Morgunblaðið - 01.07.2015, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 01.07.2015, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 2015 ✝ Jón BondóPálsson fædd- ist í Vestmanna- eyjum 18. júní 1934. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 22. júní 2015. Foreldrar hans voru Páll Eyjólfs- son, f. 22. septem- ber 1901 á Klöpp í Hafnarhreppi, d. 4. apríl 1986 í Vestmannaeyjum, og Fanný Guðjónsdóttir, f. á Oddsstöðum, Vestmannaeyjum 4. mars 1906, d. 26. nóvember 1994. Systkini Jóns voru Guðjón, f. 1929, d. 2014, Helga, f. 1930, d. 1930, Eyjólfur, f. 1932, d. 1998, Guðlaug, f. 1939, Ásta, f. 1940, Erla, f. 1944, og Tómas Njáll, f. 1950. Hinn 3. júní 1956 giftist Jón Bondó Arndísi Birnu Sigurðar- dóttur, f. 23. júlí 1932 í Reykja- vík. Þau skildu árið 1984. Börn Jóns og Arndísar eru: 1) Halla Guðrún, f. 15. nóvember 1955, sambýliskona Eva María Péturs- dóttir 1990, b) Telma Rut, f. 1992, sambýlismaður Aron Matthíasson, f. 1989, c) Elísa Rut, f. 1992, sambýlismaður Dagur Jónsson, f. 1989, d) Arn- dís Birna, f. 2004. Árið 1997 hóf Jón Bondó sam- búð með Huldu Rögnu Einars- dóttur, f. 31. ágúst 1920. Hennar börn eru: 1) Halldór Sigurður Guðmundsson, f. 6. maí 1942, d. 12. ágúst 2011, kvæntur Berg- ljótu Harðardóttur, f. 13. júní 1945. Þeirra börn: Hulda Björk, Guðmundur og Þröstur Reyr. 2) Jón Guðmundsson, f. 12. ágúst 1943, maki Guðrún Ólafsdóttir, dætur þeirra: Sigrún, Solveig Hulda og Ástríður. 3) Helgi Guð- mundsson, f. 11. maí 1945, maki Anna Magnúsdóttir, f. 1. nóv- ember 1944. Þeirra dætur eru Eydís, Hulda og Rakel. Jón starfaði sem sjómaður lengst af ævi, bæði heima og er- lendis. Hann var einnig virkur í félagsstarfi og réttindabaráttu sjómanna og var m.a. formaður Skipstjóra- og stýrimanna- félagsins Verðanda 1990-1994. Útför hans fer fram frá Há- teigskirkju, miðvikudaginn 1. júlí 2015, kl. 15. maki Gísli Arnar Gunnarsson, f. 28. janúar 1954, þeirra börn: a) Sonja Hlín, f. 1979, maki Grétar Sigfinnur Sigurðs- son, f. 1982, þeirra börn: Vilhelm Bjarki Viðarsson, Íris, Rakel og Unn- ur, b) Viktor Bjarki, f. 1983, maki Álfrún Pálsdóttir, f. 1983, þeirra börn: Halla Elísabet og Arnar Páll. 2) Brynjólfur Gunn- ar, f. 18. janúar 1959. 3) Arndís Lára, f. 7. nóvember 1962, maki Ebenezer G. Guðmundsson, f. 23. maí 1959, þeirra börn a) Björn Steinar, f. 1982, maki Guðrún Kristín Einarsdóttir, f. 1980, þeirra börn: Einar Snær og Sigrún Lára. b) Kristján Örn, f. 1986, sambýliskona Sigurborg Jóna Björnsdóttir, f. 1986 c) Kol- brún Birna, f. 1988. 4) Hallgrím- ur Júlíus, f. 22. júní 1966, maki Hólmfríður Berglind Birgis- dóttir, f. 5. febrúar 1967, þeirra börn: a) Daníel Smári, f. 1990, Klukkan er rúmlega eitt, kaffið eftir matinn bíður í bollanum og síminn hringir. Ég er búinn að bú- ast við þessu símtali eins og und- anfarna daga. Röddin í símanum er hressileg en samt er í henni blanda af þreytu og dapurleika en um leið eftirvænting og von. „Komdu sæll, Halli minn. Held- urðu að þú hafir tíma til að skutl- ast með mig til hennar Huldu á eftir?