Morgunblaðið - 01.07.2015, Blaðsíða 10
Gríðarleg kaupstefna með búfé fór
fram í Brno í Tékklandi í fyrradag og
var margt um manninn, svo ekki sé
talað um blessaðar skepnurnar. Eðli-
lega voru eigendur duglegir við að
gera skepnur sínar sem fríðastar og
söluvænlegastar og var mikil stemn-
ing bæði hjá tvífætlingum og fjór-
fætlingum. Þó er ekki ólíklegt að dýr-
unum hafi sumum leiðst tilstandið.
Mjólkurkýr, svín og fleiri dýr
Hugað að
búfénaði
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 2015
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Þetta byrjaði nú allt á því aðfyrir nokkrum árum þegarég var í veiðitúr þá fletti ég íblaði sem ég fann í veiðikofa
og rakst þar á áhugaverða grein eftir
Björn Th. Björnsson um járnkrossa,
járngrindverk, járnhlið og fleira sem
finna má í Hólavallakirkjugarði í
Reykjavík. Ég hef alltaf verið hrifinn
af svona pottjárni, steyptum grindum
fyrir gluggum í útlöndum og öðru
slíku og þegar ég kom í bæinn eftir
veiðitúrinn, þá gerði ég mér ferð í
Hólavallagarðinn. Mig langaði að
skoða þetta allt saman nánar og ég
tók með mér myndavélina. Ég fór líka
í Kolaportið til að verða mér úti um
bókina hans Björns sem heitir Minn-
ingamörk í Hólavallagarði. Þegar ég
fór að stúdera þennan garð þá komst
ég að því að saga garðsins er stór-
merkileg,“ segir Ólafur Halldórsson,
sem allar götur síðan hefur sætt lagi
og gert sér ferð í forna kirkjugarða
hvar sem hann ferðast til útlanda og
tekið þar ljósmyndir.
Þjóðverjar bræddu kirkju-
garðsjárn í hergögn
„Hólavallakirkjugarður er mjög
ósnortinn alveg frá því hann var tek-
inn í notkun árið 1838, sem er óvenju-
legt fyrir kirkjugarða í Evrópu frá
þeim tíma. Hann er merkilegur vegna
þess hversu mikið er af fornum járn-
hlutum í honum, krossum, grindverk-
um og öðru, því Þjóðverjar hirtu
meira og minna allt járn úr kirkju-
görðum þeirra landa sem þeir her-
tóku í stríðinu, til að bræða og nota í
hergögn.“
Óli segir að það hafi verið ein-
staklega gaman að ganga um Hóla-
vallagarðinn eftir að hann las bók
Björns, því þá vissi hann að hverju
hann ætti að leita.
„Allskonar merkilegar högg-
myndir og styttur er að finna í garð-
inum, bronsmyndir, Reykjavíkur-
grágrýti og fleira. Fallegar lágmyndir
eftir Thorvaldsen skreyta líka marga
legsteina, en þær eru úr postulíni sem
kallast bisquit og vinsælastar þeirra
eru tvær myndir, önnur heitir Dagur
en hin Nótt,“ segir Óli sem komst yfir
slíkar afsteypur hjá Fríðu frænku og
hjá antiksala í Kaupmannahöfn.
„Bing og Gröndal og Konung-
lega postulínsverksmiðjan gerðu
þessar litlu afsteypur á sínum tíma,
því Thorvaldsen þótti fínn og verkin
hans voru stoufstáss.“
Fjölbreyttur gróður og fuglar
Eftir því sem Óli varði meiri
tíma í Hólavallagarðinum þá fann
hann hversu sérstök stemning er í
honum.
„Þarna er einstaklega notalegt
og friðsælt. Gróðurinn er líka fjöl-
breyttur, þarna finnast um 200 mis-
munandi plöntur og fuglalífið er afar
fjölskrúðugt. Í framhaldinu af þess-
um nývaknaða áhuga á Hólavalla-
garði, langaði mig að skoða og mynda
í gömlum kirkjugörðum í útlöndum.
