Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2014, Blaðsíða 8
8 Fréttir Vikublað 21.–23. október 2014
LögregLan vopnast með Leynd
n Lögregluyfirvöld keyptu 200 MP5-hríðskotabyssur n Allar lögreglubifreiðir búnar Glock 17 og MP5 n Báðu um rafbyssu en fengu vélbyssu n Skýrsla notuð til rökstuðnings kaupum
N
ú fer fram mesta breyting á
vopnabúnaði íslenska lög-
regluliðsins síðan sérsveit
ríkislögreglustjóra var stofn-
uð 1982.
Allar lögreglubifreiðar á landinu
verða búnar MP5-hríðskotabyssu og
Glock 17-hálfsjálfvirkri skammbyssu.
Þetta hefur DV eftir þremur lögreglu-
mönnum sem segja viðbúnaðinn
vegna skotárása sem kollegar þeirra á
Norðurlöndunum hafa þurft að tak-
ast á við á undanförnum árum og þá
einnig skotárás í Hnífsdal þegar ölv-
aður maður skaut úr haglabyssu að
eiginkonu sinni árið 2007. Heimildir
DV hermdu einnig að lögreglubif-
reiðir á Vestfjörðum væru nú þegar
búnar þessum vopnum. Sýslumað-
urinn á Vestfjörðum, Úlfar Lúðvíks-
son, treysti sér ekki til þess að ræða
um málið þegar DV leitaði eftir því í
gær og benti á ríkislögreglustjóra.
Samkvæmt þessum öruggu heim-
ildum DV er búið að kaupa 200
MP5-hríðskotabyssur en þó eitthvað
minna af Glock þar sem lögreglu-
embættin eiga nú þegar til eitthvað
af þeim. Þessar byssur munu verða
aðgengilegar almennum lögreglu-
mönnum í sérstökum vopnakassa
sem verður að finna í öllum lög-
reglubifreiðum á landinu. Það er síð-
an ákvörðun hvers embættis fyrir sig
hvenær opna þarf kassann og grípa
til vopna.
DV sendi fyrirspurn til Jóns F.
Bjartmarz, yfirlögregluþjóns hjá
embætti ríkislögreglustjóra, vegna
málsins. Nánar er fjallað um svar
hans hér til hliðar en hann gaf hvorki
upp kostnað við kaupin, fjölda byssa,
hver tók ákvörðunina, né hvenær
þær komu til landsins.
Báðu um rafbyssur en
fengu hríðskotabyssur
„Þetta fór í gang eftir það sem gerð-
ist á Norðurlöndunum og þarna er í
raun verið að undirbúa menn fyrir
svipaðar aðstæður og komu upp í
Noregi með Breivik,“ sagði lögreglu-
maðurinn sem ekki vildi koma fram
undir nafni.
Hann sagði það skjóta skökku við
að þegar lögreglumenn hafi beðið
um rafbyssur þá hafi samfélagið farið
á hvolf en þess í stað hafi þeim verið
réttar hríðskotabyssur og hálfsjálf-
virkar skammbyssur.
„Þetta verður í læstri kistu í öllum
lögreglubifreiðum og þarna er verið
að tryggja að menn hafi eitthvað í
höndunum til að takast á við erfiðar
aðstæður. Við erum þjálfaðir í að
fara í útköll sem við erum bara ekki í
stakk búnir að takast á við vegna þess
að við höfum ekki verkfærin til þess,“
segir lögreglumaðurinn og bætir við
að almenn ánægja sé meðal lög-
reglumanna vegna vígbúnaðarins.
Varnarúðinn dugar skammt
„Ef einhver myndi byrja að skjóta af
byssu niðri í bæ, segjum að það komi
upp þó svo að það sé ólíklegt, þá
erum við ekki að fara að meisa hann.“
Með þessu vilja lögregluyfirvöld
minnka viðbragðstíma vopnaðra lög-
reglumanna þar sem það getur tekið
sérsveitina allt upp í tvo klukkutíma
að mæta á vettvang.
Til að útskýra nánar hvað lög-
reglan á við með þessu þá er hægt að
líta til ársins 2007. Þá skaut karlmað-
ur í Hnífsdal úr haglabyssu að eigin-
konu sinni á heimili þeirra. Sérsveit
ríkislögreglustjóra var kölluð út
um leið en björgunarþyrlan Líf
flaug með lögreglumennina og
lenti á bryggjunni við Hnífsdal.
Þyrlan lagði af stað frá Reykjavíkur-
flugvelli klukkan 23.41 og lenti 00.43.
Tæpum 10 mínútum síðar var sér-
sveitin komin að heimili mannsins.
