Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2014, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2014, Síða 20
Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður: Þorsteinn Guðnason • Ritstjóri: Hallgrímur Thorsteinsson • Fréttastjóri: Jóhann Hauksson Ritstjórnarfulltrúi: Ingi Freyr Vilhjálmsson • Umsjónarmaður innblaðs: Sólrún Lilja Ragnarsdóttir • Framkvæmdastjóri : Steinn Kári Ragnarsson Sölu- og markaðsstjóri: Helgi Þorsteinsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur Heimilisfang Tryggvagötu 11 Hafnarhvoli, 2. hæð 101 Reykjavík FRéttaSkot 512 70 70FR jál S t, ó Háð Dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7080 512 7050 aðalnÚmeR RitStjóRn áSkRiFtaRSími aUglýSingaR Sandkorn 20 Umræða Vikublað 21.–23. október 2014 Ég er bara mjög róleg Ég hef áhyggjur Ég er fordómafullur Leynilöggur Berglind Guðmundsdóttir hræddist ekki dauðann. – DV Dorrit Moussaieff vill banna sykur. – FréttablaðiðBrynjar Níelsson langar ekki í jóga. – DV Í fótspor Ardvis Eitt einkennilegasta fjölmiðla- og dómsmál síðustu ára á Íslandi er hið svokallaða Ardvis-mál. Hópur manna, með Bjarna Þór Júlíusson í farar- broddi, tók sig til og seldi á annað hundrað manns hlutafé í loðnu viðskiptatækifæri á netinu sem kallaðist Corpus Vitalis, einhvers konar netrænu markaðstorgi þar sem allir áttu að græða. Ardvis-menn eru hins vegar ekki hættir og halda enn í við- skiptahugmyndina sína. Sögu- skýringin nú er sú að hugmyndin að markaðstorginu á netinu hafi verið góð en kannski ekki rétt framkvæmd og að umfjöllun fjölmiðla og ákæruvaldsins hafi byggt á misskilningi. Raunar er hugmyndin sögð hafa verið svo góð að Mark Zucker- berg, stofnandi Facebook, hafi í reynd stolið hugmyndinni og byggt samskiptavef sinn á henni. Lax, kaka og bekkpressa Fáir íslenskir stjórnmálamenn hafa fengið eins jákvæða PR-um- fjöllun og Bjarni Benediktsson í fjölmiðlum á síðustu mánuðum. Ekki er þar átt við starf Bjarna sem þingmanns heldur líf hans utan Alþingis. Þannig byrj- aði Bjarni á því á vor að veiða ný- genginn lax við opnun Norður- ár – þrátt fyrir að hafa rétt aðeins dýft flugunni í ána hluta úr vakt. Svo birti Smartland Morgunblaðsins af honum mynd í september þar sem hann skreytti fallega köku fyrir afmælisveisu dóttur sinnar. Loks fjölluðu fjöl- miðlar um það í vikunni að Bjarni hefði greint frá því á Facebook að hann tæki hundrað kíló í bekk- pressu og ætlaði að taka þessa þyngd tíu sinnum. Eiginlega má segja að þetta súmmeri upp stjórnarsamstarf Sjálfstæðisflokksins – að undan- skilinni Hönnu Birnu auðvitað – við Framsókn. Sigmundur Davíð og Framsókn gera og segja umdeilda hluti og fá nánast eingöngu nei- kvæða athygli en Bjarni og Sjálf- stæðisflokkurinn sigla lygnan sjó. Hví Kalman? Rithöfundurinn Steinar Bragi hef- ur vakið athygli fyrir nýjustu skáld- sögu sína Kötu. Ekki er það bara söguþráður bókarinnar sem vakið hefur athygli held- ur einnig það að Steinar Bragi not- ast við raunveru- legar og þekktar persónur í bókinni í bland. Til að mynda dúkkar nafn rithöfundarins Jóns Kalmans Stefánssonar upp í bók- inni en aðalsögupersónan hefur miklar mætur á verkum hans. Á meðan hún bíður fregna af týndri dóttur sinni les hún Jón Kalman og notar bækur hans að því er virðist sem eins konar haldreipi. Steinar Bragi hefur hins vegar ekki svarað því af hverju hann lætur Kötu hafa Jón Kalman í svo miklum hávegum. Líklega mun notkunin á Jóni Kalmani í bók Steinars Braga geta af sér einhverj- ar getgátur í framtíðinni, sennilega þó einna helst ef höfundur Kötu úttalar sig ekki um málið. I nnanríkisráðherra, íslensk lög- regluyfirvöld og sérstök þing- mannanefnd hafa tekið