Jökull - 01.12.1994, Blaðsíða 76
sléttur grunnur. Fjallsár-kvíslin, sem kemur undan
jöklinum fast við fjallið, rennur nú fram eftir þessari
lægð, en lækur úr Hrossadal notar enn gamla far-
veginn eftir Fjallsá.
Frá Fjallsárlóni og töluvert vestur fyrir mælinga-
staðinn upp af Fitjum hefur jökullinn þynnst talsvert
uppeftir og gæti verið að þar sé að myndast lón. A
mælingastaðnum þar hefur undanfarin ár verið að
koma í ljós þunnur malarhryggur og snýr hann eftir
mælingarstefnunni. I haust var jökullinn horfinn af
þessum hrygg, svo að tiltölulega sléttur grunnur
sýndist taka þar við.
Á mælingastaðnum upp af Gamlaseli hefur lón-
pollurinn heldur stækkað í sumar, svo að þar varð að
víkja nokkra metra austur með mælingarlínuna....
hefur sýnilega verið mikil leysing á skriðjöklunum í
þessum hlýindum, sem byrjuðu um miðjan október og
haldast reyndar ennþá.
Kvíárjökull sýnist vera óvenju sléttur og greiðfær
langt uppeftir, en jaðarinn á mælingastaðnum virðist
þó alveg hafa staðið í stað. Þó getur verið að grjót og
sandlag sem hylur fremsta hluta jökulsins hafi aðeins
þykknað, því ég taldi ógjörlegt að sjá hvar jökull tekur
við undir. Greinilegt er að glæri jökullinn sem tekur
við bak við þennan grjótjökulkafla hefur lækkað í ár
og sýnist mér vera þunnt á fastan grunn skammt suður
af mælingarstaðnum....Eg tók eftir því að vestan í
Kambsmýrarkambi, neðst við lónpollinn sést á glæran
jökulblett, sem sandur hefur hreinsast af, en langt er
síðan þama var talið jökullaust.”
Vatnajökull
Skeiðarárjökull vestur - Ljóst er að framhlaupinu
er lokið að þessu sinni og jökullinn tekinn að hopa.
Vegna misræmis er ekki hægt að gefa upp hopið ná-
kvæmlega í metrum.
Morsárjökull - Jökullinn skreið fram um 30 m frá
í fyrra. Að sögn Braga Þórarinssonar var ekki að sjá
neina sérstaka missmíð á jöklinum sem skýrt gæti
framrásina.
Breiðamerkurjökull - Um mælingastaðinn við
Fellsfjall segir Steinn Þórhallsson á mælingablaði:
„Þetta er nú meira ágiskun en mæling þar sem vatn
fellur meðfram jöklinum á mælingastað. Jökuljaðar er
ekki brattur, virðist þynnri en í fyrra og minna spmng-
inn. Við Jökulsá .... breikkar vatnið milli jökuls og
lands....” og því verður ekki mælt þar um sinn.
Fláajökull - Eyjólfur Guðmundsson segir í bréfi að
auk mælinga í tveim aðallínum þar sem jökullinn
hopaði, var mælt á tveim stöðum á milli mælilínanna
og þar reyndist jaðarinn hafa skriðið fram á sama tíma.
Summary
Glacier Variations 1930V1960, 1960V1990
and 1992V1993
In 1993 glacier variations were recorded at 46 lo-
cations, 11 tongues showed advance, 2 were station-
ary and 25 retreated. Eight of the visited stations were
inaccessible because of snow, debris, rivers or la-
goons. The summer of 1993 proved to be cool but rel-
atively high tempertures in the fall that extended into
November accounted for a substantial ablation. Múla-
jökull was still surging in September. Results of direct
measurements of mass balance that are carried out at
the National Energy Authority and the Science Insti-
tute of the University of Iceland are reported in table
2.
74
JOKULL, No. 44