Jökull - 01.12.1994, Blaðsíða 79
Vorferð JORFI 1994
Magnús Tumi Guðmundsson
Raunvísindastofnun Háskólans Dunhaga 3, 107 Reykjavík
FERÐIN
Helsta verkefni vorferðarinnar, sem farin var dag-
ana 16.-22. júní, var flutningur nýs geymslu- og snyrti-
húss upp á Grímsfjall en salernismál hafa verið þar
erfið undanfarin ár. Rannsóknaverkefni voru mæling
vatnshæðar og vetrarákomu í Grímsvötnum, íssjár-
mælingar, uppsetning veðurstöðvar á Brúarjökli, mæl-
ingar á ísskriði á Tungnaárjökli og þyngdarmælingar á
Bárðarbungu. Þátttakendur í ferðinni voru 37 en farar-
stjórar voru Jón E. Isdal og Magnús Tumi Guðmunds-
son. Matráðskona var Sólveig Kristjánsdóttir. Fjórir
snjóbílar tóku þátt í ferðinni: Snjóbíll Landsvirkjunar,
Jaki, snjóbfll Jöklarannsóknafélagsins, nýr snjótroðari
HSSR og snjóbíll FBSR. Einnig voru í ferðinni 6
jeppar og 3 vélsleðar.
Lagt var af stað með húsið á dráttarbíl aðfaramótt
16. júní en meginhluti hópsins fór frá Reykjavík síðar
um morguninn. Talsverður snjór var á leiðinni innan
við Þröskuld en það kom ekki að sök því hefill Lands-
virkjunar ruddi leiðina daginn áður. Greiðlega gekk að
koma skálanum inn á rönd en þegar byrjað var að draga
húsið brotnuðu undir því skíðin. Viðgerð og styrking á
skíðunum stóð yfir fram undir morgun þess 17. en þá
var lagt af stað. Snjóbfll Landsvirkjunar og snjótroðari
HSSR drógu húsið með aðstoð snjóbfls FBSR, norður
eftir jökulröndinni að Kerlingum og þaðan beint í
austur áleiðis á Grímsfjall. Venjuleg leið upp Tungna-
árjökul var ekki talin fær vegna sprungna. Ferðin gekk
nú áfallalaust og kom húsið á fjallið síðdegis á þjóð-
hátíðardaginn. Um helmingur hópsins fylgdi húsinu en
hinir höfðu farið á Grímsfjall kvöldið áður.
Strax var hafist handa við að koma húsinu á grunn-
inn austan við nýja skálann. Var það mikið verk og
unnu smiðir og suðumenn baki brotnu fram á mánu-
dag við að ganga frá húsinu. Er það hin mesta völ-
undarsmíð með salerni, gufubaði og sturtu. Gufa úr
holunum austan við nýja skálann er notuð í gufu-
baðinu og til að bræða vatn í sturtuna. Flestir þeirra
sem sáu um uppsetningu og smíði snyrtihússins héldu
til byggða á sunnudag eða mánudag. Var það um
helmingur hópsins.
Hluti leiðangursmanna vann allan tímann við
ýmsar mælingar. Þriðjudaginn 21. júní fór svo allur
hópurinn á Bárðarbungu. Þar var mæld vetrarákoman
og farið fram á norðvesturbrúnina þar sem bungan er
hæst. Skyggni var takmarkað en veður ágætt.
Veður yfirleitt gott í ferðinni. A Grímsfjalli hreyfði
varla vind allan tímann þó svo þar hafi verið þoka
framanaf. Sú þoka náði þó lítt útfyrir Grímsfjallið og
nutu mælingamenn veðurblíðu niðri í Grímsvötnum og
annarstaðar á jöklinum. Síðustu dagana vermdi sólin
svo skálana þrjá á Svíahnúk Eystri. Höfðu menn við
orð að þröngt væri orðið með byggingarlóðir á fjallinu
og næst yrði lfldega að byggja ofaná húsin sem fyrir
eru. Þá var einnig nefnt að taka þyrfti upp húsnúmer
svo fólk fari ekki húsavillt þegar komið er á fjallið.
RANNSÓKNIR
1. í Grímsvötnum var vatnsborð mælt með GPS
GIS tækjum en með þeim fæst staðsetning og hæð
með um eins metra nákvæmni. Er þetta í fyrsta sinn
sem GPS tæki eru notuð til að mæla vatnshæð Gríms-
vatna. Eins og undanfarin ár sást ekkert vatn vestast í
Vötnunum, þar sem Vatnshamar, Naggur og Mósar
stóðu áður upp úr jöklinum. Hins vegar var vatns-
pollur á gosstöðvunum frá 1983 undir Svíahnúk
Vestri. Vatnsborð í pollinum var 30.5 m lægra en
miðja íshellunnar og bendir það til þess að varla geti
munað meiru en einum metra því og réttu vatnsborði.
Vatnsborðið telst því hafa verið 1425±2 m y.s. Hefur
JÖKULL, No. 44
77