Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2014, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2014, Blaðsíða 37
Fólk 37Vikublað 21.–23. október 2014 Eftirvænting í Þjóðleikhúsinu Þ að ríkti mikil eftir- vænting hjá gestum Þjóðleikhússins síðast- liðið föstudagskvöld fyrir frumsýningu á verkinu Karitas á Stóra sviðinu. Verkið er unnið upp úr bók Kristínar Mörju Baldursdóttur, Karitas án titils, en leikgerðin var í höndum Sím- onar Birgissonar og Ólafs Egils Egilssonar. Með hlutverk Karitas- ar fer Brynhildur Guðjónsdóttir og þykir hún túlka listakonuna og móðurina einkar vel. Aðstand- endur sýningarinnar hlutu mik- ið og verðskuldað lófaklapp í sýn- ingarlok. n Stórglæsileg Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, og eiginkona hans, Sigrún Björg Eyjólfsdóttir, biðu sýning arinnar með mikilli eftirvæntingu. Flott saman Hjónin Kjartan Ragnarsson og Sigríður Margrét Guð- mundsdóttir létu sig ekki vanta á frumsýninguna. Í góðum félagsskap Tinna Gunnlaugs- dóttir þjóðleikhússtjóri, Júlía Aradóttir og Ari Matthíasson, framkvæmdastjóri Þjóðleikhússins, voru kát fyrir sýninguna. Flottar Sigrún og Bergrún Íris voru stórglæsilegar á frumsýningunni. Brosa út að eyrum Marta María, umsjónarmaður Smartlands á mbl.is, og vinkona hennar voru brosmildar á frumsýningunni. Mæðgur Rakel Garðarsdóttir, ver- kefnastjóri Vesturports, mætti með móður sinni í Þjóðleikhúsið. Spenningur í Háskólabíói n Borgríki 2 frumsýnd K vikmyndin Borgríki 2 – Blóð hraustra manna var frumsýnd fyrir fullum sal gesta í Háskólabíói síðast- liðið fimmtudagskvöld. Um er að ræða sjálfstætt framhald spennumyndarinnar Borgríkis sem sló í gegn árið 2011. Aðstandend- ur myndarinnar voru að sjálfsögðu mættir í Háskólabíó, fyrir utan aðal- leikarann Darra Ingólfsson, sem átti ekki heimangengt. n Ritstjórar Svala Magnea, aðstoðarritstjóri hun.is, og Kidda Svarfdal, ritstjóri hun.is, voru mjög spenntar fyrir Borgríki 2. Fögur fljóð Ragnheiður og Vera voru stórglæsilegar á frumsýningunni. Flottur Bjarni Fel fylgist greinilega ekki bara með fótbolta og vildi vera með þeim fyrstu sem sáu Borgríki 2. Flott par Ágústa Eva Erlendsdóttir, sem fer með eitt af aðalhlutverkum myndarinnar, mætti ásamt kærastanum sínum, Jóni Viðari Arnþórssyni. Töff týpur Það fór vel á með leikaranum Benedikt Erlingssyni og leikstjóranum Ragnari Bragasyni fyrir sýningu. Mættur Andri Snær Magna- son var fullur eftirvæntingar á fimmtudagskvöldið. Losnaði úr klóm sértrúarsöfnuðar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.