Morgunblaðið - 01.07.2015, Blaðsíða 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 2015
Líkt og undanfarin ár verður hald-
in orgelandakt í Dómkirkju Krists
konungs í Landakoti á hádegi á
miðvikudögum í júlí og ríður Marc-
in Ciesliñski, kórstjóri og organisti
við kirkjuna, á vaðið í dag og leikur
á orgel kirkjunnar kl. 12 til 12.30. Í
næstu viku leikur Eyþór F. Wechn-
er og 15. júlí Douglas Brotchie. Að-
gangur er ókeypis.
Orgelandakt á
miðvikudögum
Morgunblaðið/Þorvaldur
Landakotskirkja Orgelandakt verð-
ur á miðvikudögum í júlímánuði.
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Ljósmyndabókinni Iceland – Re-
flections on the ring, eftir kanadísku
feðgana og ljósmyndarana George
og Sean Fischer og Jón Gauta Jóns-
son fjallaleiðsögumann, verður fylgt
formlega úr hlaði í dag kl. 16 í Ráð-
húsi Reykjavík-
ur, á þjóðhátíð-
ardegi Kanada.
Bókin er gefin út
í Kanada og
dreift hér á landi
af Forlaginu.
Formála hennar
ritar sendiherra
Kanada á Íslandi,
Stewart Wheeler,
en Jón Gauti á
myndir í bókinni
og ritar inngang.
Bókin náði
fyrsta sæti yfir
mest seldu bæk-
ur kanadíska
Amazon-vefjarins
í maí sl. í flokki
ferðabóka og er
nú til sölu í
stærstu bókabúð-
um Kanada,
Chapters og Indigo, auk þess að
vera seld í íslenskum bókabúðum.
Kynntust í ferð
góðgerðarsamtaka
„Hann kom hingað til lands fyrir
þremur árum á vegum góðgerð-
arsamtaka sem voru að safna fé fyr-
ir gigtarsjúklinga,“ segir Jón Gauti
um kynni þeirra George Fischer.
Hann hafi verið leiðsögumaður í
ferð þar sem gengið var með gigt-
veikum frá Landmannahelli inn í
Landmannalaugar og svo suður
Laugaveginn og inn í Þórsmörk.
Fischer var með í för, komst að því
að Jón Gauti væri ljósmyndari og
hefði gefið út tvær bækur og í kjöl-
farið hófst samstarf þeirra á milli.
„Hann kom hingað fyrir ári og fór
þá hringinn með syni sínum og að-
stoðarmanni, tók myndir en fyllir
upp í bókina með myndum frá mér
sem eru mikið til frá hálendinu,“
segir Jón Gauti. Spurður hvort
myndirnar í bókinni séu þá frá
áhugaverðum stöðum nærri hring-
veginum og frá hálendinu segir Jón
Gauti að bókin sýni einfaldlega Ís-
land en þó einkum staði nærri
hringveginum, eins og titillinn gefi
til kynna.
Hvað aðkomu sendiherra Kanada
á Íslandi að bókinni varðar segir
Jón Gauti að þeir þekkist og sendi-
herrann hafi tekið vel í að skrifa for-
málann. „Sömuleiðis hefur Stephen
Harper, forsætisráðherra Kanada,
skrifað inngang að tveimur bókum
eftir George í Kanada. Þannig að
hann er vel tengdur og vel liðinn.“
Úr endurskoðun í ljósmyndun
„Ferill minn er ansi fjölbreyti-
legur. Ég hóf störf sem endurskoð-
andi hjá endurskoðunarfyrirtæki í
Ottawa fyrir 30 árum. Ég lærði end-
urskoðun í háskóla en komst að því
að ég hefði óbeit á henni. Í kjölfarið
gerðist ég hjólaleiðsögumaður,
stofnaði fyrirtæki sem bauð upp á
hjólaferðir bæði í Kanada og erlend-
is,“ segir Fischer. Á ferðum sínum
hafi hann ljósmyndað og búið til
bæklinga með myndunum og fyrsta
ljósmyndabókin hans hafi svo komið
út fyrir 25 árum. „Núna er ég að
vinna í 53. bókinni minni,“ segir
Fischer kíminn, greinilegt að þar
fer afkastamikill maður.
