Jökull


Jökull - 01.12.1967, Side 78

Jökull - 01.12.1967, Side 78
The aerial photo is published here mainly zuitlr tlie purpose of pointing out an area inte- resting for a detailed study, before jökulhlaups wash the moraines away. Hinn 27. september 1963 fór ég, ásamt Magn- úsi Jóhannssyni, í könnunarflug yfir vestur- hluta Vatnajökuls. Var erindið að huga að breytingum á GrímsvatnasvæÖinu, taka mynd af mastrinu norðvestur af Pálsfjalli til að sjá, hversu mikil nettóleysing hefði orðið þar, síðan þar var mælt 3. júní s. ár, og í þriðja lagi skyldi kannað, hversu sprunginn Síðujökull væri kringum Pálsfjall, en Jrar var íarið að bera á auknum sprungum sumarið 1962. í bakaleið frá Grímsvötnum var flogið niður yfir Skeiðar- árjökul og til Fagurhólsmýrar til Jtess að bæta benzíni á Cessnuna. Klukkan nær 18 flugum við yfir jaðar Skeiðarárjökuls austarlega. Skyggni var ágætt og sól Jrað lágt á lofti, að smádrættir í landslaginu Jrarna framan við jök- ulinn teiknuðust óvenju skýrt. Eg tók þá á lit- filmu J)á mynd, sem er kápumynd [jessa heftis Jökuls. Miðbik myndarinnar er um 4 km suðvestur af aðalútfalli Skeiðarár. Astæðan fyrir [tví, að ég tók þessa mynd, voru Jieir óvenjulega reglu- lega röðuðu jökulgarðar, sem þarna voru frarn- an við jökulinn á kafla. Eru þeir miðsvæðis á myndinni. Þeir eru auðsæilega yngri en árfar- vegurinn í neðra hægra horni myndarinnar, en svo virðist, sem rekja rnegi austurbakka þess far- vegs (austur er upp á myndinni) undir jökul- görðunum alveg inn að jökulrönd og hefur Jrví líklegast verið þarna farvegur vatns undir jökl- inum, áður en hann hopaði af þessu svæði. Far- vegurinn austan jökulgarðanna er aftur á móti greinilega yngri en [reir. Framan við jökulgarð- ana er urmull al’ jakakerjum og eru þau skýr- ust í árfarveginum í neðra hægra horni. Hafa jakarnir borizt fram á sandinn í jökulhlaupum. Jökulgarðarnir eru 20 eða 21 að tölu, þar af tveir næsta ógreinilegir. Breidd svæðisins frá yzta garðinum að jökuljaðri er um 700 m. Spurningin er nú: Hvernig hafa Jtessir litlu garðar myndazt? Þeirri spurningu verður ekki svarað með vissu nema með Jrví að kanna þá nán- ar, en hin reglulega niðurröðun þeirra virðist benda til þess, að þeir hafi myndazt einn ár hvert. Lögun Jreirra bendir eindregið til Jress, að þeir hafi myndazt meðfram framjaðri jökuls- ins, og eru þeir þá annað hvort ýttir saman af jöklinum, einn vetur hvern, eða — sem er líklegra — myndaðir af vatnsósa jökulurð, sem hefur þrýstst fram undan jökuljaðrinum. En sé um árlega garða að ræða, hefur árleg nettó- liopun þessa hluta jökuljaðarins næstu tvo ára- tugina fyrir 1963 verið að meðaltali um 33 m, en samkvæmt hinum árlegu mælingum á lengd- arbreytingum Skeiðarárjiikuls hefur meðalhop- un austurhluta jökulsins Jtessa áratugi verið um 24 m, en hopun framjaðars jökulsins í heild um 40 m, og kemur þetta dável heim og sam- an, en erfitt er að finna samræmi frá ári til árs, enda er hin árlega hopun jökulsins sam- kvæmt mælingum rnjög misjöfn á ýmsum hlut- um jökuljaðarsins. Það var sænski jarðfræðingurinn frægi, Ger- ard De Geer, sem fyrstur reyndi að færa rök að því með hvarfatali sínu, að jökulgarðar á Bromma-svæðinu í nágrenni Stokkhólms, sem eru um 10 000 ára gamlir, væru árlegir (annual), myndaðir með Jteim hætti, að jökullinn hafi ýtt einum slíkum garði saman vetur hvern. En síðan hafa ýmsir borið brigður á, að garðarnir séu myndaðir með þessum hætti. M. a. hefur prófessor Gunnar Hoppe í Stokkhólmi sýnt fram á, að í Norðurbotni í Svíþjóð sé bilið milli slíkra garða 100—150 m, en samkvæmt hvarfatali ætti bilið á milli þeirra, ef Jteir væru árlegir, að vera a. m. k. helmingi meira. Væri æskilegt að kanna jökulgarðana framan við Skeiðarárjökul nánar, en vel getur svo farið, að næsta eða næstu Skeiðarhlaup skoli Jteim burtu. 312 JÖKULL 17. ÁR
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106

x

Jökull

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.