Jökull


Jökull - 01.12.1967, Blaðsíða 79

Jökull - 01.12.1967, Blaðsíða 79
Júlídagar á Vatnajökli PÉTUR ÞORLE I FSSON Að kvölcii þess 19. júlí 1967 safnaðist saman á Reykjavíkurí'lugvelli sjö manna hópur úr Flugbjörgunarsveitinni í Reykjavík. Höfðum við ákveðið að freista þess að fara á skíðum suður yfir Vatnajökul með viðkomu í Kverk- fjöllum og nokkurra daga dvöl i Grímsvötnum. Þessir bjartsýnu ferðalangar voru, auk mín, þeir Birgir Rafn Jónsson, Hákon Sigurðsson, Gunnar Gunnarsson, Jörundur Guðmundsson, Freyr Bjartmars og Garðar Siggeirsson. Við liófum fyrsta áfanga þessa ferðalags með því að stíga um borð í Blikfaxa Flugfélags Is- lands. Eftir tæplega klukkustundar flug, lengst af í þoku, var lent heilu og höldnu á Akur- eyrarflugvelli. Þar biðu okkar framámenn Flug- björgunarsveitarinnar á staðnum með íormann sinn, Gísla Lórenzson í fararbroddi, en þeir höfðu tekizt á hendur að flytja okkur næsta dag suður að Dyngjujökli, sem er einn af skrið- jöklum Vatnajökuls, eins og kunnugt er. Eftir góða næturhvíld hjá félögum okkar á Akureyri var lagt af stað. Farartækin voru tveir fjallabílar Flugbjörgunarsveitar Akureyrar. Var annar notaður undir farangur okkar, en hinn undir mannskapinn og stjórnaði honum stór og stæðilegur náungi, Hallgrímur Gíslason að nafni. Haldið var austur sveitir, sem leið ligg- ur, og aðeins numið staðar sem snöggvast á Fosshóli við Skjálfandafljót. Einnig var höfð nokkur dvöl í Reynihlíð við Mývatn, en þar snæddum við liádegisverð. I þungskýjuðu og þokufullu veðri var lagt á Mývatnsöræfi áleiðis austur að Jökulsá á Fjöll- um. Heldur þótti okkur kuldalegt um að litast, því að fjöll voru flest hvít niður í miðjar lilíð- ar. Var nú haldið áleiðis í Herðubreiðarlindir, og var vegur góður. I Þorsteinsskála í Lindun- um komum við um hálf fjögur leytið og höfð- um þar um einnar stundar viðdvöl. Þaðan var svo ekið greitt suður á vikra og áleiðis vestur að Dyngjufjöllum. Við Drekagil var sveigt til vinstri að Dyngjuvatni og gekk ferðin greitt. Frá vatninu var tekin stefna á Dyngjujökul, skammt austan Urðarháls, og er sú vegalengd um 20 km. Heldur fannst okkur jökuljaðarinn óhreinn, en að könnun lokinni kom í ljós að skammt var upp í svo til hreinan snjó. Félagar okkar, Akureyringarnir, gerðu það ekki endasleppt, því að þeir skildu ekki við okk- ur, fyrr en allt dótið var komið á snjó. Við kvöddum nú Akureyringana, hlóðum sleðana og tókum stefnu upp á Dyngjujökul í átt til Kverkfjalla. Þá var klukkan um 11 að kvöldi og sól að setjast, en allan seinni part þessa dags, sem var fimmtudagur, liafði hún skinið af heiðum himni. Eftir sólfall tók að frysta og léttist færið brátt, enda snjór nýfallinn. Hing- að og þangað um jökulinn voru sandhryggir, þreytandi yfirferðar, en er hærra dró á jökul- inn, liurfu þeir smátt og smátt. Um klukkan 2.30 létum við staðar numið og höíðum þá farið á að gizka 5 km. Við reistum nú tjöld okkar í flýti og hófum matseld, en því næst var farið i háttinn. Föstudaginn 2L júlí var farið á ról kl. 8.30. Var veður þá liið fegursta og færi ágætt. Héldum við nú áfram í suðausturátt, og er við höfðum skammt larið opnaðist útsýn til Kverkfjalla og sýndust þau skammt undan. Um hádegisbilið vorum við staddir í línunni Kistufell—Kverkfjöll, og var þá numið staðar og hafin eldamennska. Sólin var nú komin hátt á loft, og færi tekið að þyngj- ast. Okkur kom saman um að ferðast heldur á nóttunni, þar eð illverandi var undir berum hirnni yfir hádaginn. Við þraukuðum þó áfram til kl. 4 um daginn, og vorum þá staddir suð- vestur af Kverkfjöllum. Þarna slógum við upp tjöldum í annað sinn og dunduðum við hitt og þetta fram undir kvöklið. Við höfðum hugs- að okkur að láta tjöldin standa þar, sem þau JÖKULL17. ÁR 313
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106

x

Jökull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.