“ Á þessum nótum byrjuðu margar samverustundir okkar feðga síðustu misserin og á þess- um tíma kynntist ég fyrst þeim manni sem í pabba bjó. Í gegnum veikindi sýndi hann æðruleysi og þolinmæði. Í gegnum veikindi Huldu sinnar sýndi hann ástúð og trygglyndi, rétt eins og hún studdi hann í veikindum hans, merki um kærleikann sem á milli þeirra var. Hann var þakklátur fyrir þá umönnun sem hann hlaut og fólk- ið sem hjúkraði honum sýndi hon- um alúð og umhyggju langt um- fram það sem til er ætlast. Hann var ekki í nokkrum vandræðum með að sjarmera hjúkrunarfræð- ingana með glettni og góð- mennsku. Ef hann var spurður: „Hvernig hefurðu það Jón minn?“ þá var svarað um hæl: „Ég hef það gott. En þú elskan mín?“ Hann fékk blítt bros að launum og þær hristu höfuðið yfir kerskninni í karlinum og vissu hvernig í pott- inn var búið. Pabba fannst gaman að gera vel við sig og aðra. Hann elskaði mat og að búa hann til. Alltaf var ísskápurinn fullur af kjarngóðum íslenskum mat. Hann var ekki í vandræðum með að búa til rúllu- pylsu og kæfu sem voru hreint góðgæti. Ekki kom til greina að fá sendan heim mat í bakka enda maðurinn fullfær um að reiða fram veislu sem hæfði kóngafólki. Það var alltaf nóg til af sæta- brauði og nammi með kaffinu. Engan hitti hann án þess að bjóða í nefið, hvort sem viðkomandi var ungur eða gamall, karl eða kona. Stundum var boðið þegið, og nokkur korn tekin milli fingra, en svo starði fólkið opinmynnt á þeg- ar hann rak myndarlegt nefið á kaf í dósina og fékk sér vænan slurk. Í hvora nös. Aldrei heyrði ég pabba tala illa um nokkurn mann, né taka undir slíkt. Hann var þó ófeiminn að tjá sig um menn og málefni en fór í boltann en ekki manninn, talaði um málefnið en ekki persónuna. Elsku pabbi. Kaffið er í bollan- um en síminn hringir ekki oftar. Það hefði verið gaman að fá fleiri stundir til að heyra sögur af upp- eldisárum í Eyjum, sögur af sjón- um og ævintýrum sem sjó- mennskan færði þér um heim allan. Ég kveð með orðum K.N. og óska þér góðrar ferðar í þinni hinstu ferð. Nú vermir sunna láð og lög og lýsir himingeim. Ég veit það gleði verður þér að vera kominn heim; þó fella vinir tregatár og titra hjörtu mædd; þú fórst á burt með svöðu sár, en sárin eru grædd. Hvað hylur blæjan hrein og dökk? ég heyri að einhver spyr, Hún hjúpar brúði, er blundar vært sem beið þín, eitt sinn fyrr. Æ, kom þú vinur, hægt og hljótt, þér hvíla búin er í annað sinn við hennar hlið, sem heitast unni þér. Þú þráðir hvíld og hvíld þú fékkst, því kvalir sárar leiðst; og eins og hetja á hólmi særð þú dauðans hugrór beiðst. Hvíldu‘ í friði, sofðu sætt! Þín svefnværð huggar mig. unz árdagssunna Guðs í geim með geislum vekur þig. (K.N.) Hallgrímur Júlíus Jónsson. Jón Bondó kom inn í líf okkar fyrir rúmum sautján árum þegar Hulda amma kynnti hann fyrir okkur sem sinn kæra vin. Þau voru þá að hefja sambúð og betri mann hefði hún ekki getað fundið. Hann var hlýr og skemmtilegur og varð strax ómissandi hluti af fjölskyldunni. Samband þeirra ömmu var einlægt og fallegt. Gleðin var ríkjandi og góðlátlegt grín einkenndi samskipti