Jökull


Jökull - 01.12.1965, Síða 38

Jökull - 01.12.1965, Síða 38
PÉTUR SUMARLIÐASÖN: Vatnshæðarmæling í Tungnaá við Félaga sumarið 1965 Oscillations of River Tungnaá at Jökulheimar in Summer 1965 Jökulheimar, hús JÖRFI (Jöklarannsóknafélags íslands), stendur á hraunnefi, og sér þaðan vel yfir næstum marflata ármelana. Þegar Tungnaá byltist fram í óteljandi kvíslum, virðist stund- um eins og ljósgráir risakaðlar liggi eftir eyr- unum. Breytileiki vatnsmagnsins fer ekki fram hjá neinum, sem dvelst til lengdar í Jökulheimum. Ég hafði dvalið á þessum stað ágústmánuð 1963 og þá oft veitt þessu athygli, en verkefni mitt var þá veðurathuganir á þessum stað fvrir Veðurstofu íslands. Síðan hef ég dvalið þarna í tvö sumur, 1964 frá 1. júní til 1. september og sumarið 1965 frá 1. júní til 12. september. Sumarið 1964 gekk ég oft að ánni og fylgdist með breytileik hennar. Varð það til þess, að sumarið 1965 fékk ég Sigurjón Rist til þess að setja niður vatnshæðarkvarða í ána. Var kvarðanum valinn staður við Heimari-Félaga, en þar fellur áin í gegnum gamlan gíg og ligg- ur í kreppu milli gígveggjanna. Aðstaðan á mælistað var þannig, að áin féll í eins metra djtípum farvegi upp að rauðagjalls- nefi, en í vari undan straurn var kvarðinn settur. Fyrsti álestur á kvarðann var kl. 10.00, þann S. júní, og var vatnshæðin þá 114 cm. Fjarlægð frá mælistað að meginupptökum Tungnaár í Jökulkrók við Jökulgrindur er um 5 km. Á þessari leið rennur áin um hallalitla jökulsanda. Um þá kvíslina, er kemur úr Innri- Tungnaárbotnum, ræðir síðar. Fjarlægð frá Jökúlheimum að mælistað er um 2 km. Fyrstu vikuna fór ég eins oft að mælistað og tími og aðstæður leyfðu til þess að revna að finna, hvenær væri hámark og lágmark í ánni. Virtust sterkar líkur fyrir því, að lágmarkið væri kl. 8—10, en hámarkið um kl. 16—17. Hins vegar vantar að vita, hversu snöggt áin vex, Eru þó til nokkrir samfelldir álestrar með stuttu millibili, er sýna vel, hversu ört hún hefur vaxið. Auðvitað er öll hegðun árinnar háð veðrinu og fyrst og fremst hitastiginu. Eftir að vitneskja hafði fengizt um tíma lág- marks og hámarks, reyndi ég að ná sem flest- um aflestrum á þeim tímum, en því miður eru stórar eyður í þessa álestra, bæði vegna þess að þeir voru algert aukaverk og einnig vegna annarra atvika, er síðar verður um getið. Sumarið 1965 náðust um 200 álestrar, er skiptast þannig á mánuðina: júní 71, júlí 79, ágúst 29 og september 23. Lægstu og hæstu álestrar yfir tímabilið eru Jrannig: Lágmark: 108 cm 23. júní kl. 8.00. 115 cm 3. júlí kl. 8.00. 193 cm. 10. ágúst kl. 8.30. 120 cm 10. sept. kl. 10.20. Séð niður eftir ánni. Dökku Jrústirnar báðum megin ár eru rauðagjallshólarnir, sem hér eru kallaðir „Félagar". 144 JÖKULL

x

Jökull

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.