Morgunblaðið - 01.07.2015, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 2015
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Bæjarráð Fljótsdalshéraðs „undrast
mjög þá tregðu sem virðist vera hjá
Íbúðalánasjóði [ÍLS] við að koma
óráðstöfuðum eignum á Egilsstöðum
í sölu eða leigu. Nú þegar mikil eft-
irspurn er eftir húsnæði er hart til
þess að vita að þarna standa enn
nokkrar íbúðir tómar sem Íbúða-
lánasjóður setur ekki út á markað,“
segir í fundargerð ráðsins. Sam-
þykkt var að fela bæjarstjóra að hafa
samband við ÍLS og óska eftir því að
fasteignir í eigu sjóðsins þar í bæ
verði auglýstar til sölu eða leigu.
Björn Ingimarsson, bæjarstjóri
Fljótsdalshéraðs, segir íbúa hafa
sent bæjaryfirvöldum athugasemdir
að undanförnu þar sem athygli er
vakin á tómum íbúðum í eigu sjóðs-
ins, sem ekki séu auglýstar.
„Við viljum bara leggja áherslu á
að Íbúðalánasjóður auglýsi þessar
eignir því það er mikil eftirspurn eft-
ir lausum eignum á svæðinu,“ segir
Björn. Bendir hann á að í síðustu
viku hafi Íbúðalánasjóður hins vegar
auglýst nokkrar eignir í bænum.
Fimm hvorki í sölu né leigu
Gunnhildur Gunnarsdóttir, for-
stjóri Íbúðalánasjóðs, segir sjóðinn
nú eiga alls 51 íbúð á Egilsstöðum.
Af þeim eru 39 íbúðir í leigu, 7 eru
skráðar til sölu hjá fasteignasölum á
svæðinu og fimm eru hvorki í sölu né
leigu. „Þær eru á leiðinni í sölu en
sumar þeirra þarf að lagfæra,“ segir
Gunnhildur og bætir við að ÍLS vísi
því alfarið á bug að uppi sé einhvers
konar tregða af hálfu sjóðsins í þess-
um málum.
„Við erum að vinna í því að koma
þessum eigum á sölu og er lang-
stærsti hluti þeirra eigna sem við
eigum þarna í leigu,“ segir hún.
Samkvæmt upplýsingum frá
Íbúðalánasjóði hefur sjóðurinn nú
samþykkt kauptilboð í alls 46 íbúðir
af 51 eign sem ÍLS á á Egilsstöðum.
Vinna tilboðsgjafar nú að fjármögn-
un kaupanna.
Bæjarráð hissa
á „tregðu“ ÍLS
Morgunblaðið/Golli
Egilsstaðir Íbúðalánasjóður á þar
51 íbúð og eru 39 þeirra í leigu.
Íbúðalánasjóður á 51 íbúð á Egilsstöðum
Landsdómur hefur ekki verið til um-
ræðu hjá stjórnarskrárnefnd enn
sem komið er. Þetta segir formaður
nefndarinnar, Páll Þórhallsson, en
nefndin vinnur að tillögum að breyt-
ingum á stjórnarskránni.
Bjarni Benediktsson fjár-
málaráðherra segist aðspurður enn
vera þeirrar skoðunar að það eigi að
leggja niður Landsdóm. „Við erum
komin tiltölulega skammt á veg að
móta það sem á að taka við, en um
þetta virðist ríkja nokkuð þver-
pólitísk sátt. Það er ábyrgðarhluti að
láta hjá líða að gera þessa nauðsyn-
legu breytingu,“ segir Bjarni.
Páll segir síðasta vetur hjá stjórn-
arskrárnefnd hafa farið í að ræða hin
svokölluðu forgangsmál; þjóðar-
atkvæðagreiðsluákvæði, umhverfis-
verndarákvæði, ákvæði um þátttöku í
alþjóðasamstarfi og auðlindaákvæði.
„Önnur málefni hafa vart verið
rædd. Aðeins hefur verið byrjað að
ræða málefni framkvæmdavaldsins
en ekki dómstóla. Þau mál bíða,“ seg-
ir Páll. isb@mbl.is
Bjarni
Benediktsson
Ekki enn
til umræðu
Bjarni vill ennþá
afleggja Landsdóm
Páll
Þórhallsson
Laugavegi 7, 101 Reykjavík - Sími: 551-3033 Flo
ttir í fötu
m
Við seljum frægu
buxurnar
– frábært úrval
Bonito ehf. • Friendtex • Faxafen 10 • 108 Reykjavík • sími 568 2870 • www.friendtex.is
Opið mánud. - föstud. 11:00-17:00, lokað laugardaga.
ÚTSALA
Nú eru fallegu
sumarvörurnar okkar
á 40–50% afsl.
