Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2014, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2014, Blaðsíða 14
Vikublað 21.–23. október 201414 Fréttir Viðskipti n 680 milljóna hagnaður á eignarhaldsfélögum þeirra F járfestarnir og viðskiptafé­ lagarnir Árni Hauksson og Hallbjörn Karlsson högnuðust báðir um í kringum 680 millj­ ónir króna í fyrra í eignarhalds­ félögum sínum, Klappar ási og Vattarnesi. Þetta kemur fram í ný­ birtum ársreikningum félaga þeirra. Gengið var frá ársreikningunum um miðjan september síðastliðinn. Til marks um góða stöðu félag­ anna segir í skýrslu stjórnar Klappar­ áss, eignarhaldsfélags Árna Hauks­ sonar: „Samkvæmt rekstrarreikningi námu tekjur félagsins á árinu 684,7 millj. kr. og nam hagnaður af rekstri 680,4 millj. kr. Samkvæmt efna­ hagsreikningi námu eignir félagsins 2.509,5 millj. kr. Eigið fé í árslok nam 2.292,7 millj. kr. Félagið greiddi engin laun á árinu.“ Félögin tvö eiga saman annað fé­ lag sem heitir Vogabakki ehf. en það félag heldur um 2/3 hlutafjár í fé­ laginu Hagamel ehf. sem heldur utan um hlutabréfaeign í smásölurisan­ um Högum og tryggingafélaginu VÍS. Hagamelur átti 8,2 prósenta hlut í Högum í lok árs í fyrra og 5,2 pró­ senta eignarhlut í VÍS. Í febrúar á þessu ári seldi Hagamelur hins vegar nærri sjö prósenta hlut í Högum fyr­ ir rúmlega þrjá milljarða króna og var kaupandinn Lífeyrissjóður verslun­ armanna. Félagið heldur enn á hlut í Högum upp á 1,53 prósent. Söluhagnaðurinn ekki með Söluverð hlutabréfanna í Högum var um fjórfalt hærra en það verð sem þeir Árni og Hallbjörn höfðu keypt bréfin á í gegnum umrædd félög. Þeir ávaxta því pund sitt í viðskiptunum. Söluhagnaður eignarhaldsfélaganna er hins vegar ekki inni í áðurnefndum tölum um hagnað þeirra í fyrra þar sem viðskiptin með Hagabréfin áttu sér stað á þessu ári. Á sama tíma og eignarhaldsfé­ lög þeirra Árna og Hallbjarnar skil­ uðu ársreikningum skilaði Vogabakki sínum reikningi fyrir síðasta ár. Í hon­ um kemur fram að hagnaður félags­ ins hafi numið 8,4 milljónum evra í fyrra, eða rúmlega 1.330 milljónum króna. Tekið er fram að tekin verði ákvörðun um arðgreiðslu á aðalfundi félagsins. Hagnaður félagsins er auð­ vitað hluthafanna, þeirra Árna og Hallbjarnar, í gegnum eignarhalds­ félögin tvö. Árni og Hallbjörn geta því greitt sér myndarlegan arð út úr Hagamel á næsta ári vegna viðskiptanna með Hagabréfin fyrr á þessu ári. Til marks um góða stöðu Haga­ mels ehf. þá voru bókfærðar eignir félagsins metnar á rúmlega 5,4 millj­ arða króna í lok árs í fyrra á meðan skuldirnar námu einungis 1,8 millj­ örðum. Þannig voru eignir félagsins þrisvar sinnum hærri en skuldirnar. Seldu og héldu að sér höndum Þeir Árni og Hallbjörn hafa því hagn­ ast vel á fjárfestingu sinni í Högum, líkt og þeir högnuðust vel á fjár­ festingu sinni í byggingavöruverslun­ inni Húsasmiðjunni á árunum fyrir íslenska efnahagshrunið 2008. Húsasmiðjuna seldu þeir til félags í eigu Baugs árið 2005 og innleystu