Morgunblaðið - 01.07.2015, Page 11

Morgunblaðið - 01.07.2015, Page 11
Þrifið og klappað Eins gott að þrífa mjólkur- kúna og hafa hana snyrti- lega. Og svínin þurfti líka að snurfusa fyrir kaupstefnuna miklu. AFP höggmyndirnar fleiri og stærri. Þarna voru íburðarmiklar marmara- styttur og vissulega setti svip sinn á garðinn að þarna er önnur trú en hér heima hjá okkur. Kaþólsku trúnni fylgja aðrar táknmyndir og trúarhit- inn er mikill.“ Hallir yfir gröfum fólks Næst lá leið Óla til Barcelona á Spáni, þar sem hann var á ráðstefnu og heimsótti hann tvo gamla kirkju- garða. „Það virðist rosalega mikið hafa verið lagt í grafskreytingar á nítjándu öldinni. Ég hafði aldrei séð annað eins og í þessum görðum í Barcelona, heilu hallirnar eru þar byggðar yfir grafir fólks. Fólk hefur greinilega verið vel stætt og ekkert til sparað til að gera fjölskyldugraf- reitinn sem stærstan og flottastan.“ Óli segir mikið lagt upp úr tján- ingu á svipbrigðum líkneskjanna, þau séu sum hver mikil listaverk. „Andlitin lýsa djúpri sorg og maður skynjar hvernig aðstand- endum hefur liðið og þeir hafa fengið frægustu högglistamenn til að höggva út eða byggja minningamerki yfir ættingjana. Sumt af þessu er af- ar tilkomumikið, það er eins og mað- ur sé kominn inn í þorp. Og stundum eru höggmyndirnar óhugnanlegar, til dæmis af dauðanum í líki beinagrind- ar að kyssa hraustlegan mann.“ Kettir spóka sig í görðunum Nýlega fór Óli í söngferðalag með Dómkórnum til Lissabon, en hann er meðlimur í kórnum. „Ég valdi að fara í kirkjugarð þegar hópurinn fór í skoðunarferð. Þarna kynntist ég einum garðinum enn sem var allt öðruvísi en það sem ég hafði áður séð. Þarna voru beinar götur eftir öllum garðinum og ein- vörðungu grafhýsi meðfram þeim, öll mjög svipuð. Þetta voru nánast eins og raðhús og sumt afar íburðar- mikið,“ segir Óli sem heimsótti líka gamlan kirkjugarð í Prag síðastliðið haust. „Það er einhver helgi yfir þess- um gömlu görðum og ævinlega fáir á ferli í þeim, jafnvel þótt þeir séu inni í miðjum stórborgum. Kettir eru þær lifandi verur sem mest eru á ferðinni í kirkjugörðum. Ég er ekki uptekinn af því hverjir liggja ofan í jörðinni, held- ur fegurðinni í því sem er ofan á gröf- unum og stemningunni í görðunum,“ segir Óli sem er rétt að byrja, og á marga garða eftir. „Mér hefur verið sagt að gamli garðurinn í París sé magnaður og ég hlakka til að fara þangað. Ég á líka von á að í Róm séu tilkomumiklir kirkjugarðar.“ Dauðakoss Poble Nou í Barcelona. Vetrarfegurð Pottjárnið í Hólavallagarði heillar augað með flúri sínu. Grafhýsi Montjuic-kirkjugarðurinn í Barcelona er ólíkur því sem við þekkjum hér heima á Íslandi. Legsteinn Ein af lágmyndum Thorvaldsen sem eru í Hólavallakirkjugarði. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 2015 Hún passaði heldur betur vel upp á ungana sína, tígrisdýramóðirin Betty, þegar hvolparnir hennar fengu í fyrsta sinn að fara út með henni í gær. Betty er síberískur tígur og býr í dýragarði í Tékklandi. Tígrisdýra- tvíburarnir hennar fæddust í maí á þessu ári og gera má ráð fyrir að þeir eigi eftir að gleðja gesti dýragarðsins ósegjanlega mikið, slík ofurkrútt sem þessi kattardýr eru. Síberíutígristvíburar AFP Krútt Tvíburarnir kunnu vel við að leika sér úti við og láta horfa á sig. Út með mömmu í fyrsta sinn AFP Móðurást Hún er sönn og hrein.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.