Morgunblaðið - 01.07.2015, Page 33

Morgunblaðið - 01.07.2015, Page 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 2015 ÍSLENSKT TAL ARNOLD SCHWARZENEGGER EMILIA CLARKE Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is SÝNINGARTÍMA MÁ NÁLGAST Á LAUGARASBIO.IS, MIDI.IS EINNIG Á SÍÐUNNI HÉR TIL VINSTRI - bara lúxus POWERSÝNING KL. 10:30 verið um nokkur önnur verk til við- bótar. Spurður hvað taki við hjá sér segir Viðar að hann muni líklega hverfa til annarra verkefna tengdra menningu og listum á Rás 1 en öll nánari út- færsla í þeim efnum sé enn ófrá- gengin. Hann tekur þó skýrt fram að hann sé ekki að kveðja leiklistina þó að hann kveðji Útvarpsleikhúsið. Vængjadyr opnast „Þegar einar dyr lokast opnast vængjadyr annars staðar,“ segir Viðar og tekur fram að framtíðin sé óskrifað blað. „Meðan ég stjórnaði Útvarpsleikhúsinu komst ekkert annað að, því ég er svo einbeittur maður,“ segir Viðar og bendir á að eina undantekningin í þeim efnum hafi verið leikstjórn á Söng hrafnanna eftir Árna Kristjánsson að ósk Leikfélags Akureyrar, en uppfærslan hlaut Grímuna sem Út- varpsverk ársins 2014. „Ég hef ekki getað sinnt leikstjórn að ráði síðustu ár en langar nú að taka þráðinn upp aftur.“ Spurður hvort hann hyggist ekki stíga á svið segist Viðar ekki vilja útiloka neitt. „Hins vegar var mjög gaman að hætta sem leikari í hlutverki Dra- kúla greifa í Dublin árið 1997 þegar þess var minnst að 100 ár væru liðin frá útgáfu samnefndrar bókar eftir Bram Stoker. En það er aldrei að vita hvar mig ber niður í leik- húsheiminum.“ Samkvæmt upplýsingum frá RÚV verður starf Útvarpsleikhússtjóra auglýst laust til umsóknar um næstu helgi. Ljósmynd/Ólöf Erla Einarsdóttir Leikstjórinn Viðar Eggertsson langar að sinna leikstjórninni betur. » KEX hostel býður upp ádjass á þriðjudagskvöld- um og í gærkvöldi var það Camus-kvartett sem lék fyrir gesti. Kvartettinn skipa Sölvi Kolbeinsson á saxófón, Rögnvaldur Borgþórsson á gítar, Birgir Steinn Theo- dórsson á bassa og Óskar Kjartansson á trommur. Kvartettinn lék eigið efni og tónlist eftir nokkur af stór- mennum djassins, meðal annars Miles Davis, Wayne Shorter og Will Vinson. Kvartettinn Camus lék á djasskvöldi KEX hostels í gærkvöldi Djassað Margir af þekktustu djasstónlistarmönnum landsins hafa komið fram á KEX hosteli við Skúlagötu á þriðjudagskvöldum og í gærkvöldi sá Camus-kvartettinn um að heilla gestina. Morgunblaðið/Þórður

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.