Morgunblaðið - 01.07.2015, Side 31

Morgunblaðið - 01.07.2015, Side 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 2015 »Hróarskelduhá- tíðin í Danmörku hófst 27. júní sl. og stendur til og með 4. júlí. Þótt tónleikar séu aðalskemmtun gesta gera þeir sér ýmislegt annað til gamans, eins og sjá má af meðfylgjandi myndum. Meðal flytjenda á hátíðinni í ár eru Paul McCart- ney og Pharrell Williams. Gestir á Hróarskelduhátíðinni gera sér margt til gamans fyrir utan að sækja tónleika Nektarhindranahlaup Þessi keppni er með þeim furðulegri á Hróarskeldu. Hindranahlaup sem keppendur fækka fötum í. Keppandi blaðar í bók á hlaupum, búinn að hneppa frá buxunum og stjórnandinn í fötum að hætti Valla. Bað Þessi unga stúlka brá sér í bað með aðstoð vina sinna. Drykkjuleikur Sökkvandi skip nefnist drykkjuleikurinn sem þessir ungu sjóarar og Hróarskeldugestir spreyttu sig í mánudaginn síðastliðinn. Liðug Keppandi í twerk-danskeppni sýnir tilþrif við mikinn fögnuð áhorfenda. AFP Starfsstyrkjum Hagþenkis, félags höfunda fræðirita og kennslugagna, til ritstarfa var úthlutað í gær. Aug- lýst var eftir umsóknum um starfs- styrki Hagþenkis í apríl og bárust fé- laginu 86 umsóknir. Til ráðstöfunar voru 13 milljónir króna til styrkja til ritstarfa og 200 þúsund kr. til hand- ritsgerðar. Í úthlutunarráði Hagþenkis 2015 sátu Guðný Hallgrímsdóttir sagn- fræðingur, Kolbrún S. Hjaltadóttir kennsluráðgjafi og Þorgerður H. Þorvaldsdóttir kynjafræðingur. Niðurstaða úthlutunarráðs var að 29 höfundar hlytu starfsstyrk til rit- starfa til 27 verkefna. Tólf verkefni fengu hæsta styrk, sem er 600 þúsund krónur, en höf- undar þeirra eru: Arnar Eggert Thoroddsen fyrir Icelandic Pop: Its place and peculiarities; Axel Krist- insson fyrir Hnignun, hvaða hnign- un?; Gylfi Ólafsson fyrir Hagnýt heilsuhagfræði; Halldóra Arnardóttir fyrir Listir og menning sem hluti af meðferð við Alzheimer: íslensk söfn; Hörður Kristinsson fyrir Fléttuhand- bókina; Jón K. Þorvarðarson fyrir Kennslubókaröð í stærðfræði; Krist- ín Svava Tómasdóttir fyrir Stund klámsins; Ragnheiður Ólafsdóttir fyrir Áhrif Kvæðamannafélagsins Ið- unnar á rímnahefðina; Ragnhildur Sigurðardóttir fyrir Sjálfbærni land- nýtingar í Mývatnssveit 1700-1950; Rannveig Þorkelsdóttir og Ása Helga Ragnarsdóttir fyrir Læsi, lest- ur og listir; að kenna málfræði með aðferðum leiklistar, Sólveig Einars- dóttir og Elínborg Ragnarsdóttir fyr- ir Skáld skrifa þér – Brot úr bók- menntasögu með skáldlegu í vafi – 1920 til nútímans og Vilhelm Vil- helmsson fyrir Sáttabók Miðfjarðar- sáttaumdæmi. Þrettán verkefni hlutu 400 þúsund króna styrk og eru höfundar þeirra: Árni Daníel Júlíusson fyrir Sustain- ability or catastrophe? Society and economy in Hörgárdal in the 13th-14th century; Björg Árnadóttir fyrir Lake Mývatn – People and places; Björg Hjartardóttir fyrir Lesið í Freyju; Guðmundur Sæ- mundsson fyrir Íþróttir á Íslandi, menning og siðferði; Haraldur Sig- urðsson fyrir Bæjarskipulag og mót- un umhverfis á Íslandi á 20. öld; Jón Árni Friðjónsson fyrir Sögu- kennslubækur og tíðarandi; Ragn- hildur Bjarnadóttir fyrir Starfstengd leiðsögn; Rósa Rut Þórisdóttir fyrir Hvítabjarnkomur til Íslands fyrr og síðar; Sigurrós Þorgrímsdóttir fyrir Vakið; Silja Bára Ómarsdóttir og Steinunn Rögnvaldsdóttir fyrir Rof: Frásagnir kvenna af fóstureyðingum; Sverrir Tómasson fyrir Pipraðra pá- fugla; Una Margrét Jónsdóttir fyrir Gullöld revíunnar og Þorleifur Frið- riksson fyrir Evrópskar hulduþjóðir. Tveir höfundar hlutu 300 þúsund króna styrk, en það eru þeir: Bjarki Karlsson fyrir Bragsögu og Jóna Val- borg Árnadóttir fyrir Glatað fé eða fundið? Miðaldra og eldra fólk í starfi. Einn höfundur hlaut handritsstyrk að upphæð 200 þús. kr., en sex um- sóknir bárust. Starfsstyrkinn hlaut Ásdís Thoroddsen til fræðslu- og heimildarmyndar er nefnist Þjóðbún- ingurinn. Starfsstyrkir Hagþenkis árið 2015  86 umsóknir bárust  13 millj- ónir til ráðstöfunar  29 höfundar styrktir í ár Styrkþegar Allir voru að vonum glaðir að taka við styrkjum, en alls var úthlutað 27 styrkjum til ritstarfa að þessu sinni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.