hagnað upp á 2 til 3 milljarða króna. Ekki hefur verið greint frá nákvæmri hagnaðartölu opinberlega. Í kjölfarið fjárfestu þeir í útlöndum en héldu að sér höndum í fjárfestingum á Íslandi en komu svo aftur inn í íslenskt við­ skiptalíf eftir hrunið og keyptu hluti í Högum þegar verðið var hagstætt. Sú fjárfesting margborgaði sig fyrir þá eins og söluverð hluta bréfa þeirra sýnir. Þrátt fyrir fjárfestingar sínar á Ís­ landi þá eiga þeir Hallbjörn og Árni ennþá líka eignir erlendis en í árs­ reikningi Vogabakka er meðal annars rætt um erlent eignasafn þeirra í svissneska bankanum Julius Bär sem er um tæplega tveggja milljarða króna virði: „Eignasafn félagsins í vörslu Julius Bär, sem er bókfært á 10,8 millj­ ónir EUR er veðsett fyrir skammtíma­ skuld að fjárhæð 4,1 milljónir EUR í árslok.“ Þeir Árni og Hallbjörn eiga því milljarða eignir á Íslandi og í útlönd­ um. n Árni og Hallbjörn mokuðu inn fé í fyrra Ingi Freyr Vilhjálmsson ingi@dv.is Sitja á milljörðum Þeir Árni Hauksson og Hallbjörn Karlsson sitja á milljarða eign- um eftir góðar fjárfestingar á liðnum árum. Enn eiga þeir lítinn hlut í Högum en seldu bróðurpart bréfa sinna á árinu á fjórum sinnum hærra verði en þeir keyptu þau á. SamSett mynd. „Samkvæmt rekstrarreikningi námu tekjur félagsins á árinu 684,7 millj. kr. Rúmlega 60 milljóna arður Fasteignafélag sem byggir Skuggahverfið hagnast vel E igandi fasteignafyrirtækisins Skuggabyggðar ehf., Kristján Gunnar Ríkharðsson, sem byggt hefur umtalsvert af íbúð­ um í Skuggahverfinu í miðbæ Reykja­ víkur, greiddi sér út tæplega 39 millj­ óna króna arð í fyrra. Í ár hyggst hann greiða út tæplega 24 milljóna króna arð. Samtals er því um að ræða rúm­ lega 60 milljóna króna arðgreiðslu á tveimur árum. Þetta kemur fram í ársreikningi Skuggabyggðar ehf. fyr­ ir árið í fyrra sem nýlega var skilað til ársreikningaskrár ríkisskattstjóra. Hagnaður félagsins í fyrra nam rúm­ lega 237 milljónum króna. Skuggabyggð er eigandi bygginga­ verkefnis á Vatnsstíg 16 til 18 Reykja­ vík, á svæðinu á milli Skúlagötu og Hverfisgötu. Um er að ræða háa turna með íbúðum sem selst hafa hratt og vel. Byrjað var að reisa turnana á svæðinu á árunum fyrir hrun og hef­ ur því verið haldið áfram eftir það. Kristján Gunnar er einnig einn af eigendum eignarhaldsfélagsins Skuggi 3 ehf. sem byggir íbúðaturna á Lindargötu 39 og Vatnsstíg 20–22. Í september var greint frá því í fjöl­ miðlum að einungis viku hefði tek­ ið að selja 19 af 36 íbúðum í turnin­ um við Vatnsstíg. Söluverð íbúðanna 19 var sagt vera um 1.200 milljón­ ir króna. Kristján Gunnar á hlut í Skugga 3. ehf í gegnum Skuggabyggð en það félag á helming í félaginu Litluvellir ehf. sem á 50 prósent í Skugga 3. Fjárfestingar í byggingu íbúða­ blokkanna í Skuggahverfinu virðast því hafa verið góðar, ef marka má stöðu Skuggabyggðar í dag og þegar litið er til þess hversu mikil eftir­ spurn er eftir nýjum og vel búnum íbúðum á 101 svæðinu. n ingi@dv.is turnarnir í Skuggahverfinu