Morgunblaðið - 01.07.2015, Page 27
það vera af meiri áhuga en getu, enn
sem komið er: „Ég var nú reyndar
töluvert í svifflugi í gamla daga, um
tvítugsaldurinn. Þá flugum við inni á
Melgerðismelum. Svo hætti ég alveg
að fljúga en mig hefur alltaf langað til
að taka aftur upp þráðinn. Kannski
maður komi því í verk á efri árunum.
Það tómstundagaman sem hefur
hins vegar fylgt mér lengst er stang-
veiðin. Ég er í ágætum veiðihópi sem
fer a.m.k. einu sinni á sumri í
skemmtilegar veiðiferðir. Auk þess
veiði ég hér og þar með vinum og
vandamönnum. Ef ég á að nefna
uppáhaldsveiðiá er það líklega Laxá,
hvort heldur sem er í Mývatnssveit-
inni eða í sjálfum Laxárdalnum.
Mínar bestu stundir hafa oftar en
ekki snúist um stangveiði í góðra vina
hópi. Við slíkar aðstæður nær maður
oft best að slaka á, komast í snertingu
við náttúruna og njóta samverunnar
við góða veiðifélaga.
Slíkar stundir geta orðið ógleym-
anlegar og verða mikilvægar í minn-
ingunni.“
Fjölskylda
Eiginkona Arnars er Margrét
Dóra Eðvarðsdóttir, f. 3.2. 1965, dag-
móðir. Foreldrar hennar: Eðvarð
Jónsson, f. 29.4. 1934, fyrrv. fram-
kvæmdastjóri á Akureyri, og Gunn-
þórunn Rútsdóttir, f. 11.8. 1940, d.
18.11. 1989, húsfreyja.
Dóttir Arnars og Margrétar Dóru
er Auður Berglind Arnarsdóttir, f.
30.7. 2008.
Systkini Arnars eru Sigurður Guð-
mundsson, f. 8.3. 1969, kaupmaður á
Akureyri og í Reykjavík; Guðrún
Björk Guðmundsdótttir, f. 12.10.
1972, þroskaþjálfi í Danmörku; Tinna
Berglind Guðmundsdóttir, f. 29.3.
1974, verslunarmaður á Akureyri;
Nanna Þorbjörg Guðmundsdóttir, f.
19.6. 1977, verslunarmaður á Ak-
ureyri; Ragnhildur Rós Guðmunds-
dóttir, f. 14.12. 1981, kennari í
Reykjavík, og Anna Gunndís Guð-
mundsdóttir, f. 23.2. 1983, nemi í
kvikmyndaleikstjórn í Banda-
ríkjunum.
Foreldrar Arnars eru Guðmundur
Karl Sigurðsson, f. 20.2. 1945, versl-
unarmaður í Reykjavík, og Laufey
Brynja Einarsdóttir, f. 22.12. 1947,
fyrrv. skrifstofumaður í Reykjavík.
Úr frændgarði Arnars Guðmundssonar
Arnar
Guðmundsson
Laufey Sumarrós Jóhannesdóttir
húsfr. á Steinsstöðum
Brynjólfur Sveinsson
hreppstj. á Steinsstöðum í Öxnadal
Helga Brynjólfsdóttir
fiskverkak. hjá ÚA
Einar Eggertsson
húsasmíðam. á Akureyri
Laufey Einarsdóttir
skrifstofum. á Ak. og í Rvík
Guðrún Stefanía Sigurðardóttir
húsfr. á Akureyri
Eggert Guðmundsson
trésmíðam. á Akureyri
Karitas Sigurðardóttir
húsfr. á Landamóti
Karl Kristján Arngrímsson
b. á Landamóti í Kinn
Guðrún Karlsdóttir
verslunarm. á Akureyri
Sigurður Guðmundsson
klæðskeram. og kaupm. á Ak
Guðmundur Sigurðsson
verslunarm. á Ak. og í Rvík
Ragnhildur Jónsdóttir
húsfr. á Ferjubakka
Guðmundur Andrésson
b. á Ferjubakka í Borgarfirði,
af Háafellsætt
Kristján Jóhann Karlsson
skólastj. á Hólum í Hjaltadal
Jón Sigurður Karlsson
arkitekt í Svíþjóð
Arnór Karlsson
blómakaupm. á Ak.
Inga Dagmar Karlsdóttir
102 ára í Rvík
Einar Nikulásson
bifvélavirki í Rvík
Karl Nikulásson
pípulagningam. Í Rvík
Bergþóra
Eggertsdóttir
bókari á Ak.
