Jökull


Jökull - 01.12.1965, Blaðsíða 36

Jökull - 01.12.1965, Blaðsíða 36
Það var á liæsta hnúknum þar í kring, en heldur framarlega, svo var þaðan að sjá sem grjótrák lægi frá tindinum, sem gosmökkurinn kom. upp hjá, alla langleiðina mitt á milli Grænafjalls og Færinestinda, sem máske hefur verið aska. Þetta gos er það mesta, er ég man eftir, og að líkindum með meira vatnsflóði, og eldur sást viðvarandi allt sumarið og gufu lagði þar yfir veturinn eftir, um það að ári liðnu. Hlaupið 1913 man ég ekki um, hvað það stóð lengi. Mig minnir það standa stutt. yfir, en það kom víða fram af sandinum. Ég mun hafa farið fyrstur yfir sandinn, þá með póst, og var ekki fullfjarað úr sumum farvegum. Það hafði nálega sprengt alla jökulbrúnina frá Sigurðar- fitaál og austur á móts við það, sem sæluhúsið er nú, nema smáhöft, en þar fyrir austan voru stærstu skörðin upp í jökulinn. Það er ekki gott að álykta vatnsmagnið, þar sem hlaupið sprengdi jökulinn á öðrum degi frá því að vart verður við hlaupið og flóðaldan stígur strax svo hátt, að lítið hækkar á eftir, en þá rennur það fram á 3—4 dögum og er fullminnk- að eftir viku, allt annað þegar er að vaxa á aðra viku og þó er eftir aðalgusan, sem stendur þá skamman tíma. Þessi hlaup stóðu yfir skamm- an tíma. En 1922 voru bæði Núpsvötn og Skeið- ará lengi að vaxa. Einkennilegt var, að það mun hafa farið að vaxa fyrst útundir miðsandi, og það vissu menn ekki til fvrri. Ég var þá að fara með póst austur og var þá Skeiðará búin að vera í vexti í 5. daga, og fór sama dag út- vfir. Daginn eftir var allt ófært, sögðu Skaft- fellingar. Arið 1913 fór ég eftir skógi; þegar ég kom að Súlu, sá ég hún var svo á litinn, að það mundi ekki vera eðlilegt, hélt samt áfram í næstu brekkurnar við hana, svo ég sæi hvað henni liði. Talsvert óx á meðan ég var fyrir innan, en ekki mikið. Var þá orðið áliðið dags, en morguninn eftir er héðan að heiman að sjá allt eyrarlaust. Ég ger ráð fyrir, að eitt- hvað lítið eitt hafi hækkað í eftir það, en alls ekki mikið. Grænálónshlaupið 1935 var að vatnsmagni miklu meira en 1939, en þau voru livort um sig með miklu meira vatnsmagni fram úr Súlu en Skeiðarárhlaupin 1934 og 1938, sem bæði voru minni hér en 3 undanfarin hlaup, einkum hlaupið 1903. En stærsta hef ég séð jak- ana eftir hlaupið 1898 eða öllu heldur hefur það verið 1897, og virtist okkur það étskiljan- legur kraftur að koma því bákni fram á sand- inn, er þar lá. 142 JÖKULL Frá félaginu ÚR SKÝRSLU FORMANNS. Nýr skáli reistur i Jökulheimum. „A uppstigningardag 1965 lagði 10 manna hópur upp frá Revkjavík, en tveir þeirra, Magnús Jóhannsson og Guðmundur Jónasson, ætluðu í jökulferðina, hinir til skálagerðar. Var þar fyrst yfirsmiður, Stefán Bjarnason, sem einnig teiknaði skálann, Páll Pálsson húsasmið- ur, Halldór Gíslason trésmiður og málari, Hörð- ur Hafliðason þúsundþjalasmiður. Þrjár konur höfðu tekið að sér að annast matseld skála- manna. Auður Ólafsdóttir — með son, Ingi- björg Arnadóttir — með tvær ungar dætur — og Ólína Sigurgeirsdóttir. A sunnudag bættumst við Pétur Sumarliðason í þennan hóp, og urðu smiðir þannig sex að tölu, því að ég tek það skýrt fram, að ég gerði lítið gagn, þótti veður kalt og vott og dró mig löngum inn í eldhús- ylinn. Er ekki að orðlengja j^að, að þeir skálasmiðir sóttu verkið svo fast, að í vikulokin 5. júní var skálinn reistur, járn á þaki og tvöfalt gler í gluggum, þrátt fyrir mjög óhagstætt vinnuveð- ur flesta daga, stundum svo að varla var stætt við útivinnu nema fyrir hörkumenn. En ég dáðist með sjálfum mér að því, hversu allt var vandlega og vel unnið þrátt fyrir þetta. Síðar á sumrinu var sett gólf í skálann og vandlega borið lakk á það. Veggir og þak voru einangruð með plasti og vann Pétur Sumarliða- son mest að því, en hann dvaldist í Jökulheim- um frá 1. júní til 12. september og vann félag- inu mörg þarfleg handtök. Ýmsir urðu til að greiða götu félagsins ;. sambandi við efniskaup. Völundur h.f. sléttaði 15.000 kr. reikning í 10.000, Plastiðjan sló 10— 15% af sínum varningi, Guðm. Jónasson lánaði flutningsbíla fyrir hálfvirði eða minna. En mesta hönk upp í bak okkar eiga þeir skála- smiðir, sem ekkert hafa heimtað og ekkert fengið fyrir sína miklu vinnu — enn sem kornið er. — Nú er eftir að klæða skálann að innan, og er vonandi að það megi takast í sumar. Ég get ekki látið hjá líða að þakka þeim kon- unum, sem tóku Jrátt í ferðum þessum, bæði ágæta matreiðslu og þó sérstaklega hagsýni þeirra við innkaup vista, Án Jaess að orðlengja

x

Jökull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.