Íbúðaturnarnir í Skuggahverfinu sjást hér gnæfa yfir lágreista byggðina í miðbæ Reykjavíkur. Íbúðirnar í turnunum seljast vel. Tortóla- félag lánaði bræðrunum Eignahaldsfélagið Alloa Fin­ ance Limited fjármagnaði kaup Bakkavararbræðranna Lýðs og Ágústs Guðmundssona á hluta­ bréfum í breska matvælafyrirtæk­ inu Bakkavör. Hlutabréfin eiga þeir í gegnum félagið Kork Invest ehf. en Alloa er eini hluthafi þess. Peningarnir voru fluttir til Íslands í gegnum fjárfestingaleið Seðla­ banka Íslands. Í árslok í fyrra nam skuld Korks við Alloa tæplega 4,4 milljörðum króna. Þetta kemur fram í ársreikningi Korks Invest ehf. fyrir árið í fyrra. Viðskipti Bakkavararbræðra með hlutabréf í Bakkavör vöktu talsverða athygli á Íslandi fyr­ ir tveimur árum. Þá var greint frá því að þeir hefðu flutt fjár­ magn erlendis frá og til Íslands, í gegnum Seðlabanka Íslands, og keypt hlutabréfin af kröfuhöfum sem tóku matvælafyrirtækið yfir eftir hrunið 2008. Meðal þeirra sem seldu bræðrunum hlutafé voru þrotabú Glitnis, MP banki, Lífeyris sjóður starfsmanna ríkis­ ins og sjóðstýringarfyrirtæki í eigu Íslandsbanka. Í ársreikningnum kemur fram að Korkur Invest þurfi ekki að byrja að borga af skuldabréfinu fyrr en árið 2017. Þá segir að eignarhlutur Korks Invest í Bakkavör sé 17,3 prósent. Hluturinn í Bakkavör er langstærsta eign Korks Invest en hann er metinn á tæpa 3,8 millj­ arða samkvæmt ársreikningnum. Skuldabréfið frá Alloa var hins vegar upp á tæplega 4,4 milljarða króna. Tap félagsins í fyrra nam rúmlega 8,4 milljónum króna. Líkt og greint hefur verið frá í DV tóku Bakkavararbræður arð út úr íslenskum fyrirtækjum eins og Exista og Kaupþingi – Exista var stærsti hluthafi Kaupþings, fyrir um níu milljarða króna á árunum fyrir hrunið 2008. Þegar hluta­ bréfaverð á Íslandi var í hæstu hæðum, og hagnaður fyrirtækja góður, var íslenska krónan sömuleiðis sterk. Arði sem greidd­ ur var út úr landinu og til erlendra eignarhaldsfélaga – Bakkabræður áttu félag í Hollandi sem þeir not­ uðu – í góðærinu var því skipt fyrir hærri upphæðir í erlendri mynt. Hugsanlegt er að Bakkavarar­ bræður hafi notað hluta af þeim arði sem þeir tóku út úr Íslandi fyrir hrun til að kaupa aftur hluta­ bréf í Bakkavör sem þeir misstu eftir hrun. Þykist vera Bjarni Ármanns Sölusíða fyrir bitcoin notar myndir af Bjarna Ármannssyni til að villa á sér heimildir. VB.is greindi frá þessu á mánudag. Seljandinn segist vera fjár­ festir með rafmyntir og kveðst heita dr. Heinrich Vollmer. Notar hann myndir af Bjarna til að auglýsa sig. Hann hefur að auki skrifað nokkra pistla um bitcoin undir fölsku flaggi til að reyna að auka trúverð­ ugleika sinn en hann hélt áður uppi Twitter­aðangi þar sem hann kallaði sig BTCMarket­ Maker. Twitter­notendur hafa undanfarna daga lýst óheiðar­ legum viðskiptaháttum BTC­ MarketMaker og hefur hann því breytt um stefnu og notar þess í stað Bjarna sem auglýs­ ingamynd fyrir starfsemina.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.