Jökull


Jökull - 01.12.1956, Side 42

Jökull - 01.12.1956, Side 42
 2. mynd. Merki sett upp á Þórðarhyrnu. — — A mark for triangulation is erected on Thórd- arhyrna. Ljósm. A. Kjartansson. um og drukkið þeirra skál, var haldið að Sel- fossi og kvöldverður snæddur. Þaðan var ekið í syngjandi rigningu sem leið liggur að Hófs- vaði á Tungnaá og komið þangað kl. 5,30. Hafði ferðin gengið að óskum. Þó voru erfið klakahlaup í veginum norður af Merkihvoli, en snjór var hvergi til trafala. Er að Tungnaá kom, tók að stytta upp. Ain var lítil, og kl. 7,30 var allt komið yfir hana, og til Jökul- heima komum við í bjartviðri kl. 11,05 á tríni- tatis. Hefðum við þó ekki mátt vera mörgum dögum fyrr á ferð án þess að lenda í torfær- um vegna snjóa. Brátt var gengið til náða. Með kvöldinu upphófst brullaupsfagnaður að nýju, en úti var skollinn á vestangarri og skafrenn- ingur, og þótti mönnurn betra en ekki að eiga athvarf í hlýjum skála. Lagt á jökulinn. Næsta morgun, 28. maí, var farið að búa jöklaleiðangurinn af stað, og var lagt á jökul- inn í sæmilega björtu veðri kl. 18,45 og stefnt á Pálsfjall. Fór snjóbíll Guðmundar fyrir og liafði venjulega 6—8 manns innanborðs, en stundum alla þrettán í einu, þá er snætt var, og á þaki tjöld, svefnpoka og bakpoka. Eftir fóru víslarnir, og var aftan í Jökli I álmsleði með masóníthúsi því, er verið hafði vinnuklefi Jean Martins vorið áður, en var nú notað sem eldhús. Auk þess bar hann allmikið af benzíni. A sleðanum aftan í Grendli var aðallega benzín. Er það mesti þyngslaflutningurinn í leiðangri sem þessum, og var lagt á jökulinn með samanlagt 1800 lítra. Færi var fremur þungt. Brátt tók fyrir allt skyggni, en kl. 2 um nóttina komum við að Pálsfjalli og slógurn þar tjöldum. Var þá tekið að rofa í loft og hiti kominn niður í -r- 4.5° C. Sami hiti var kl. 9 að morgni þess 30. Var Pálsfjall allt kuldalegra en þegar við gistum þar 11. júní árið áður. Tjörnin austan undir. hamrinum var ísi lögð, en ekki reyndist hann mannheldur. Af stað var haldið kl. 10,45, og skall brátt á hvassviðri af vestri með miklum skafrenningi, og Jróttumst við góðir að ramba rétt á Þórðar- hyrnu, en þangað var snjóbíll Guðmundar kom- inn kl. 11,20 og beið þar víslanna. Ekki var viðlit að vinna á hátindinum vegna hvassviðris, en við byggðum snjóborg (ígló) mikla, á meðan við biðum þess, að rokinu slotaði. Þau merki, sem sett voru upp á jöklinum sumarið 1955, voru af danskri gerð, úr léttum viði, en hin mestu hrófatildur (Sbr. mynd í Jökli 1955, bls. 25.), enda reyndust þau of ótraust gegn Vatnajökulsveðráttu. Ising braut þau niður, og stormar gjöguðu þau sundur. Þótti ekki hættandi á að nota þau að nýju, og tóku þeir Agúst Böðvarsson og Guðmundur Jónasson því það ráð, að láta skera járnplötur 1x4 m að flatarmáli. Var auðvelt að sveigja þær og gera úr þeim hólk, og með því að skrúfa tvo slíka hólka utan um þar til gerða einfalda járn- grind, fékkst sívalningur um 1.3 m í þvermál og nær 2 m hár, og gengu teinar úr honum um 1 m niður í snjóinn, en þegar búið var að koma sívalningnum upp, skyldi hann fylltur saman- þjöppuðum snjó og síðan málaður utan gulum röndum. Með því að vefja þessar járnþynnur þétt, var auðvelt að bera þær ofan á bakpoka. Kl. 16,00 hafði veður lægt svo, að hægt var að setja upp merkið á Þórðarhyrnu. Tók það tvo tíma, og kl. 20,00 var lagt af stað til Gríms- vatna. Er við konium á Grímsfjall kl. um 23,00 var 40

x

Jökull

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.