, því markaður-
inn er til staðar.“
Pétur Hans segir mikinn árang-
ur hafa náðst í sölu á einingum á
undanförnum árum og að verk-
efnastaðan sé mjög góð. „Biðtím-
inn eftir einingum er allt að sex
til átta mánuðir í dag. Við höfum
þó svigrúm til að bæta við á þeim
tíma en það fer eftir gerð verkefn-
isins hverju hægt er að bæta við.
Okkar meginmarkmið er þó alltaf
að gæði séu ofar magni.“
Smellinn forsteyptar eininga-
lausnir frá BM Vallá eru traust-
ur og fljótlegur kostur fyrir fólk
í framkvæmdahug að sögn Pét-
urs Hans. „Húsin eru steypt við
bestu mögulegu aðstæður, sem
tryggir gæði eininganna. Með
einingalausnum fækkar óvissu-
þáttum, tímaáætlanir geta haldið
betur og húsin eru reist og tilbú-
in á styttri tíma, sem lækkar fjár-
magnskostnað. Við framleiðum
margs konar einingar, þar á meðal
fyrir raðhús, parhús, einbýlishús,
iðnaðar húsnæði og landbúnaðar-
byggingar. Einnig höfum við hasl-
að okkur sterkan völl í hótelgeir-
anum úti á landi og erum þar að
selja sérstakt húseiningakerfi sem
heitir Smellinn+. Í Smellinn+ hús-
kerfinu erum við að skila bygg-
ingunni fullhannaðri og uppsettri
með sökklum, botnplötu, útveggj-
um, innveggjum, þaki og glugg-
um,“ útskýrir Pétur Hans „Við
hjá BM Vallá höfum nýlokið við að
klára viðbyggingu við Hótel Dyr-
hólaey sem er tólf hundruð fer-
metra bygging á tveimur hæðum
og var reist á þremur mánuðum.
Við erum að reisa aðra núna, að-
eins minni, á Hala í Suðursveit.
Smellinn+ kerfið er hugsað þannig
að það þurfi að steypa sem minnst
á verkstað.“
Pétur Hans nefnir einnig að
stór hluti af framleiðslu BM Vall-
ár séu ýmiss konar einingar í stað-
steypt hús og þar sé helst að nefna,
loftaplötur, stiga, palla, svalir og
ýmsar sérlausnir. „Svo erum við
auðvitað með múrefni, hellur og
garðeiningar til að ljúka verk-
inu. Við leggjum mikla áherslu á
að skila til viðskiptavina okkar
heildar lausnum. Við seljum ekki
aðeins einingarnar heldur getum
við líka sett þær upp ef viðskipta-
vinurinn óskar þess. Markmið
okkar hjá BM Vallá er að vera með
fjölbreytt vöruúrval á hverjum
tíma og ekki síst að veita faglega
þjónustu viðskiptavinum okkar til
hagsbóta.“
Allt sem þarf til húsbyggingar
BM Vallá býður upp á heildarlausnir í öllu sem tengist steypu og einingahúsum. Hjá fyrirtækinu má fá allt sem þarf til að byggja hús hvort
sem það eru einingarnar sjálfar, steypa,múrefni, múrkerfi, flot eða ál-trégluggar. Einnig fást þar hellur og garðeiningar til að ljúka við verkið.
Hér má sjá viðbyggingu við Hótel Dyrhólaey sem reist var á þremur mánuðum. Pétur Hans Pétursson, framkvæmdastjóri einingaframleiðslu Smellins, segir markmið
BM Vallár að vera með fjölbreytt vöruúrval og að veita faglega þjónustu. MYND/ERNIR
Flatey í Breiðafirði er ein af nátt-
úruperlum landsins. Þangað er
gaman að koma. Hægt er að kom-
ast þangað frá Stykkishólmi með
ferjunni Baldri. Á eyjunni búa
aðeins fimm einstaklingar allt
árið um kring en á sumrin bætist
í þann hóp. Í Flatey virðist sem
tíminn hafi staðið í stað. Falleg,
litrík, gömul hús setja svip sinn á
umhverfið. Í Flatey er starfandi
eitt hótel.
Í Flatey er margt sem hægt er
að skoða, einstök náttúra, fjöl-
skrúðugt fuglalíf, gamla kirkjan
sem prýdd er listaverki eftir Balt-
asar Samper og eiginkonu hans,
Kristjönu Samper. Myndefnið er
sótt í eyjabúskapinn og mannlíf í
vestanverðum Breiðafirði. Flatey
hefur verið kirkjustaður frá fornu
fari. Núverandi kirkja var vígð
árið 1926 og er opin á sumrin.
Kyrrðin er einstök í Flatey og
þangað er hægt að sækja sér orku
og hugmyndaauðgi. Flatey var
mikill verslunarstaður í eina tíð.
Kaupfélag var starfandi þar á ár-
unum 1920-1953.
Í Flatey hafa verið teknar
kvikmyndir og þættir. Má þar
nefna Nonna og Manna, Ung-
frúna góðu og húsið og Brúðgum-
ann. Þorpið er ein heildstæðasta
þorpsmynd sem varðveist hefur
á Íslandi.
Náttúruperlan Flatey
Í Flatey á Breiðafirði.
Vatnshellir er vinsæll og aðgengi-
legur hraunhellir í suðurhlíðum
Purkhólahrauns á Snæfellsnesi.
Ekki er ljóst hversu gamall hell-
irinn er en hann er talinn vera
um 5-8.000 ára gamall og að hann
hafi myndast við eldgos í Purkhól-
um ofan við Malarrif á utanverðu
Snæfellsnesi.
Hellismunninn er í niðurfalli í
hrauninu við þjóðveginn, skammt
frá Purkhólum, en Purkhólahraun
er talið eitt hellaríkasta hraun á Ís-
landi.
Frá hellismunnanum ganga
álmur í gagnstæðar áttir en Vatns-
hellir sjálfur er um 200 metra
langur. Víða er hátt til lofts og
vítt til veggja og hefur hann verið
gerður aðgengilegri með stórum
hringstiga. Árið 2010 var hellin-
um lokað vegna verndunarsjónar-
miða og hefur því verið boðið upp
á skipulagðar ferðir í Vatnshelli
síðan í fylgd leiðsögumanna.
Flestir ættu að ráða við heim-
sókn í hellinn þótt ekki sé mælt
með því að fólk sem á erfitt með
gang í myrkri eða á ósléttu fari
þangað inn. Þar sem hitastig í hell-
inum er yfirleitt rétt yfir frost-
marki allt árið er mælt með hlýj-
um fatnaði og góðum gönguskóm.
Ekki má gleyma hönskum eða
vettlingum, bæði fyrir öryggið en
líka fyrir þægindin þar sem beitt
hraunið getur farið illa með óvarð-
ar hendur. Heimild: www.west.is.
Stórkostlegur hellir
Kynningarblað KoMDu VEStuR
29. apríl 2016 13
2
9
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:3
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
4
1
-7
4
2
8
1
9
4
1
-7
2
E
C
1
9
4
1
-7
1
B
0
1
9
4
1
-7
0
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
7
2
s
_
2
8
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K