Morgunblaðið - 01.07.2015, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 2015
Charles Moore er fyrrverandi ritstjóri breska blaðsins
Telegraph.
Hann er jafnframt
ævisöguritari Mar-
grétar Thatcher, en
annað bindi opin-
berrar sögu hennar
er væntanlegt.
Moore veltir fyr-ir sér ákvörð-
un Seðlabanka evr-
unnar um að
reynast ekki lán-
veitandi til þrauta-
vara gagnvart evru-
ríkinu Grikklandi, þótt það sé eitt
meginhlutverk bankans:
Engu er hampað meir í alfræðiESB en orðinu „samkennd“
(solidarity).
Bjargi sambandið ekki sínum fátækasta félaga missir sú
yfirskrift allt sitt inntak.
Mjög sláandi er að það, semvarð til þess að „þríeykið“ fór
á límingunum, var tilkynning Tsip-
rasar um að gríska þjóðin fengi að
greiða atkvæði um lokatilboð þess.
Tilboðið var samstundis afturkallað.
Grikklandi er þar með sagt a) aðlandinu því, sem hluta evru-
svæðis, verði ekki bjargað og b) að
það hafi ekki leyfi til að ákveða ör-
lög sín eins og væri það sjálfstætt
ríki.“
Eru brusselbúrókratar semkokkuðu Icesave með
Steingrími og Co með ofnæmi fyrir
þjóðaratkvæði?
Charles Moore
Þá brustu
límingarnar
STAKSTEINAR
Alexis Tsipras
Veður víða um heim 30.6., kl. 18.00
Reykjavík 16 skýjað
Bolungarvík 7 skýjað
Akureyri 10 alskýjað
Nuuk 11 léttskýjað
Þórshöfn 10 skúrir
Ósló 21 heiðskírt
Kaupmannahöfn 21 léttskýjað
Stokkhólmur 21 léttskýjað
Helsinki 17 léttskýjað
Lúxemborg 30 heiðskírt
Brussel 27 heiðskírt
Dublin 25 léttskýjað
Glasgow 22 skýjað
London 27 heiðskírt
París 32 heiðskírt
Amsterdam 26 heiðskírt
Hamborg 22 léttskýjað
Berlín 26 heiðskírt
Vín 28 léttskýjað
Moskva 20 heiðskírt
Algarve 21 skýjað
Madríd 40 léttskýjað
Barcelona 27 léttskýjað
Mallorca 32 heiðskírt
Róm 28 léttskýjað
Aþena 25 léttskýjað
Winnipeg 20 skýjað
Montreal 22 skýjað
New York 26 heiðskírt
Chicago 23 léttskýjað
Orlando 31 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
1. júlí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:06 23:58
ÍSAFJÖRÐUR 1:37 25:37
SIGLUFJÖRÐUR 1:20 25:20
DJÚPIVOGUR 2:22 23:41
Skóla- og frístundaráð borgarinnar
hefur samþykkt og vísað til borgar-
ráðs erindi frá stjórn Landakotsskóla
varðandi áform skólans um að hefja
kennslu í alþjóðlegri deild í haust.
Er um þróunarverkefni til tveggja
ára að ræða, en samþykkt var að
veita heimild fyrir allt að 24 nem-
endur. Verður sviðsstjóra falið að
ganga til samninga við forsvarsmenn
skólans sem feli í sér heimild til að
greiða framlög með allt að 13 reyk-
vískum börnum á samningstímanum.
Skúli Helgason, formaður skóla-
og frístundaráðs, segir mikilvægt að
koma til móts við aukna eftirspurn
um alþjóðlegt nám fyrir börn er-
lendra starfsmanna í atvinnulífi borg-
arinnar, diplómata og barna af ís-
lenskum uppruna með tímabundna
búsetu hér á landi. „Þetta er eitt af
því fyrsta sem fólk sem fær boð um
að starfa á Íslandi spyr að, þ.e.
hvernig skólakerfið er og hvaða þjón-
usta er í boði fyrir börnin,“ segir
Skúli og bætir við: „Við teljum að
þetta sé áhugaverð viðbót við skóla-
flóruna í borginni og til þess fallið að
auka þróun og um leið fjölbreytni,“
segir hann, en stefna meirihlutans í
borginni er að ýta undir fjölbreytta
skólaþróun og er þetta verkefni því
sagt undirstrika þá stefnu.
khj@mbl.is
Vilja koma upp alþjóðlegri deild
Skóla- og frístundasvið borgarinnar
samþykkir erindi frá Landakotsskóla
Morgunblaðið/Jim Smart
Nám Landakotsskóli vill nú auka
þjónustu sína við námsmenn.
Júlítilboð
- á einnota borðbúnaði
Verslun RV er opin virka daga kl. 8 – 18 og laugardaga kl. 10 – 14
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • sala@rv.is • rv.is
Rekstrarvörur
– fyrir þig og þinn vinnustað
Komdu í
verslun RV og
sjáðu glæsilegt
úrval af einnota
borðbúnaði
í flottum
sumarlitum.
Fjórir fyrstu hópar Hálendisvaktar
björgunarsveitanna fara upp á há-
lendið á föstudag, tveir á Fjallabak
og tveir á svæðið norðan Vatnajök-
uls. Ekki er áætlað að senda hóp á
Sprengisand í bráð vegna ófærðar
en talið er að hann geti verið lokaður
í allt að þrjár vikur í viðbót. Þetta
segir Jónas Guðmundsson, verk-
efnastjóri slysavarna ferðamanna
hjá Landsbjörg.
Að hans sögn er hver hópur viku í
senn á hverjum stað en 6-8 manns
eru í hverjum hópi. Þeir séu svo
leystir af þegar næsti hópur komi.
„Það eru um 200 sjálfboðaliðar sem
taka þátt í verkefninu og þeir standa
vaktina út ágúst,“ segir Jónas og
bætir við að yfirleitt séu 20-30 vakt-
menn á hálendinu hverju sinni.
brynja@mbl.is
Morgunblaðið/RAX
Fjallabak Tveir vakthópar fara
þangað á föstudaginn kemur.
Fjórir vakt-
hópar fara
á hálendið
200 sjálfboðaliðar