Elín Valgerður
Berg bókari á
Akureyri
Halldór Heimir Þorsteinsson
bílasali á Ak. og á Örk í
Eyjafjarðarsv.
Brynhildur Eggerts-
dóttir skrifstofum. á
Ak. og í Kóp.
Stefán Sigtryggs-
son viðskiptafr.
í Rvík
Guðrún Sigtryggs-
dóttir lögfr. í Rvík
Fanney Eggertsdóttir
húsfr. á Akureyri
Stefán Eggert Haraldsson símst.
stj. og póstmeistari á Húsavík
Haukur Haraldsson
byggingat.fr. á Ak.
Fanney Hauksdóttir
arkitekt á Ak.
Feðgin Arnar og Auður Berglind.
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 2015
Áki fæddist á Húsavík 1.7.1911. Foreldrar hans voruJón Ármann Jakobsson,
kaupmaður á Húsavík, og k.h., Val-
gerður Pétursdóttir.
Eiginkona Áka var Helga Guð-
mundsdóttir sem lést 1990, hús-
freyja, og eignuðust þau sex börn.
Áki lauk stúdentsprófi frá MR
1931 og embættisprófi í lögfræði frá
HÍ 1937. Hann öðlaðist hdl.-réttindi
1944 og hrl.-réttindi árið 1957.
Áki varð kommúnisti ungur að ár-
um og var um skeið í hópi helstu for-
ystumanna þeirra hér á landi. Hann
var bæjarstjóri á Siglufirði 1938-42
þar sem kommúnistar höfðu lengi
sterk ítök. Hann flutti síðan til
Reykjavíkur og starfrækti þar mála-
flutningsskrifstofu, var alþingis-
maður Siglfirðinga fyrir Sameining-
arflokk alþýðu - Sósíalistaflokkinn
1942-53 og var sjávarútvegs-
málaráðherra kommúnista í nýsköp-
unarstjórninni á árunum 1944-47.
Ráðherradómurinn varð hápunkt-
urinn á pólitískum ferli Áka, en
nokkrum árum síðar gekk hann af
trúnni, snéri baki við kommúnistum,
gekk í Alþýðuflokkinn og var þing-
maður hans á árunum 1956-59. Þá
var hann formaður blaðstjórnar Al-
þýðublaðsins 1959-62.
Eins og aðrir sem misstu trúna
var Áki lagður í einelti af fyrrver-
andi samherjum sínum en sjálfur
vandaði hann kommunum ekki
kveðjurnar. Eins og fram kemur í
frægu viðtali Matthíasar Johann-
essen við Áka í Morgunblaðinu árið
1962, gagnrýndi Áki íslenska komm-
únista fyrir ofureinföldun á pólitísk-
um veruleika, ofbeldissinnaða stefnu
sem miðaði að blóðugri byltingu og
fyrir blinda hlýðni við Komintern.
Í þessu sama viðtali þeirra Matt-
híasar kemur skýrt fram sú skoðun
Áka að íslensku samfélagi hafi staf-
að mikil hætta af starfsemi komm-
únista, skömmu eftir að Komm-
únistaflokkur Íslands var stofnaður,
árið 1930. Þar segir Áki m.a.: „Ís-
lenskir kommúnistar mega vera
þakklátir fyrir að hafa ekki komist
til valda, því þá hefðu margir þeirra
orðið verri menn en þeir nú eru.“
Áki lést 11.9. 1975.