Skoðið flottu fötin á friendtex.is
Fyrstur kemur, fyrstur fær
Vegna fréttar í blaðinu í gær um ut-
anlandsferðir ráðherra vill atvinnu-
vega- og nýsköpunarráðuneytið
koma á framfæri þeirri leiðréttingu
að fylgdarmenn iðnaðar- og við-
skiptaráðherra í ferðum voru 33 en
ekki 56 líkt og lesa mátti út úr svari
ráðuneytisins til Alþingis. Skýringin
er sú að ráðherra var talinn með í
hópi fylgdarmanna.
ÁRÉTTING UM UTANFERÐIR
Mistök í svari
ráðuneytis
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Eina breytingin á stjórnskipulagi
Hafnarfjarðarbæjar sem kemur
strax til framkvæmda er flutningur
frístundaheimila og félagsmiðstöðva
á milli sviða, frá fjölskyldusviði yfir í
útvíkkaða fræðslu- og frístundaþjón-
ustu. Það gerist raunar í dag, tveim-
ur dögum eftir að bæjarstjórn sam-
þykkti á aukafundi að ráðast í
breytingar á stjórnskipulagi bæjar-
ins til að hagræða og spara í rekstri.
Rósa Guðbjartsdóttir, formaður
bæjarráðs, segir að nauðsynlegt hafi
verið að láta breytinguna taka gildi
strax til þess að skólastjórnendur
gætu hafið undirbúning að því að
taka við heilsdagsskólanum svokall-
aða af íþrótta- og tómstundaráði.
Stjórnendur bæjarins kynntu breyt-
ingarnar fyrir skólastjórnendum á
fundi í gær og hafði Rósa upplýs-
ingar um að ánægja hefði ríkt í
þeirra hópi með að fá þetta verkefni
til skólanna.
Í seinni áfanga verður önnur starf-
semi flutt til í samræmi við hið nýja
skipulag og skal því lokið eigi síðar
en 15. september nk. Þar er m.a. um
það að ræða að stofna hafnarþjón-
ustu sem sérstakt svið innan bæjar-
kerfisins, við hlið annarra málefna-
sviða, og þar með undir bæjarstjóra
og bæjarstjórn. Rósa segir þetta
kalla á breytingar á hafnarmálasam-
þykkt bæjarins sem þurfi að fara í
gegnum tvær umræður í bæjar-
stjórn. Gengið verður frá þeim mál-
um síðla sumars, er bæjarstjórn
kemur aftur saman eftir sumarfrí.
Færð undir skólana í dag
Fyrsti áfangi skipulagsbreytinga Hafnarfjarðarbæjar kominn til framkvæmda
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Á Strandgötunni Ungir bæjarbúar gera listaverk á götunni.
Fulltrúi frá Actavis fer á fund
bæjarráðs Hafnarfjarðarbæjar á
morgun, að ósk bæjaryfirvalda,
til að gera grein fyrir breyt-
ingum á rekstri fyrirtækisins í
Hafnarfirði.
Eins og fram hefur komið
ákvað fyrirtækið að færa lyfja-
framleiðslu til annarra verk-
smiðja samsteypunnar og
hætta lyfjaframleiðslu á Íslandi.
Um 300 manns starfa við lyfja-
verksmiðjuna í Hafnarfirði og
búa margir starfsmenn þar.
Actavis segir
frá breytingu
BÆJARRÁÐIÐ
„Við köstuðum í gær [mánudag]
djúpt suður af Öræfagrunni og feng-
um 90-100 tonn af nokkuð fallegum
makríl eftir þrjá tíma. Svo var dregið
í 4-5 tíma í nótt en þá var eitthvað
minna. Svo var komin bræla,“ sagði
Hjalti Einarsson, skipstjóri á Faxa
RE-9, sem er að leita á hefðbundinni
makrílslóð, suðaustan við landið.
Þeir á Faxa sigldu enn austar til að
reyna að komast út úr veðrinu. „Ég
kastaði um fimmleytið. Það var ekki
mikið að sjá en eitthvað verður að
prófa,“ sagði Hjalti. Hann segir erfitt
að sjá torfurnar þegar mikil kvika er.
„Það er ábyggilega einhver makríll
hér en það þarf almennilegt veður til
að sjá eitthvað.“
Það var hreinn makríll í köstunum
sem Faxi tók. Hins vegar reyndi Vil-
helm Þorsteins-
son fyrir sér fyr-
ir austan um
helgina og fékk
mest síld.
Enn er ágæt
veiði við Vest-
mannaeyjar.
Skipin hafa mest
haldið sig í
Grindavíkurdýpi
og þar utan við
því veðrið hefur verið skárra þar.
„Þetta hefur verið í ágætu lagi hing-
að til og vonandi fer veiðin að
aukast,“ segir Guðmundur Huginn
Guðmundsson, skipstjóri á Hugin VE
sem er í sínum öðrum túr á vertíð-
inni. Makríllinn er stór, miðað við
árstíma. helgi@mbl.is
Leitað að makríl
fyrir austan land
Veðrið hamlar veiðum hjá Faxa RE
Makríll Vertíðin er
rétt að byrja.