Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2014, Side 13
Vikublað 21.–23. október 2014 Fréttir 13
Ríkið greiddi hálfa milljón af flugvélaleigu
n Hanna Birna Kristjánsdóttir veitti Hjördísi Svan styrki af ráðstöfunarfé ráðherra
Styrkirnir í tíð fyrrverandi ríkis
stjórnar, þegar Ögmundur Jónas
son var innanríkisráðherra, námu
rúmlega 964 þúsund krónum en
hafa numið rúmlega 1.330 þúsund
krónum það sem af er þessu kjör
tímabili þegar Hanna Birna Krist
jánsdóttir hefur verið innanríkis
ráðherra.
Í svarinu frá innanríkisráðu
neytinu kemur fram að um sé að
ræða greiðslu á ýmiss konar kostn
aði eins og ferðakostnaði, lögfræði
kostnaði, húsnæðiskostnaði, þýð
ingakostnaði og ferðakostnaði.
Þetta gerði ráðuneytið til að tryggja
velferð barna hennar. „Innanríkis
ráðuneytið hefur á ýmsan hátt
stutt Hjördísi Svan Aðalheiðar
dóttur til að tryggja velferð barna
hennar meðan á langvarandi for
sjárdeilu hennar og dansks barns
föður hennar stóð. Hjördís þurfti
að dvelja langdvölum í Danmörku
ásamt börnum sínum en þar átti
hún hvorki aðstandendur né fastan
samastað,“ segir í svarinu frá ráðu
neytinu.
Hluti styrkjanna var svo notað
ur í leiguna á flugvélinni sem not
uð var til að flytja Hjördísi og dætur
hennar til Íslands í fyrrahaust.
Hugsanleg lending
Eins og málið stendur núna gæti
þetta erfiða forræðismál endað
þannig að Hjördís Svan og dæt
ur hennar verði aftur sameinað
ar til frambúðar á Íslandi eftir að
hún losnar af Vernd eftir einungis
örfáar vikur.
Raunar er það svo að Vernd er
opið úrræði fyrir fanga sem eru að
ljúka afplánun sinni og er gert ráð
fyrir að þeir stundi vinnu á meðan
þeir dvelja þar og þess vegna eru
þeir ekki í fangelsinu sjálfu nema á
kvöldin og yfir nóttina. Hjördís get
ur því sannarlega átt í samskiptum
við dætur sínar að einhverju leyti á
meðan hún dvelur þar.
Miðað við það sem Lára Júlíus
dóttir segir, sem reyndar rímar við
aðrar heimildir sem DV hefur, þá
mun Kim Gram Laursen ekki hafa
höfðað annað afhendingarmál eftir
dóm Hæstaréttar Íslands fyrr á ár
inu. Kannski hefur hann lagt árar í
bát og ætlar sér ekki að gera frekari
tilraunir til að ná dætrum sínum til
sín, þrátt fyrir niðurstöður danskra
dómstóla í forræðismálinu.
Dyggur stuðningur;
óheppilegt samhengi
Ekki verður annað sagt en að stuðn
ingur ráðuneytis Ögmundar Jónas
sonar og Hönnu Birnu Kristjáns
dóttur við Hjördísi Svan hafi verið
mikill í málinu. Hluti styrkjanna frá
ráðuneyti Hönnu Birnu var notað
ur til að fjármagna leiguna á flug
vélinni sem flutti mæðgurnar til Ís
lands – þaðan sem stúlkurnar hafa
ekki farið eftir það.
Á sama tíma þarf auðvitað að
benda á það að brottnám stúlkn
anna var lögbrot að mati danskra
dómstóla og hlaut Hjördís Svan
dóm fyrir það. Ekki er sérstaklega
heppilegt að fjármunirnir frá ráð
herranum hafi verið nýttir í leigu á
flugvél til að flytja dætur Hjördísar
frá dönsku réttvísinni. Búið var að
veita Kim Gram forræði yfir stúlk
unum með dómi í Danmörku og
svo var Hjördís Svan dæmd fyrir
brottflutning stúlknanna.
Af ráðstöfunarfé ráðherra
Einnig þarf að vekja athygli á því að
styrkirnir frá Hönnu Birnu til Hjör
dísar Svan komu af ráðstöfunarfé
ráðherra enda eru engir fjárlaga
liðir sem gera ráð fyrir því að ráðu
neyti greiði málskostnað Íslendinga
erlendis. Í reglum um borgaraþjón
ustu utanríkisráðuneytisins segir
meira að segja skýrt að lögfræði
kostnaður sé ekki greiddur fyr
ir Íslendinga: „Borgara þjónustan
greiðir ekki kostnað vegna þjón
ustu lögfræðinga og túlka erlendis
eða annan kostnað sem hlýst af
málarekstri.“
Eftir því sem DV kemst næst
hefur utanríkisráðuneytið ekkert
stutt Hjördís Svan fjárhagslega á
síðustu árum. Einungis er um að
ræða styrki frá innanríkisráðu
neytinu. Ákvörðunin um að veita
þessa styrki liggur hjá innanríkis
ráðherrunum, Ögmundi Jónassyni
og Hönnu Birnu Kristjánsdóttur.
