Morgunblaðið - 01.07.2015, Síða 1

Morgunblaðið - 01.07.2015, Síða 1
M I Ð V I K U D A G U R 1. J Ú L Í 2 0 1 5 Stofnað 1913  152. tölublað  103. árgangur  HEILLAÐUR AF HELGI KIRKJUGARÐA ALLT UNDUR- SAMLEGT Á ÍSLANDI LÖGREGLUKONUM FJÖLGAR HÆGT LJÓSMYNDABÓK 30 FRÆÐSLUÁTAK 18FRIÐSÆLD OG FEGURÐ 10 Skýrsla um stöðu jafn- réttismála í lögreglunni  Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og við- skiptaráðherra, skoðar mögu- leikann á því að orkufyrirtæki ríkisins hætti að selja eiginleika orku og dragi sig úr upprunavott- unarkerfinu. Eft- ir atvikum kæmi til greina að ræða við aðra orkusala um að hverfa frá þeirri stefnu. Þetta er þó háð þeim fyrirvara að í ljós komi að tekjur af sölu á upp- runaábyrgðum séu litlar og að hagsmunum gæti verið fórnað. »14 Ríkið dragi sig út úr upprunavottun orku Ragnheiður Elín Árnadóttir Andri Steinn Hilmarsson Brynja Björg Halldórsdóttir Víða er gisting uppbókuð í bændagistingu í sumar. Þetta gildir til dæmis um Mývatns- svæðið, Suðurland og við Gullfoss og Geysi. Þetta segir Sævar Skaptason, framkvæmda- stjóri Ferðaþjónustu bænda, og bætir við að það sé hreinlega „allt brjálað að gera“. Ferðaþjónusta bænda býður upp á 5.500 gistirými á 184 bæjum um allt land. Segir Sævar slegist um herbergi á Suðurlandi suma daga. Undir þetta tekur Óðinn Eymundsson á Hótel Höfn. Hann segir sumarið fara afar vel af stað en aukning í júní nemi 30 prósentum á milli ára. Þá sé fyrirséð að hótelið verði uppbókað út sumarið. Á hótelinu eru 68 her- bergi og þar geta gist allt að 137 gestir í einu, sé hótelið fullnýtt. Hildur Ómarsdóttir, forstöðumaður sölu- og markaðssviðs Icelandair hótela, sem reka Icelandair Hotels og Eddu hótel, segir nýt- ingu gistirýma á landsbyggðinni lengi hafa verið mjög góða yfir sumartímann. „Við erum með toppnýtingu í ár, rétt eins og í fyrra. Við teljum þó markverðara að ársnýting á lands- byggðinni er að stórbatna, úr 40% í hátt í 60%.“ Hún segir ársnýtinguna það sem raun- verulega skipti máli í samanburði á milli ára. „Allt brjálað að gera“  Stundum slegist um bændagistingu á Suðurlandi  30% aukning í júní á milli ára hjá Hótel Höfn  Ársnýting á landsbyggðinni að snarbatna Morgunblaðið/Sigurður Bogi Ferðaþjónusta Skaftafellsþjóðgarður nýtur mikilla vinsælda meðal ferðamanna. Gistirými á landsbyggðinni » Ferðaþjónusta bænda er með 5.500 gistirými á 184 bæjum um allt land. Gistirýmunum hefur fjölgað um 130-150 árlega undanfarin ár. » Á Hótel Höfn eru 68 herbergi með gistingu fyrir 137 manns. » Fyrirséð er að hótelið verði uppbókað í allt sumar en 90% gesta eru erlendir ferðamenn. MSlegist um herbergin »4 Hvalur 9 kom í gærkvöldi með fyrstu langreyð- ina á þessari vertíð til vinnslu í Hvalstöðinni í Hvalfirði. Tveir menn reru á litlum báti í kringum hvalbátinn og hvalinn þegar hann kom til hafnar og köstuðu reykblysum í sjóinn. Virtust þeir vera að láta í ljós skoðun sína á hvalveiðum. Eftir að skepnan hafði verið dregin upp á planið tóku hvalskurðarmenn til við sín verk. Þótt þetta sé fyrsti hvalur ársins eru þetta allt vanir menn sem kunna handtökin. Þeir þurftu að hafa hraðar hendur því hinn hvalbáturinn, Hvalur 8, dólaði í kjölfarið með annað dýr sem einnig veiddist seint í fyrrakvöld djúpt úti af landinu. Þótt veður hafi ekki leikið við hval- fangara náðu þeir að veiða tvo hvali daginn sem þeir komu á miðin. Hval hf. er heimilt að veiða 154 langreyðar í sumar, auk þess kvóta sem geymdur var frá fyrra ári. Í fyrrasumar veiddust 137 dýr þrátt fyrir að veður væri óhagstætt. Nánar á mbl.is í dag. Morgunblaðið/Golli Fyrsta langreyðurin dregin á land Mótmælt í gærkvöldi þegar hvalbátarnir komu með fyrstu hvali vertíðarinnar til vinnslu í Hvalstöðinni  Einhver upp- rekstur er hafinn á að minnsta kosti þremur af- réttum þótt Landgræðslan telji að gróður sé það mikið á eftir, miðað við síðustu ár, að afréttirnir þoli ekki beit. Fréttir hafa borist af upprekstri á afrétti Mývetninga og Fljótshlíð- inga og að einn bóndi hafi byrjað að flytja fé á Lónsöræfi í maí. „Það segir sig sjálft að á þessu síðbúna vori og sumri getur ekki verið kom- inn gróður sem þolir beit á afrétti. Ég efast ekki um að sauðféð hefur alveg lifað þetta af, en þetta er sið- leysi gagnvart gróðrinum,“ segir Sveinn Runólfsson landgræðslu- stjóri við Morgunblaðið. »6 „Þetta er siðleysi gagnvart gróðri“ Kind Halda þarf fé lengur heima við.  Jón Atli Benediktsson, nýr rektor Háskóla Íslands, segir tækifæri felast í auknu sam- starfi háskólans við fyrirtæki og stofnanir. „Ég vil leggja áherslu á tengingu háskólans við íslenskar stofnanir og atvinnulíf. Þannig skapast miklir möguleikar á raunhæfum verkefnum í samstarfi við fyrirtæki og einnig á atvinnu fyrir nemendur í framtíðinni,“ seg- ir Jón Atli en hann tók við embættinu í gær af Kristínu Ingólfsdóttur. Hann segir auknar fjárveitingar hins opin- bera vera forsendu framþróunar á háskóla- stiginu. Eftir niðurskurðartímabil sé bata- ferli skólans hafið. Skólinn þurfi að vera samkeppnishæfur á alþjóðavettvangi. »12 Morgunblaðið/Kristinn Nýr rektor Ráðherrar skoða hálskeðju nýs háskóla- rektors, Jóns Atla Benediktssonar, við athöfnina í gær. Tækifæri í auknum tengslum við atvinnulífið

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.