ákvarðanir sem gjörbreyta eðli ís- lenskrar löggæslu. Líklegt má telja að ákvörðunin, sem er tekin með leynd án nokkurs samráðs á opinberum vettvangi og án raunverulegrar um- ræðu, stríði gegn viðhorfum mikils meirihluta þjóðarinnar. Ákvörðunartakan er af þessum sökum forkastanleg. Samkvæmt því sem kemur fram í ítarlegri umfjöllun DV í dag er í ráði að setja í lögreglubíla almennu lög- reglunnar í landinu skammbyssur og hríðskotabyssur sem lögreglu- menn eiga að geta gripið til við sér- stakar aðstæður. Byssurnar verða í sérstökum læstum vopnakössum í bílunum, sem aðeins verða opnaðir samkvæmt skipunum úr stjórnstöð. Hliðstæð skipan mála er hjá norsku lögreglunni. Þó svo að byssurnar verði þannig ekki hluti af daglegum búnaði lög- reglunnar þá verður þessi byssu- væðing samt sem áður að teljast ekki bara stigsmunur heldur eðlis- munur á notkun skotvopna innan íslenska lögregluliðsins. Hingað til hefur skotvopnanotkun lögreglu á Íslandi svo til eingöngu verið bund- in við sérsveit ríkislögreglustjóra, svokallaða Víkingasveit, sem stofn- uð var 1982. Það er reyndar til marks um yfir- drifnar áherslur íslenskra lögreglu- yfirvalda að íslenska sérsveitin skuli vera hátt í það jafn fjölmenn og sú finnska. Samkvæmt Wikipedia tel- ur íslenska sérsveitin nú 42 sér- sveitarmenn og 52 þegar hún verður fullmönnuð en finnska sér- sveitin, Karhuryhmä, hefur um 70 sérsveitar menn á sínum snærum. Burtséð frá því hvert mat yfir- valda er á þörfinni fyrir slíkri eðlis- breytingu og eins burtséð frá þeim lagaheimildum sem þegar eru til staðar um vopnaburð lögreglu, þá er fullkomlega ljóst að málið er þess eðlis að innanríkisráðherra bar sið- ferðileg skylda til þess bera all- ar hliðar þess undir löggjafann og þjóðina í umræðum. Þess í stað virðist stjórnsýslan hafa sett af stað einhvers konar skollaleik við það að koma málinu í gegnum fjárveitingarvaldið þar sem hvergi er látið uppi um þær breytingar sem nú eru að ganga í gegn. Eins og rakið er í umfjöllun DV í dag var Hanna Birna Kristjáns- dóttir, þáverandi dómsmálaráð- herra, spurð um auknar heimildir til vopnaburðar lögreglunnar í des- ember 2013, stuttu eftir að fjárlög voru samþykkt. Þar sagði hún mik- ilvægt að stjórnmálamenn létu lög- reglunni eftir að klára málið, að leyfa lögreglunni að fara yfir það og meta þörfina. Hún sagði að þó við vild- um búa í samfélagi sem væri laust við slíka hluti þá breytti það engu um að lögreglan yrði að „geta gripið til slíks“ við aðstæður þar sem þess gerðist þörf. Í könnun MMR fyrir þremur árum sögðust 70 prósent landsmanna and- víg því að almenna lögreglan bæri skotvopn. Þrátt fyrir að hin norska leið í vopnavæðingu lögregluliðsins gangi ekki þá leið til fulls, þá er breytingin sem nú er unnið að allt of stórt skref. Ákvörðun sem þessi getur ekki verið sett í hendur lögreglunnar ein- göngu. Íslenskir stjórnmálamenn verða að taka þessa umræðu undan- bragðalaust með opnum hætti. Og það er óboðlegt að ráðherra geti ákveðið með leynd að vopna al- mennt lögreglulið í landinu, geti ákveðið algera eðlisbreytingu á bún- aði lögreglunnar framhjá Alþingi og almenningi í landinu. n Leikir í stöðunni N ýlega var haft eftir poppgoð- inu Bono að viðskipti væru vogarstöngin sem lyft gæti þjóðum úr fátækt. Og kann að hljóma ankannalega í eyrum Vesturlandabúa þar sem við- skipti hafa nýverið leitt heilu þjóðirn- ar út í fátæktar fen þar sem þær spóla og sökkva æ dýpra. Að vísu er um að ræða þann hluta viðskipta sem heyrir undir fjármálastarfsemi, en um hana hafði Franklin D. Roosevelt Banda- ríkjaforseti þau frægu orð: „að það er alveg jafn hættulegt að vera stjórn- að af skipulagðri fjármálastarfsemi og skipulegri glæpastarfsemi.