Jökull - 01.12.1994, Blaðsíða 86
FRÉTTABRÉF
ÁRSHÁTÍÐ
Oddur Sigurðsson, ritari félagsins, annaðist útgáfu
Fréttabréfsins og kom það reglulega út.
SKÁLAMÁL
Skálanefnd vann að því stórvirki að smíða hús og
koma því upp á Grímsfjall. I þessu húsi er nú komið
langþráð salerni, auk gufubaðs, geymslu og afdrepis
til viðgerða á tækjum. Fjölmargir aðilar styrktu smíði
hússins og hefur stjóm félagsins sent þeim skrautritað
þakkarskjal. Skálarnir í Jökulheimum, Kirkjubóli,
Kverkfjöllum, Goðahnúkum og Esjufjöllum eru í
rnjög góðu lagi. Borið var á skálann á Goðahnúkum.
Húsnæðismál félagsins í Reykjavík eru nú í sama
lagi og fyrr í húsi Ferðafélags Islands. Þar leigjum við
fundarherbergi á efstu hæð og geymslu í kjallara þar
em birgðir okkar af Jökli og ýmis gömul skjöl félags-
ins. Auk þess höfum við aðgang að 60 manna sal með
eldhúsi í risi hússins. Alexander Ingimarsson er full-
trúi félagsins í húsnefnd og eru félagar sem hafa
áhuga á að nýta sér húsnæði þar hvattir til þess að hafa
samband við hann. Samningur okkar við Ferðafélagið
rann úr í árslok 1994, en hefur verið endurnýjaður.
BÍLAMÁL OG FARARTÆKI
Síðastliðið vor keypti félagið af Ríkiskaupum sex
manna snjóbíl, Canadair Flextrac CF 20 árgerð 1975.
Um er að ræða bíl sem oft fékkst í ferðir félagsins á
árunurn 1975 til 1985, Jaka Landsvirkjunar.
HAUSTFERÐ
Haustferðin í Jökulheima var farin 9.-11. septem-
ber og tókst hún einstaklega vel. Farið var að sporði
Tungnaárjökuls og m. a. skoðaður íshellir (450 m
langur og allt að 2,3 m hár) sem myndast hafði í
gömlu útfalli Tungnaár. Alls fóru 27 í ferðina. Farar-
stjóri var Alexander Ingimarsson.
Árshátíð var haldin laugardag 12. nóvember og
tókst hún mjög vel. Samkoman hófst í Mörkinni 6 og
síðan í sal Flugleiða í Síðumúla. Að þessu sinni sá
bílanefnd félagsins urn þessa hátíð og stjómin þakkar
öllum þeim sem unnu að undirbúningi mjög vel
unnin störf.
GJÖRFI
Skíðagöngufélagar í GJÖRFI fóm sínar venjulegu
heilsubótagönguferðir frá Nesti í Ártúnsbrekku.
FYRIRHUGAÐAR RANNSÓKNIR
Það er venja í lok þessarar skýrslu að drepa á
rannsóknaverkefni sem framundan eru. Það verður þó
með styttra rnóti nú. Vegna framhlaups Tungaárjökuls
er enn nokkur óvissa um hvernig rannsóknum á
Grímsvötnum verður háttað í vor. Ur því mun ráðið á
næstu vikum. Þá vil ég nefna að nokkuð hefur verið
rætt í stjórninni að Langjökull er nú einn eftir af stóru
jöklunum og vel færi á því að félagið aðstoðaði við
mælingar á honum, ef ekki reynist unnt að fá
opinbera aðila til þess að kosta verkið með svipuðu
sniði og á öðrum meginjöklum landsins. Enn hafa
engar ákvarðanir verið teknar um mælingar á
jöklinum.
Þá vil ég minna á að 20. ágúst á þessu ári hefst hér
alþjóðlega ráðstefnu um rof jökla, sem er tileinkuð
Jóni Eyþórssyni, stofnanda og fyrsta formanns þessa
félags. Ráðstefnan er haldin hér á landi í tilefni af því
að 100 ár eru frá fæðingu Jóns.
Helgi Bjömsson
84
JOKULL, No. 44