Jökull


Jökull - 01.12.1956, Blaðsíða 25

Jökull - 01.12.1956, Blaðsíða 25
JÓN EYÞÓRSSON: Frá NorSurlandsjöklum Brot úr dagbók 1939 On some alpine glaciers in the Northland. Fjallgarðurinn, sem skilur Iryggðir Skagafjarð- ar og Eyjafjarðar, er bæði hár og hrikalegur. Hann er sundur grafinn og alla vega sorfinn í hvassar eggjar, tinda og dalskorur. Blágrýtishlöð og hamrar setja hvarvetna svip á útsýnið. Frent- ur er fáferðugt á þessum slóðum, þótt margt beri þar fyrir auga stærra og sérstæðara en ókunnuga skyldi gruna. Byggðafjöll Skagafjarð- ar og Eyjafjarðar bera vitanlega svip þessa há- lendis, og byggðir dalir fleygast inn í það. Af jreim eru kunnastir: Svarfaðardalur, Hjaltadal- ur og Hörgárdalur. Oxnadalsheiði mun vera eina leiðin fær bílum yfir fjallgarð þennan. Svarfaðardalur er sú byggð, sem mér virðist opna mesta innsýn í jrennan tröllaheim blá- grýtis og jökulsvarfs. Þar má blátt áfram sjá þjalarför jökulsins á blágrýtisveggjunum. Dalur- inn mundi hafa hlotið nafn sitt, þótt enginn Þorsteinn svörfuður kæmi við sögu. Hæsti tindur á fjallgarðinum er Kerling 1538 m, en fjöldamargir tindar eru á milli 1200 og 1400 m. í fjallaskálum og dalbotnum, 600—900 m yfir sjávarmál, eru víða jöklar eða sísnævi. Flestir eru jöklarnir á tveimur svæðum: Annað er umhverfis Kerlingu og Glerárdal, hitt svæðið er þar, sem mætast dalabotnar úr Hörgárdal og Svarfaðardal austan frá og Kolbeinsdalur og Héðinsdalur vestan frá. Þar eru nævurþunnar eggjar milli dalabotna, og snúa jökulbunkar bökum saman í allar áttir. Mest ber þar á Tungnahryggsjökli (Kolkujökli), í botni Kol- beinsdals, og Barkárjökli í botni Barkárdals. Litlu austar er röð af smájöklum í afdölum Svarfaðardals, og mun Gljúfrárjökull eintia mestur. Allmiklu norðar er Heljardalsheiði með mörgum smájöklum. Bægisárjökull er milli Gler- árdals og Öxnadals, en Vindheimajökull í botni Fossárdals upp af Þelamörk. í botni Hjaltadals er lítil jökulkaka, og yfirleitt eru miklu víðar sísnævi eða smájöklar í dalabotnum en sýnt er á uppdrætti Islands. Hér verður ekki gerð tilraun til að lýsa jöld- um þessum í heild, heldur rakin nokkur atriði úr dagbók minni á þessum slóðum árið 1939. 1. FIELJARDALSHEIÐI. Miðvikudaginn 26. júlí 1939 lagði ég af stað frá Urðum í Svarfaðardal um 10-leytið í fylgd með Ármanni bónda Sigurðssyni. Ætluðum inn (þ. e. vestur) Skallárdal, en hættum við vegna þoku. Fórum sem leið liggur vestur úr botni Svarfaðardals sunnan Hnjótafjalls, upp á Helj- ardalsheiði að Urðavörðu í h. u. b. 800 m hæð. Þaðan liggur jarðsími yfir háheiðina (hæst 860 m). Fannir eru þar nokkrar bæði norðan í og sunnan, en alls ekki jökull. Hins vegar er greini- leg jökulkaka á efsta hjalla í Hnjótakverk, skammt norður af Urðavörðu. Jaðar jökulsins er um 880 m y. s. og framan við hann eru um 300 m breiðir jökulaurar, nýlegir að sjá og gróð- urlausir. Mótar þar fyrir fjórum jökulgörðum, og nyrzt, nær Hnjótafjalli, virðast vera 5-faldir garðar, hinn yzti um 400 m frá jökuljaðri. Flat- armál þessa jökuls er um 1.2 km2. Fyrir miðjum dalbotni (Svarfaðard.), um 1000 m norður af Urðavörðu, voru hlaðnar vörður, Hi á innsta jökulgarð, H2 á hinn næsta. Milli H2 og Hi eru 12 m, en frá Hi að jökli 15 m. Jökullinn hefur áður náð lengra suður í botn- inn, skammt frá Urðavörðu, en ekki í kinnina, þar sem siminn liggur. Frá Urðavörðu er örstutt yfir háhrygg heiðar- innar. Sést þá niður eftir Heljardal, sem liggur þvi nær í liásuður þvert á Kolbeinsdal. Austur úr Heljardal er víð og hrikaleg hvilft, sem kall- ast Heljarskál, og Heljarfjall heitir sunnan að henni. Tveir smájöklar blasa við í suðurbarmi Heljarskálar. Norðvestur úr botni Heljardals er önnur skál með miklum klettakambi í suðurbarmi. Kamba- skál mun hún heita eftir lækjum, sem úr henni falla. Norðvestur úr skálinni gengur skarð til 23
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Jökull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.