þeirra. Það var alltaf notalegt að koma til þeirra í Álftamýrina. Bondó skellti strax í skonsur sem runnu ljúflega niður og við brottför gaukaði hann stundum að okkur heimagerðri kæfu eða fiskbollum sem hann hafði lagað. Við kaffi- borðið var glatt á hjalla, þau skötuhjúin stríddu hvort öðru og sáu iðulega jákvæðu hliðarnar á málefnum dagsins. Bondó hafði verið sjómaður á sínum yngri ár- um og átti skemmtilegar sögur að segja okkur frá ferðum sínum um Persaflóa, við strendur Afríku og Suður-Ameríku. Þar hafði hann lent í ýmsum hremmingum, en jafnframt kynnst fólki frá öðrum menningarheimum og lýsti hann því af miklu innsæi. Bondó hafði gaman af tré- skurði og var mjög listrænn á því sviði. Hann hafði komið sér upp góðri aðstöðu í kjallaranum í Álftamýrinni og skar þar út alls kyns muni sem gjarnan rötuðu í jólapakkana. Klukkur og mynd- arammar, skurðarbretti og smjör- hnífar eru nú til minningar um hann. Við kveðjum Jón Bondó í dag. Það eru ekki nema átta mánuðir síðan við fylgdum Huldu ömmu þessa sömu leið. Við þökkum fyrir þann tíma sem við fengum með Bondó og kveðjum með söknuði góðan mann. Sigrún, Solveig Hulda og Ástríður Jónsdætur. Við systkinin kveðjum okkar kæra bróður, Jón Bondó Pálsson, með sársauka og söknuði. Bondó barðist við erfið veikindi síðastliðið hálft ár af sínu einstaka æðruleysi. Hann andaðist í faðmi barna sinna og fjölskyldna þeirra, en þau viku vart frá sjúkrabeði hans. Starfsfólk Landspítala – Há- skólasjúkrahúss hafði oft á orði hvað hann væri einstaklega þægi- legur sjúklingur. Alltaf sama jafn- aðargeðið, hvað sem á gekk. Hann var mjög þakklátur öllu því fólki sem annaðist hann og reyndi að gera að gamni sínu fram á síðasta dag. T.d. þegar starfsfólk bauð honum eitthvað að drekka var svarið oftast: „Vodka, takk.“ Bondó fór til sjós aðeins fjórtán ára gamll, en sjómennska varð hans ævistarf, sem hann stundaði bæði hér á landi og víða erlendis. Því varð ekki um mikla skóla- göngu að ræða. Jón stundaði nám við Stýri- mannaskólann í Vestmannaeyjum á árunum 1969 til 1976 og lauk þaðan 2. stigs fiskimannaprófi og starfaði eftir það sem stýrimaður og skipstjóri. M.a. var hann um tólf ára skeið stýrimaður og skip- stjóri erlendis. Bondó þótti flinkur sjómaður og gat gengið í flest verk sem að sjómennsku lutu. Bondó bróðir okkar var hvers manns hugljúfi. Hann hafði ein- staklega gott og skemmtilegt lundarfar og gat komið öllum í gott skap. Allir fóru glaðir af hans fundi, enda var hann vinmargur. Öll börn löðuðust að honum. Bondó hætti sjómennsku um sextugt og fór þá að dunda sér við tréútskurð, sem varð til þess að hann fór að leiðbeina eldri borg- urum í Reykjavík í félagsmiðstöð- inni á Aflagranda. Tæpa tvo síðustu áratugina var Bondó í ákaflega kærleiksríkri sambúð með Huldu R. Einars- dóttur, sem lést síðastliðið ár. Við systkinin minnumst hans sem góðs bróður og vinar. Við sendum okkar innilegustu samúð- arkveðjur til barna hans og fjöl- skyldna þeirra. Far þú í friði okkar kæri bróðir. Guðlaug, Ásta, Erla og Tómas Pálsbörn. Vér göngum svo léttir í lundu, því