Jökull - 01.12.1994, Blaðsíða 71
Aðalsteinn Jóhannsson frá Skjaldfönn
Fæddur 16. maí 1909, dáinn 1. desember 1993.
Ritstjóri Jökuls kom fyrir nokkru að máli við
undirritaðan og bað hann að minnast með fáeinum
orðum Aðalsteins bónda á Skjaldfönn við Djúp. Þegar
ég fór að íhuga málið nánar, fannst mér ég illa ráða
við þetta hlutverk. Lét þó til leiðast í samráði við böm
Aðalsteins.
Segja má með nokkrum rétti að við Aðalsteinn
höfum lengst ævi verið nágrannar - aðeins Dranga-
jökull á milli okkar. Við mér blasti jökullinn af bæjar-
hlaði hvem bjartan dag. Heiman frá Skjaldfönn er
hann ekki jafn áberandi fyrir sjónum manna, en
minnir þeim mun betur á sig þegar norðaustan strokan
stendur af honum niður dalinn. Við Aðalsteinn vomm
á líkum aldri með svipaða aðstöðu í tilverunni. Báðir
bjuggum við á afskekktum og harðbýlum jörðum þar
sem sveitungum og nágrönnum fór sífækkandi eftir
því sem á öldina leið.
Við Aðalsteinn mældum báðir breytingar á skrið-
jöklum Drangajökuls, ég í Reykjarfirði en hann í
Kaldalóni. Það mun hafa verið árið 1933, að Jón
Eyþórsson fékk Aðalstein til liðs við sig að annast
mælingar á Kaldalónsskriðjöklinum. Þá náði brún
hans, víða veggbrött og margra mannhæða há, heim
undir Einangursá að norðan og Votubjargargil að
sunnan. í samfellt 49 haust sinnti Aðalsteinn þessum
mælingum og þótti miður að heilsan skyldi ekki leyfa
sér að sinna jöklamælingastarfinu í fulla hálfa öld. A
þessari hartnær hálfu öld, sem Aðalsteinn fylgdist
með skriðjöklinum mun hop hans hafa numið hátt á
þriðja kílómetra og samfara hopinu varð gífurleg
þynning á jöklinum. Það nýja land, sem í ljós kom
undan jöklinum klæddi Aðalsteinn ömefnabúning við
hæfi, og eru örnefni hans s.s. Úlfur, Kverk, Gnúi,
Fosshamrar og Slæðufoss góð viðbót við þau sem
fyrir voru í Lóninu.
Á Skjaldfönn hafa ættfeður Aðalsteins búið síðan
fyrir 1840. Ég kom þangað fyrst árið 1959 - það var
um sumar, líklega í byrjun júlímánaðar. Hafði ég þá
brugðið mér til næsta bæjar - þvert yfir Drangajökul,
frá Reykjarfirði á Ströndum að Skjaldfönn. Þetta
skeði um nótt í björtu og góðu veðri. Eftir 6-7 stunda
göngu barði ég dyra að Skjaldfönn. Aðalsteinn vinur
JÖKULL, No. 44
69