Merkir Íslendingar
Áki
Jakobsson
95 ára
Alda Markúsdóttir
85 ára
Guðrún Stefánsdóttir
Gunnar Guðmundsson
Kristín Friðbjarnardóttir
Nína Björg Kristinsdóttir
Sigrún Jóhannsdóttir
Sigurður Magnússon
80 ára
Auðbjörg Njálsdóttir
Jón Berg Halldórsson
Sigurður Jörundur
Sigurðsson
75 ára
Birgir Brynjólfsson
Guðmunda Inga
Guðmundsdóttir
Guðmundur Stefánsson
Ormar Þorgrímsson
Þórey Kolbrún
Halldórsdóttir
70 ára
Axel Gíslason
Áslaug Björnsdóttir
Einar Grétar Einarsson
Garðar Briem
Garðar Snorrason
Geirfinnur Gunnar
Svavarsson
60 ára
Anna Adela Óskarsson
Bjarni Árnason
Haraldur Jón Arason
Heiða Björk Rúnarsdóttir
Ingi Þór Jakobsson
Sverrir Andrésson
50 ára
Ari Hafliðason
Árni Bragason
Ásta Vilborg Njálsdóttir
Birgir Sigurðsson
Jaroslaw Stanislaw
Sobanski
Jónína Gróa
Hermannsdóttir
Olga Chumikova
Sigurjón Vilhjálmsson
Sigurrós Hreiðarsdóttir
Skúli Svanur Júlíusson
Smári Jónsson
Þórarinn Kristján
Hreiðarsson
40 ára
Ásmundur Guðni
Haraldsson
Ásta Guðrún Jóhannsdóttir
Björgvin Björgvinsson
Haukur Karlsson
Ingvar Atli Friðgeirsson
Íris Björk Samúelsdóttir
Jóhanna Erla Jóhannsdóttir
Tomasz Kozlowski
Þráinn Sigurðsson
30 ára
Almar Örn Ívarsson
Anton Ólafsson
Ásgeir Viktorsson
Ásta Márusdóttir
Dániel Ferenc Somogyi
Haraldur Óli Ólafsson
Magnús Torfi Magnússon
Sigrún Kristjánsdóttir
Þórarinn L. Sigurgeirsson
Til hamingju með daginn
30 ára Guðmundur ólst
upp á Akureyri, býr þar,
lauk stúdentsprófi frá FG
og er að ljúka IAK-
einkaþjálfaraprófi.
Hann er rekstrarstjóri hjá
Fabrikkunni á Akureyri.
Maki: Jóna Brynja Birkis-
dóttir, f. 1994, starfs-
maður hjá Nova.
Foreldrar: Helgi Guð-
mundsson, f. 1947, og
Sjöfn Inga Kristinsdóttir,
f. 1948, bændur á Hólma-
koti á Mýrum.
Guðmundur
Óskar Helgason
40 ára Helga býr á Akur-
eyri, lauk prófum í dýra-
lækningum í Hannover og
sérnámi í hestalækn-
ingum í Belgíu og er dýra-
læknir.
Maki: Baldvin Esra
Einarsson, f. 1979, starfs-
maður hjá Nýherja.
Synir: Styrkár, f. 2007,
og Flóki, f. 2014.
Foreldrar: Guðríður Dóra
Halldórsdóttir, f. 1954, og
Gunnar Sæmundsson, f.
1952, d. 2007.
Helga
Gunnarsdóttir
40 ára Guðni ólst upp í
Reykjavík, býr í Hafnar-
firði, lauk sveinsprófi í
prentiðn frá Iðnskólanum
í Reykjavík og er nú
starfsmaður Actavis í
Hafnarfirði.
Börn: Emma Guðrún, f.
2003, og Hlynur Már, f.
2007.
Foreldrar: Níels Skjaldar-
son, f. 1952, og Jakobína
Guðjónsdóttir, f. 1954.
Stjúpfaðir: Ragnar Örn
Halldórsson, f. 1950.
Guðni Þór
Níelsson
Hægt er að senda
mynd og texta af
nýjum borgara eða
brúðhjónum af slóðinni
mbl.is/islendingar
eða á netfangið
islendingar@mbl.is
Börn og
brúðhjón
Þessi vara
er laus við:
Mjólk
Glúten
Soja
Rotvarn-
arefni
10
0%
NÁ
TTÚRULEGT
•100%
NÁTTÚRUL
EG
T
•
Fáanlegt í flestum apótekum,
heilsubúðum og heilsuhillum stórmarkaðanna www.gengurvel.is
P
R
E
N
T
U
N
.
I
S
UPPLIFÐUMUNINN!
Áhrifaríkur ASÍDÓFÍLUS ásamt
öðrum öflugum góðgerlum
Oft spurt?
Af hverju virka PRÓGASTRÓ DDS PLÚS 3 góð-
gerlarnir svona vel og fljótt á marga meltinga-
erfiðleika eins og hægðatregðu, niðurgang,
uppþembu, kandíta, sveppasýkingu ofl.
Svar
Lykillinn er að allir góðgerlarnir í PRÓGASTRÓ
DDS PLÚS 3 eru gall- og sýruþolnir og ná að lifa
ferðina af í gegnummagann niður í smáþarmana.
Auk þess er ASÍDÓFÍLUSINN DDS 1, sem hefur
þann hæfileika að fjölga sér og dvelja í þörmunum,
vinnusamur og stöðugur.
Notkun
2 hylki á morgnana á fastandi maga geta gert
kraftaverk fyrir meltinguna! Margir fullyrða að þeir
sem hafa góða meltingu séu hamingjusamari.
- Prófaðu og upplifðu muninn