Jökull - 01.12.1967, Side 91
unnu á jöklinum sumarið 1967 og verða þar
aftur sumarið 1968. Sérkort af jöklinum munu
þeir gera og fella inn í landsnetið.
Langjökull. I þessu hefti er sérstök grein eftir
Guttorm Sigbjarnarson jarðfræðing um lengd-
arbreytingar jökulsporða Langjökuls, einkum
Hagafellsjökla.
Mýrdalsjökull. Mæliniðurstaða Kjartans Jó-
hannessonar um 9 metra hop jökulsins norðan
Merkigils er hin fyrsta þekkta lengdarbreyting
þar, því að viðmiðunarmerkið var sett upp
haustið 1966.
Vatnajökull. Eftirtektarverðast er, að rnegin-
jöklarnir að sunnan, Skeiðarár- og Breiðamerk-
urjökull, hafa hopað verulega, en hinir smærri
gengið fram. Mest hefur Breiðamerkurjökull
hopað upp af Nýgræðum, eða unr 150 m. Unr
þetta segir Flosi Björnsson á Kvískerjum í
bréfi: „Upp af Nýgræðum hefur verið að und-
anförnu þunnur og flatur jökull framan við
meginjökulinn. Hefur hann nú horfið að mestu
og jökullinn því, a. nr. k. að nokkru leyti,
stytzt þarna nreira en að venju.“
Þorsteinn Guðmundsson frá Reynivöllum,
sem mælir Breiðamerkurjökul austan Jökulsár,
tekur fram í bréfi, að auk þess að lropa á mæli-
stöðunum unr 45 og 80 metra, hefur allur jök-
ullinn lækkað mikið yfir að líta.
Sumarið 1967 byggði vegamálastjóri hengi-
brú á Jökulsá á Breiðanrerkursandi, skamnrt
neðan við jökullónið. Á útfalli fljóta jaka-
stykki fram til sjávar.
Skarphéðinn Gíslason á Vagnsstöðunr getur
þess í bréfi, að þverhníptir klettaveggir séu að
jökulsporðunum bæði á Eyvindstungnakolli og
í Birnudal. Engar lengdarbreytingar eigi sér
því stað, en jöklarnir hafa lækkað.
Skarphéðinn hefur nokkrar áhyggjur af
Hólmsá, að hún breyti um farveg og lrlaupi
austur i Hleypilæk og eyði graslendi á Austur-
Mýrum. Telur hann ástæðu til fyrir æðstu
stjórn vegamála að ugga að sér i tíma. Skarp-
héðinn segir m. a.: „Hólmsárjökull þynnist
ískyggilega mikið, svo að hann sýnist muni geta
horfið niður í aur austan Hólmsár, og þá virð-
ist mér, að áin geti flætt yfir Austur-Mýrar.
Áin kæmi austur fyrir norðan ölduna, sem
liallar nú til norðurs að jökli.“
Framan við Hoffellsjökul eru jökullón og
liggur mælilínan yt'ir þau. Jöklamælingamaður-
inn Leifur Guðmundsson i Hoffelli beið þess,
að manngengur ís kæmi á lónin. Er traustur
ís var kominn, hindraði snjór og aðrar aðstæð-
ur, svo að mæling féll niður. Hliðra þarf lín-
unum út fyrir lónin, ef unnt er.
Bruarjökull hljóp 1963/64. Leiðangur frá
Egilsstöðum setti upp merki við jökuljaðar í
janúar 1964 (sbr. Jökul 1963, bls. 19). Leið-
angur félagsins setti ennfremur upp viðmið-
unarmerki í júlí 1964 (sbr. Jökul 1964, bls.
104). Landmælingar Islands hafa tekið flug-
myndir af jökuljaðrinum, en ekki hefur enn
unnizt tími til að vinna úr þeirn og reikna út
lengdar- og rúmmálsbreytingar. (Sbr. Sigurð
Þórarinsson í Jökli 1964, bls. 76).
JÖKUL.L 17. ÁR 325