Fischer segist hafa orðið hug-
fanginn af íslensku landslagi þegar
hann kom hingað á vegum fyrr-
nefndra góðgerðarsamtaka. Í fyrra
keyrði hann svo hringinn í kringum
landið og tók þúsundir mynda af fal-
legum og markverðum stöðum. „Ég
reyni að gera bækur sem ferðamenn
muna eftir, mynda staði sem ferða-
menn hafa farið á í stað þess að
mynda staði sem þeir fara jafnan
ekki á. Það gerir bækurnar sölu-
vænlegri,“ segir Fischer. Hann hafi
skoðað margar ljósmyndabækur um
Ísland og komist að því að fáar
þeirra sýndu allt í senn landslag,
byggingarlist og fólk. „Bækurnar
mínar innihalda þetta oftast nær
allt, ég sé til þess að í þeim séu
myndir af fólki, arkítektúr og lands-
laginu sem er auðvitað stórkostlegt
á Íslandi. Það er allt undursamlegt á
Íslandi,“ segir Fischer og bætir því
við að Kanadamenn séu afar hrifnir
af Íslandi og að ferðir til Íslands
seljist vel í Kanada. Fischer segir
vinsældir bókarinnar á Amazon lík-
lega endurspegla þennan mikla
áhuga Kanadamanna á Íslandi.
„Allt undursamlegt á Íslandi“
Jón Gauti Jónsson fjallaleiðsögumaður og kanadísku feðgarnir og ljósmyndararnir
George og Sean Fischer fagna útgáfu ljósmyndabókar í dag, á þjóðhátíðardegi Kanada
Ljósmynd/George Fischer
Tilkomumikið Kirkjufell á ljósmynd sem prýðir kápu bókarinnar.
George Fischer
Jón Gauti
Jónsson
Ljósmynd/Jón Gauti Jónsson
Náttúrufegurð Ljósmynd tekin á Öræfajökli þegar byrjaði að gjósa í Grímsvötnum árið 2011.
Myndlistar-
maðurinn Odee,
réttu nafni Odd-
ur Eysteinn Frið-
riksson, opnar
sýningu í Dahls-
húsi á Eskifirði á
morgun kl. 17. Á
sýningunni gerir
hann upp hið við-
burðaríka fyrsta
ár sitt sem lista-
maður og býður Austfirðingum að
kynnast austfirskri samtímalist,
eins og segir í tilkynningu. Þar seg-
ir að Odee sé sjálftitlaður álbóndi
og nemi í viðskiptafræði við Há-
skólann á Akureyri og að Gallerí
Fold hafi tekið verk hans í umboðs-
sölu í fyrra. Í kjölfarið hafi hann
verið fenginn til að hanna verk fyr-
ir sýningu Íslenska dansflokksins.
Verk sín vinnur Odee á vinnustofu
sinni á Eskifirði og sendir til New
York, þar sem þau eru brædd á ál.
Þá er húð sett yfir sem gefur áferð
sem minnir á gler.
Odee sýnir í Dahls-
húsi á Eskifirði
Oddur Eysteinn
Friðriksson/Odee
EDDA
HEILDVERSLUN
Stofnsett 1932
Heildverslun með lín fyrir:
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík, sími 525 8210
eddaehf@eddaehf.is • www.eddaehf.is
83
ÁRA
Rúmföt, handklæði, sængur, koddar
og annað lín fyrir ferðaþjónustuna
- hótelið
- gistiheimilið
- bændagistinguna
- heimagistinguna
- veitingasalinn
- heilsulindina
- þvottahúsið
- sérverslunina