lífsgleðin blasir oss við. Þessar ljóðlínur Freysteins Gunnarssonar, svo og erlenda lag- ið sem sungið er við þær, finnst mér lýsa móðurbróður mínum og vini, Jóni Bondó, sem kvatt hefur okkur í hinsta sinn eftir erfið veik- indi. Við frændur sungum þetta gjarnan saman þegar við hittumst og síðast á dánarbeði hans. Alltaf er verið að minna okkur á hve lífið er hverfult og að ekkert er eilíft. Fyrir rúmu ári kvöddum við Guðjón bróður hans. Söknuð- urinn er mikill, enda höfum við átt samleið í hátt á sjötta áratug. Ég man eftir Bondó frá frum- bernsku. Fyrsta eiginlega minn- ing mín um hann var á Heiðarveg- inum í Vestmannaeyjum hjá afa og ömmu. Það var á sunnudegi og mörg barnabörnin í heimsókn. Kemur þá karl allt í einu hlaup- andi upp í stofu, kolsvartur í and- liti. Krakkarnir grenjuðu eins og ljón, þar til mæðurnar hugguðu þau og sögðu að „þetta væri bara hann Nonni; þetta væri allt í lagi, hann er bara með sósulit í andlit- inu“. Ég man hvað mér fannst alltaf mikil matargerð á heimili Bondós og Addýjar, enda bæði snillingar í þeim efnum. Bondó heilsaði mér gjarnan með orðunum: „Sæll, Skúli.“ Ástæðan skilst mér vera sú, að þegar ég var barn, nýbyrjaður að tala, var ég á gangi í Vestmanna- eyjabæ með Bondó. Þá hitti hann mann er Skúli hét og sagði að sjálfsögðu: „Sæll, Skúli!“ Þá heyrðist víst í mér: „Sæll, Skúli,“ alveg eins og lítill páfagaukur. Gaman var að skemmta sér með Bondó; hann var svo skemmtilegur. Hann hafði næmt skopskyn. Skemmtilegt var að fara með hon- um í leigubíl, hann sagði stundum: „Góða kvöldið, bílstjóri. Jón Bondó heiti ég. Nóg bensín og góð dekk? Akureyri, takk.“ Þetta féll, eins og gera má ráð fyrir, í mis- jafnan farveg hjá bílstjórum. Annað dæmi um gott skopskyn hans var að þegar hann gekk framhjá flyglinum mínum strauk hann yfir nótnaborðið og sagði: „Jón Leifs.“ Ásta, dóttir mín, hafði það á orði í veikindum hans, að þegar Bondó væri dáinn yrði ekkert gaman á árlegum spilakvöldum Oddsstaðafjölskyldunnar; hann væri svo skemmtilegur. Það má til sanns vegar færa. Við reynum að halda áfram í hans anda með gleðina að vopni. Bondó var yndislegur maður. Ég segi það ekki aðeins af því hann er farinn, hann var það bara. Ég veit ekki um neinn sem þekkti Bondó sem ekki líkaði við hann og/eða þótti vænt um hann. Hann virtist alltaf vera í góðu skapi, jafnvel þótt hann hefði ekki með- byr. Hann hafði einstakt lag á að gera gott úr öllu. Hann var sér- stakur gleðigjafi. Æðruleysi hans í veikindunum var einstakt. Hann barðist hetju- lega og á hann aðdáun mína alla. Nú er hann laus við þjáningar sín- ar. Ég vil að leiðarlokum þakka Bondó fyrir að hafa fengið að vera honum samferða, en fyrst og fremst fyrir að hafa átt hann að svona góðum vini. Elsku Halla, Binni, Lára, Halli og fjölskyldur ykkar. Ég bið Guð að styrkja ykk- ur og færi ykkur innilegar sam- úðarkveðjur. Megi hann blessa minningu góðs drengs. Páll Brynjarsson. Jón Bondó var sérstæður og eftirminnilegur maður, léttur í lund og viðfelldinn, hrókur alls fagnaðar hvar sem hann kom. Þetta sérkennilega