Dæturnar hafa ekki farið
Ráðherrarnir geta styrkt þau verk
efni sem þeir vilja og er hverjum
ráðherra heimilt að ráðstafa 2,5
milljónum króna með þessum
hætti. Í fyrstu grein reglna um ráð
stöfunarfé ráðherra segir: „Af ráð
stöfunarfé ráðherra er heimilt að
styrkja málefni og verkefni sem
stuðla að framgangi íslenskra
hagsmuna og til almannaheilla.
Um heimild á fjárlagaliðnum ráð
stöfunarfé ráðherra 01199 1.10
fer skv. fjárlögum hverju sinni, en
á fjárlögum ársins 2012 eru um að
ræða 2,5 m.kr.“ Umsækjendur um
þessa styrki þurfa að sækja sérstak
lega um þá til ráðherra.
Samkvæmt einum fyrrverandi
ráðherra sem DV ræddi við voru
endalausar slíkar beiðnir um „að
setja fé í málskostnað“ þegar hann
var í embætti. Því eru margir sem
vilja sækja slíkt fé í ríkissjóð en ekki
er gert ráð fyrir því og þess vegna eru
engir fjárlagaliðir sem gera ráð fyrir
því. Ráðherrar geta hins vegar styrkt
slík verkefni með ráðstöfunarfé sínu.
Í tilfelli Hönnu Birnu hefur
hún nú þegar varið drjúgum
hluta af ráðstöfunarfé ráðherra til
að styrkja Hjördísi Svan og hafa
styrkirnir verið notaðir til greiða
kostnað sem íslenska ríkið greið
ir yfirleitt ekki fyrir Íslendinga er
lendis. Þessi stuðningur kann hins
vegar að hafa skipt umtalsverðu
máli nú þegar flest bendir til að
forræðismáli Hjördísar Svan Að
alheiðadóttur sé við það að ljúka
þegar hún verður frjáls ferða sinna
á nýjan leik. Sannarlega hafa dæt
urnar þrjár dvalið á Íslandi æ síð
an ráðuneytið fjármagnaði – að því
er virðist án eigin vitundar – hluta
af leigukostnaðinum á flugvélinni
sem flutti þær hingað til lands fyrir
rúmu ári síðan. n
Svör ráðuneytisins
2,3 milljónir í styrki
„Innanríkisráðuneytið hefur á ýmsan hátt
stutt Hjördísi Svan Aðalheiðardóttur til
að tryggja velferð barna hennar meðan
á langvarandi forsjárdeilu hennar og
dansks barnsföður hennar stóð. Hjördís
þurfti að dvelja langdvölum í Danmörku
ásamt börnum sínum en þar átti hún
hvorki aðstandendur né fastan sama-
stað.
Haustið 2013 gerði ráðuneytið
athugasemdir við málsmeðferð tveggja
sýslumannsembætta í brottnámsmáli
barna Hjördísar Svan og taldi að skort
hefði á að hagsmunir barnanna hefðu
verið hafðir í fyrirrúmi sem skyldi.
Í tíð fyrrverandi innanríkisráðherra
voru veittir styrkir af liðnum ráðstöfunar-
fé ráðherra til að aðstoða við húsnæð-
iskostnað og framfærslu fjölskyldunnar.
Innanríkisráðuneytið greiddi einnig ferð
þáverandi aðstoðarmanns og forstöðu-
manns Barnaverndarstofu til Kaup-
mannahafnar í maí 2011 þar sem fundað
var með dönskum félagsmálayfirvöldum
og óskað eftir að velferð Hjördísar og
barna hennar yrði tryggð. Ráðuneytið
hlutaðist jafnframt til um að Hjördís
fengi félagslegan stuðning og tók málið
upp við dönsk stjórnvöld. Alls nemur
þessi kostnaður 964.310 kr.
Í tíð núverandi innanríkisráðherra
hafa verið veittir styrkir af liðnum
ráðstöfunarfé ráðherra vegna þýðinga
á málsskjölum, húsnæðiskostnaðar og
lögfræðikostnaðar. Ráðuneytið fékk
í október og nóvember á síðasta ári
utanaðkomandi lögfræðiráðgjöf vegna
máls Hjördísar Svan og barna hennar. Alls
nemur þessi kostnaður 1.330.379 kr.“
Skipulagði flugferðina Jón Kristinn
Snæhólm skipulagði flugferðina með
Hjördísi Svan og dætur hennar og greiddi
meðal annars fyrir leiguna á flugvélinni.
EKki lengur í Horsens
Hjördís var í fangelsi í Horsens
í Danmörku en kom til Íslands í
júlí og dvaldi um hríð í kvenna-
fangelsinu í Kópavogi áður en
hún fór á Vernd.