Jökull


Jökull - 01.12.1956, Blaðsíða 31

Jökull - 01.12.1956, Blaðsíða 31
PÁLL BERGÞÓRSSON: Barkárjökull Sunnudaginn 19. ágúst 1956 fór ég ásamt Frið- íinni Sigtryggssyni í Baugaseli og Eiði Guð- mundssyni á Þúfnavöllum inn í Barkárdal til þess að athuga skriðjökulinn í botni dalsins. Ætlunin var að finna vörður, sem Friðfinnur og Jón Eyþórsson höfðu hlaðið nálægt jökul- röndinni sumarið 1939 og miðað mælingar við. Þrátt fyrir talsverða leit gátum við alls ekki séð móta fyrir vörðum Jressum, og varð förin því árangurslaust að þessu leyti. Friðfinnur sagði mér líka, að sumarið eftir að vörðurnar voru reistar hefðu tveir synir hans leitað þeirra árangurslaust. Var því ekki annað ráð fyrir hendi cn setja upp ný merki: 1. Um 67 m frá jökulröndinni, milli tveggja aðalkvisla Barkár, hlóðum við allmörgum stein- um, aðallega rauðum, upp á stóran stein. Er steinn þessi þar, sem urðin er einna hæst og aðeins nær suðurhlíð dalsins en norðurhlíð. 2. Frá þessu merki mældum við 345 m að næsta merki, sem við settum upp í endann á greinilegum urðarhrygg. Merki þetta er hella, sett milli tveggja stórra steina, en ofan á hana settum við minni steina. Eiður á Þúfnavöllum sagði mér, að við þessa urð hefði jökulröndin verið haustið 1900. Var greinilegt, að rneira vottaði fyrir mosa og fátæk- legum gróðri þeim megin við urðarhrygginn, sem fjær var jöklinum. Hefur jökullinn því hopað um 412 m frá 1900—1957. Frá þessu merki er allröskur hálftíma gangur niður að Húðarhólum, sem eru rétt neðan við jaðar jökulurðarinnar. Sigurðssyni. Morguninn eftir fór ég með mjólk- urbíl til Akureyrar. í Hörgárdal var logn og hiti, en útræna og skýjakúfar á fjöllum við Eyjafjörð. Timinn leyfði mér ekki að fara inn í Myrkár- dal úr því að ég komst ekki yfir fjall urn Gísla- skarð, eins og ég hafði ætlað mér. Jökullinn í botni Myrkárdals mun vera svipaður Barkár- dalsjökli, en talsvert rninni. Síðar mun skýrt frá athugunum á Vindheima- jökli, Bægisárjökli, jöklum á Glerárdal og í Torfufelli í Eyjafirði. Frh. í næsta hefti. (To be continued.) Sumarleyfisferð á Vatnajökul Miðvikudaginn 27. júní lögðum við fimm félagar af stað frá Reykjavík kl. 22.25, og var ferðinni heitið í fyrsta áfanga í Jökulheima. Tilgangurinn var að fara á skíðum til Gríms- vatna, ganga síðan á Hvannadalshnúk og halda svo sem leið liggur niður í Öræfi. Áður en lengr er haldið, mundi hlýða að kynna okkur, þessa bjartsýnu ferðalanga, sem sannfærðir voru um skemmtilega ferð, jafnvel þótt ekki viðraði sem bezt' og okkur væri vel ljóst, að ekki væri erfiðislaust að ferðast gangandi um Vatnajökul með farangur sinn á sleða í eftirdragi. Þessir fimm voru: Guðmundur Finnbogason, Björgvin Ólafsson, Gunnar Olafsson, Gunnar Magnússon og Friedhelm Geyer, þýðverzkur, sem hafði bætzt í hópinn á slðustu stundu. Vorum við fyrst í vafa um, hvort hann kæmist með, því að tjald okkar var talið hæfa fjórum. Við nán- ari athugun töldum við tjaldið myndi duga okkur 5 og reyndist fara vel um okkur í því. Hinn nýi maður reyndist hinn ágætasti ferða- félagi, sem auk þess var atvinnuljósmyndari og gerði okkur ferðina ógleymanlega með myndurn sínum. Héldum við sem leið liggur austur um kunn- ar sveitir, og þegar komið var á Landveginn var dýrlegt útsýni austur til Tindfjallajökuls, enda veður heiðskírt og tungl á lofti. Að Tungná komum við kl. 4 urn nóttina, og var lítið í ánni. Fannst bíl og bílstjóra, sem báðir voru frá Guðmundi Jónassyni, sem þeim hefði boðizt brattara þarna, enda aðeins 10 mínútna ferð yfir ána að þessu sinni. I Jökulheima var komið kl. 6.25. Skoðuðum við hinn prýðilega skála Jöklarannsóknafélagsins og dáðumst að dugnaði þeirraj sem komið höfðu honum upp. Fengurn við nú bílstjórann til að flytja okkur að jökulröndinni og tjölduðum þar á sandin- um. Halldór bílstjóri og Ásgeir félagi hans voru kvaddir með kærleikum, og héldu þeir þegar til byggða. En við fengum okkur tveggja stunda svefn áður en tekið væri til að selflytja farang- urinn hálftíma leið yfir mestu torfærurnar við jökulröndina. Nú var farið að hnýta saman sleðann og ganga frá farangri á honum. Gerð- 29
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Jökull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.