auknefni, „Bondó“, fékk hann í æsku og það fylgdi honum allt lífið. Bondó var í senn maður ævin- týra og alvöru. Að heiman var hann nestaður með heilbrigð lífs- viðhorf, skyldurækni, sjálfsbjarg- arhvöt, nærgætni og góða manna- siði. En í genum hans var ólga, veraldarsláttur og dálítil freistni til hins ljúfa lífs. Hann var eins og systkini hans góðum gáfum gæddur, en kaus að fara úr skóla jafnskjótt og það var mögulegt. Svo kraftmikill unglingur vildi ekki sitja yfir skólabókum heldur hella sér út í lífið og helst á sjó. Þar lá líka framtíð hans meðan hann hafði krafta til. Í bernsku minni var Bondó fjöl- skylduvinur, ekki heima heldur hjá Elínu ömmu minni í Nýborg. Hann var skipsfélagi Björns, móðurbróður míns. Þau urðu svo miklir vinir að jólagjafir gengu á milli. En annars kunni amma ekki að meta alla misjafnlega óreglu- sama félaga sonar síns sem hann dró heim með sér. Bondó var hins vegar aufúsugestur með sitt frjálslega og alúðlega fas og laus- beislaða frásagnarhæfileika. Allt- af var vel um hann talað. Bondó var harðduglegur sjó- maður, vel verki farinn og ósér- hlífinn. Hann tók áhættu, mjög gjarnan, bæði í starfi og einkalífi. Sumt lukkaðist en annað ekki. En bjartsýni, kjarkur og lífsgleði brást aldrei. Hann var neftóbaks- maður með frábrigðum, nefið stórt og sérlega vel lagað í hraust- legt innsog. Eftir nokkur áföll, gosið í Eyj- um, skilnað og fleira, tók Bondó stefnu út í heim og starfaði sem sjómaður á ótrúlega fjarlægum og vafasömum stöðum, Arabíu, Ang- óla og ég veit ekki hvar. Og þar urðu mörg ævintýri, hættur og heppni, en heimkominn komst á meiri ró og þannig sigldi hann síð- asta spölinn. Bondó hafi stríðar meiningar um menn og málefni. Ekki hvað síst um mál stéttar sinnar og skipulag fiskveiða, kvótann. Hon- um svall þá móður, réttlætis- kenndin rak hann áfram og hann lét í sér heyra. Fyrir beiðni góðra manna tók Bondó sumarið 1972 undirritaðan stúd. mag. úr háskólanum sem kokk á bát sem hann var með. Varð af því skemmtileg saga, en forréttindi voru það að dóla um Eyjasund með jöklana báða og blásvartan sæinn fyrir augum og fagra landsýn á báðar hendur. Er við hittumst fyrr á þessu ári spurði ég Bondó hvort hann hefði nokkru sinni á skipstjórnartíð sinni haft aumari sjómann en mig. Hann hugsaði sig um dálitla stund, en sagði svo: Ja, ég er ekki viss um það, en meiri skítkokk hef ég aldrei haft. Svo lánsamur var ég að líta inn til Bondós á 81. afmælisdegi hans fimmtudaginn 18. júní sl. Hann var máttfarinn og alveg ljóst hvert stefndi. En handtakið var traust, spjallið gott og óþvingað og margt sagt sem fest verður í minni. Veri hann kært kvaddur, sá góði maður, Jón Bondó Pálsson. Hann var okkur jafnan til sannrar gleði. Helgi Bernódusson. Jón Bondó Pálsson Elsku mamma, nú er komið ár síðan þú fórst frá okkur. Ár síðan þú varst tekin frá okkur svo snögglega að lengi vel áttaði ég mig ekki á því að þú værir í raun og veru farin. Einn daginn ertu hjá okkur í ömmudögum að dekra við litlu grindjánana þína ásamt Perlu þinni, síðan ertu farin. Við tvær höfum alltaf verið til