Jökull - 01.12.1967, Síða 65
Á Mynd 8 er línurit, er sýnir þær breytingar
á vatnsborði Langasjóar, sem við teljum, að
hafi átt sér stað s.l. 100 ár. Er því skipt í 5
tímabil: I. sýnir vatnsborð Langasjóar, áður en
jökullinn fór að hafa áhrif á það. II. hófst, er
jökullinn fór að hafa áhrif á vatnsborðið.
Þessu tímabili lauk um 1890, er jökullinn gekk
fram í vatnið og vatnsborðið náði hámarki og
efri strandlínan myndaðist. III. hófst, er vatn
fór að renria yfir bergþröskuldinn, þar sem
Utfallið er nú, og gróf sig hratt niður um 2 nr
í sprungið og veðrað yfirborð þröskuldarins,
en þar hægðist gröfturinn og neðri strandlínan
myndaðist. Þetta mun lrafa gerzt nrjög nálægt
1890. Á IV. tímabilinu fór bergþröskuldurinn
í Útfallinu jafnt og þélt lækkandi og jafnframt
lækkaði í vatninu. Á þessari öld hefur jökull-
inn verið að hörfa, og eftir 1960 fór innrennsli
jökulvatns til Langasjóar að minnka við það,
að vatn fór að renna frá jöklinum um skarðið
milli hans og Fögrufjalla, sem hefur farið stöð-
ugt dýpkandi. Tímabilinu lauk svo árið 1966,
er alveg tók fyrir aðrennsli jökulvatns til
Langasjóar nema í vorleysingum. V. tímabilið
hófst svo árið 1966, og lækkaði þegar í stað í
vatninu um u. þ. b. 0.5 m. Er líklegt, að vatns-
borð muni verða jafnhátt bergþröskuldinum í
Útfallinu eða lægra framvegis.
Við höfum áætlað legu Skaftárjökuls um
1600, eða um það leyti, sem Tungnaá varð
jökulsá, eftir rannsóknunum við Stórasjó að
dæma. Má þá gera ráð fyrir framrás jöklanna
á tímabilinu 1600—1890 sem hér segir:
Skaftárjökull, vestari tunga, uni 10—12 km
Tungnaárjökull, syðsti hluti, — 8—10 krn
Tungnaárjökull, nyrzti hluti, — 5—6 km
Það hefur verið vitað lengi, að kalda lofts-
lagstímabilinu fylgdi mikil framrás jökla, en
erfitt er að fá fram ákveðnar tölur um þessa
framrás, og þau ummerki, sem túlkuð hafa
verið, hafa gefið lágmarksgildi.
Niðurstaða rannsókna okkar bendir til þess að
sveiflur í stærð jökla hafi verið mjög miklar
á undanförnum öldunt og að skriðjöklar Vatna-
jökuls hafi getað verið u. jt. b. 20 km styttri á
landnáms- og söguöld heldur en þegar þeir
náðu hámarki á nítjándu öld.
JÖKULL 17. ÁR 299