Tilkynning til Neyðarlínunnar barst
klukkan 23.20 og tók það því sér-
sveitina rúman einn og hálfan tíma
að mæta á staðinn eftir að fyrsta sím-
talið barst.
Lögregluyfirvöld vilja meina að
á þeim tíma hefði maðurinn get-
að myrt heimilisfólk og nágranna
án þess að nokkur einasti lögreglu-
maður á svæðinu gæti komið í veg
fyrir það. Með MP5-hríðskotabyssu
og Glock-hálfsjálfvirkri skammbyssu
gætu almennir lögreglumenn ráðið
betur við aðstæður.
Vopnaðir á Vestfjörðum
Eftir skotárásina í Hnífsdal þá mun
sýslumaðurinn á Ísafirði, sem er
starfandi lögreglustjóri á Vest-
fjörðum til áramóta,
hafa fengið umrædd
vopn og vopnakassa í
bifreiðir embættisins. Emb-
ættið nær yfir Ísafjörð, Pat-
reksfjörð, Bolungarvík og
Hólmavík. „Ég treysti mér
ekki til þess að fara út í þessa
umræðu,“ sagði Úlfar Lúð-
víksson, sýslumaðurinn á Ísa-
firði, spurður um umrædda vopna-
kassa.
Spurður hversu margar byssur
væru í umferð hjá lögreglunni á
Vestfjörðum þá ítrekaði Úlfar að
hann vildi ekki fara út í þessa um-
ræðu núna en sagði aftur á móti
að „þessi öryggismál væru í ágætu
standi.“ Aðspurður hvenær embætti
undir honum hafi fengið umrædd
vopn þá sagði hann þetta ekki nýtil-
komið. Spurður hvort það hafi verið í
fyrra
eða
jafnvel
árið 2012 þá
ítrekaði hann
að þetta væri
ekki nýtilkomið
en vildi ekki nefna
neinar dagsetningar.
Skotprófið „barnaleikur“
Þjálfun lögreglumanna stendur nú
yfir en samkvæmt heimildum DV
hafa um 200 lögreglumenn sótt sér-
stakt helgarnámskeið þar sem farið
var yfir notkun á þessum vopnum.
Fyrir hádegi var farið í handtökuæf-
ingar og eftir hádegi fræðslu og þjálf-
un í notkun MP5. Daginn eftir var enn
og aftur farið í
handtökuæfingar
fyrir hádegi og eftir
hádegi fræðslu og þjálfun á
Glock, þessa sígildu hálfsjálf-
virku skammbyssu sem flest
lögregluyfirvöld í hinum vest-
ræna heimi notast við.
Samkvæmt heimildum DV
þurfa lögreglumenn að standast
sérstakt skotpróf til þess að fá að
nota hríðskotabyssuna og skamm-
byssuna. Lögreglumaður sem DV
ræddi við sagði skotprófið „barna-
leik“ og að nánast hver sem er gæti
staðist slíkt próf eftir að hafa aðeins
skotið tvisvar sinnum úr byssu und-
ir handleiðslu kennara: „Blindur
maður gæti grísað sig í gegnum þetta
próf. Ég er ekki einu sinni að ýkja
þetta,“ sagði lögreglumaðurinn. „Þér
er kennt að taka öryggið af og skjóta
á blað.“ Aldurstakmark í lögregluna
er 20 ár og því gætu mjög ungir lög-
reglumenn þurft að taka upp vopn
við erfiðar aðstæður. n
„… mikilvægt fyrir
okkur í stjórn-
málunum að leyfa
lögreglunni að einhvern
veginn að klára það
„Ef einhver myndi
byrja að skjóta af
byssu niður í bæ, segjum
að það komi upp þó svo
að það sé ólíklegt, þá
erum við ekki að fara að
meisa hann.
Atli Már Gylfason
Hjálmar Friðriksson
atli@dv.is / hjalmar@dv.is
Þýsk vélbyssa: MP5 er
framleidd af fyrirtækinu
Heckler & Koch og var hönnuð
á sjötta áratugnum. Til eru
um 30 tegundir af MP5-
vélbyssum. Yfir 40 lönd nota
MP5 í sérsveitum sínum en
vélbyssan skýtur rúmlega 800
skotum á mínútu.
Austurrísk skambyssa: Glock-hálf-
sjálfvirka skammbyssan er framleidd
af austurrísku skotvopnafyrirtæki sem
heitir Glock GmbH en fyrirtækið var
stofnað árið 1963. Skammbyssurnar eru
heimsfrægar og eru víða notaðar í bæði
hernaði og af sérsveitum en til eru um 35
gerðir af Glock.