staðar hvor fyrir aðra, alltaf við mæðgurnar að dunda og brussast í gegnum lífið og aldrei var hlát- urinn langt undan. Þú varst alltaf minn klettur, minn fasti partur af tilverunni og hef ég átt erfitt með að finna jafnvægið aftur án þín. Margrét Erla Benónýsdóttir ✝ Margrét ErlaBenónýsdóttir fæddist í Reykjavík 23. október 1956. Hún lést 29. júní 2014. Útför hennar fór fram 10. júlí 2014. Í lífinu eins og öllu öðru eru hindr- anir og stundum virðast þær óyfir- stíganlegar. Þannig leið mér þegar yngri bróðir minn og son- ur þinn lést. Að fara í gegnum þá gríðar- legu sorg að missa systkini sitt og síðan að horfa upp á mömmu sína þjak- aða af sorg er gríðarlega erfitt. En við gátum farið í gegnum þetta saman og án þín hefði ég ekki komist uppúr sorginni. Lífið heldur alltaf áfram og er mér það svo mikils virði að þú hafir verið viðstödd fæðingu frumburðar míns. Þú og Nonni hvöttuð mig áfram alveg þar til yndislegi sonurinn minn kom í fangið mitt og þú brosandi með tárin í augunum. Þetta augnablik er mér svo dýrmætt. Síðan þrem- ur árum síðar þegar þú og stóri bróðirinn komuð til að hitta og kynnast litlu systurinni, þá varstu svo stolt amma og mamma. Þú og öll ömmubörnin þín haf- ið alltaf átt sérstakt samband og þú gættir þess vel að eiga gott samband við þau öll. Ég veit að börnin mín elskuðu að fara til þín og helst fá að gista í marga marga daga. Þau búa vel að því að hafa átt svona gefandi ömmu sem ávallt hafði tíma fyrir þau, sama hvað gekk á. Í gegnum tíðina var heilsan hjá þér ekki góð eða eins og þú sagðir svo oft, ég er alveg hress, bara kroppurinn hlýðir mér ekki. Þessi jákvæðni þín skein í gegn- um allt sem þú tókst þér fyrir hendur. Hvort sem það voru fjöl- margar aðgerðir, endurhæfing eða sjúkrahúsvist. Ég veit líka að þér fannst ekkert leiðinlegra en þegar fólk sagði að þú værir svo dugleg svona miðað við allt. Að þínu áliti varst þú að lifa lífinu með öllum þeim kostum og göll- um sem fylgja því. Það þýddi ekkert annað því ekki ætlaðir þú að gefast upp. Ég hef lært svo mikið af þér og bý að því alla mína ævi. Við fráfall þitt hópaðist að okk- ur Benna bróður þétt stuðnings- net af ættingjum ásamt þínum trausta vinahópi. Þú hafðir þá náðargjöf að hópa að þér fólki sem þú svo hlúðir að með góðri og traustri vináttu. Þú snertir líf margra og fengum við það til baka margfalt. Fyrir það verð ég ævinlega þakklát. Í raun má segja að nú sé ég að kveðja þig, þakka þér fyrir fylgd- ina í gegnum lífið. Nú mun ég halda áfram með mitt líf, mína fjölskyldu og vini. Elsku mamma, þú munt vera í hjarta mínu að eilífu, nú ertu hjá foreldrum þínum, bróður og syni. Til himnaríkis ég sendi, þér kveðju mamma mín. Á því virðist enginn endi, hve sárt ég sakna þín. Þú varst mín stoð og styrkur, þinn kraftur efldi minn hag. Þú fældir burtu allt myrkur, með hvatningu sérhvern dag. Nú tíminn liðið hefur, en samt ég sakna þín. Dag hvern þú kraft mér gefur, ég veit þú gætir mín. (Steinunn Valdimarsdóttir) Þín dóttir, Guðlaug Íris Margrétardóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.