Þegar ég var með félögum mínum í
Búdapest fyrir tveimur árum og þeir
fóru í baðhús, þá skellti ég mér í
kirkjugarð. Þetta var alveg ný upp-
lifun fyrir mig því hann var svo miklu
stærri en Hólavallagarðurinn, og
Heillaður af gömlum
kirkjugörðum
Hann kann vel við helgina og friðsældina sem finna má í gömlum kirkjugörðum
og notar því hvert tækifæri sem gefst til að heimsækja slíka garða á ferðum sínum
til annarra landa. Hann er ekki uptekinn af því hverjir liggja ofan í jörðinni,
heldur fegurðinni í því sem er ofan á gröfunum og stemningunni í görðunum.
Morgunblaðið/Eggert
Heima Óli er ekki alltaf í kirkjugörðum, hér í garðinum heima hjá sér.
Sorgin Engill sem Óli rakst á yfir leiði í Olsany-kirkjugarðinum í Prag.
Hún á sannarlega marga aðdáendur
verslunin NEXUS sem nú er í Nóatúni
17, en það er sérvöruverslun með
myndasögur, spil, bækur, leikföng,
dvd-myndir, veggspjöld o.fl. Hefur
verslunin starfað í einni eða annarri
mynd alveg síðan árið 1992.
Í dag kl. 10 hefst hin árlega útsala
hjá NEXUS og gera má ráð fyrir að
líkt og fyrri ár borgi sig að mæta
snemma ef fólk sækist eftir einhverju
sérstöku. Oft hefur myndast mikil
röð framan við verslunina þegar út-
salan fer af stað.
Vert er að taka fram að ekki er
hægt að taka frá útsöluvörur og þær
verða einvörðungu á sérmerktum
borðum.
Nú er lag að næla sér í eitthvað
sem lengi hefur staðið til að bæta í
safnið, nú eða kaupa eitthvað handa
einhverjum sem er með brennandi
áhuga á einhverju spilinu eða öðru.
Vefsíðan www.nexus.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Biðröð Búast má við að biðröð myndist við NEXUS í dag vegna útsölunnar.
Fyrir safnara og spilafólk
Á morgun, fimmtudag, mun Prímus
útgáfa gefa út annað hefti sitt og í
tilefni þess verður útgáfuhóf á neðri
hæð Bókasafns Kópavogs við
Náttúrufræðistofu Kópavogs kl. 16.
Skáldin, Adolf Smári Unnarsson
og Kristín Dóra Ólafsdóttir, munu
lesa upp ljóð sem birtast í heftinu
auk þess sem upprunaleg myndverk
eftir Valgerði Magnúsdóttur og Sig-
rúnu Gyðu Sveinsdóttur verða til
sýnis. Verkin og skáldskapurinn
tvinnast saman í heftinu. Halldóra
Ósk og Baldvin Snær flytja íslensk
dægurlög fyrir gesti og gangandi.
Heftið verður til sölu á staðnum
gegn frjálsu framlagi og eru allir
velkomnir.
Bókasafnið er til húsa í Hamra-
borg 6a.
Endilega …
Myndverk Valgerður Magnúsdóttir og Sigrún Gyða Sveinsdóttir sýna.
…njótið ljóða, mynda og tóna
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
ÁLÞAKRENNUR
Viðhaldslitlar
Þegar hús eru klædd með „viðhaldsfrírri“ klæðningu
er nauðsynlegt að nota „viðhaldsfríar“ þakrennur
Rennurnar frá Grövík Verk í Noregi eru gerðar úr 0.9 mm áli og tærast ekki,
ryðga né brotna. Fyrsta rennan var framleidd árið 1956 og er enn í notkun.
Litir til á lager: Svartar, hvítar, gráar, rauðbrúnar og ólitaðar.
Seljum einnig varmaskiptasamstæður, loftræstistokka og tengistykki.
Smiðjuvegi 4C
Box 281 202 Kópavogur
Sími 587 2202
Fax 587 2203
hagblikk@hagblikk.is
www.hagblikk.is
HAGBLIKK ehf.