“ Það var árið 1936 í miðri ríkjandi kreppu, en á ekki síður við á okkar dög- um þegar heilu þjóðirnar hafa ver- ið hlunnfarnar af tiltölulega litlum hópi fjárplógsmanna. Og sitja uppi með himinháar skuldir og vaxtabyrði sem varpar skugga yfir allt mannlíf og veldur þyrkingi í vexti hinna upp- rennandi. Það er nánast sama hvert litið er í Evrópu, hagvöxtur slórar við núllið, atvinnuleysi er víðast komið í tveggja stafa tölu og skuldir þjóðanna í þriggja stafa tölu; námu fyrir hrun að meðal tali um 40% af þjóðartekjum en hafa stokkið í hundrað prósentin og þar yfir. Almenningi landanna bjóð- ast einkum tvær lausnir eftir því hvort fjármagns- eða félagshyggjuöfl eru við völd: niðurskurð á opinberri þjón- ustu (sem þó var komin inn að beini) eða hækkun skatta á hátekjufólk (sem er með allt sitt á þurru í skattaskjólum og/eða lágskattalöndum). Ráðaleysi leiðir til öngþveitis Það þarf því ekki að vera ýkja spá- mannlega vaxinn til að sjá öngstrætið fram undan. Að ráðaleysið eigi eftir að leiða til öngþveitis og úr öngþveitinu eigi eftir að rísa skipan sem við höfum varla ímyndunarafl til að gera okkur í hugarlund. Eða hvað er líklegt að fólk láti lengi bjóða sér lágmarkslíf (iðu- lega í boði sjálfra hrunvaldanna) þar sem „skafið er innan úr“ öllum þeim stofnunum sem varða velferð þess: heilbrigði, menntun, upplýsingu og sköpun? Og þá er jafnan sveiflað Damóklesar sverði vaxtabyrðarinn- ar voðalegu sem hrunvaldarnir hafa sjálfir kallað yfir þjóðirnar (85 millj- arðar árvisst í dæmi Íslands). „Aldrei hafa jafn fáir velt jafn háum skuldum yfir á jafn marga“, svo snúið sé út úr frægum orðum W. Churchills. Í miklukreppu fjórða áratugar síð- ustu aldar var enginn skortur á lausn- um: kommúnismi, fasismi, ríkis- styrktur kapítalismi – hver öðrum girnilegri. Því er ekki að heilsa nú, öll hafa þessi kerfi gengið sér til húðar, nú síðast kapítalisminn í búningi einkavæðingar, en á rústum hans stöndum við um þessar mundir. Og einmitt af því engin tilbúin lausn er í sjónmáli er hætt við að uppgjör- ið verði ofsafengnara, nánast eins og þegar skákmaður veltir um taflborði í vonlausri stöðu. Hvað til dæmis ef nafnið á frægu leikriti Darios Fo: „Við borgum ekki!“ tæki að hljóma sem herhvöt og einkunnarorð komandi tíðar? Þurfti til heimsstyrjöld Það þurfti heimsstyrjöld til að höggva á hnút kreppunnar á fjórða tug síð- ustu aldar, þ.e. eyðingu á gígantísk- um skala sem aftur leiddi til upp- byggingar. Staðan nú er þeim mun þrengri að mannkyn er komið að mörkum sjálfs leikrýmisins. Sú jörð sem mun rísa úr ægi verður veru- lega takmarkaðri en sú sem er í þann mund að sökkva í sæ og lífs- baráttan á eftir að taka mið af því, líkt og knattspyrnuleikur sem færð- ist af keppnisvelli yfir á fótboltaspil í félagsmiðstöð. Breytast úr ati í lát- bragðsleik. Því er spáð að innan tuttugu ára verði helmingur allrar framleiðslu þróaðra ríkja alfarið vélrænn. Sem væntanlega mun þýða 50% atvinnu- leysi fast – eða öllu heldur að vinn- an verði ekki lengur gjaldgeng aðferð til að miðla lífsmeðulum þegnanna. Þá munu blasa við tvær sviðsmynd- ir: annars vegar örbirgð fjöldans eða auðnustundir taki við af vinnuknúnu lífi. Til að koma því heim og saman verður áreiðanlega ekki síðri þraut en samhæfing afstæðiskenningar Ein- steins og skammtakenningar Níelsar Bohr. Sem breytir ekki því að heimurinn er til og hann snýst. n Pétur Gunnarsson rithöfundur Kjallari „Við borgum ekki! „ Í könnun MMR fyrir þremur árum sögðust 70 prósent landsmanna andvíg því að almenna lögreglan bæri skotvopn. Leiðari Hallgrímur Thorsteinsson hallgrimur@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.