Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2014, Side 28

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2014, Side 28
Vikublað 21.–23. október 201428 Lífsstíll Bættu kynhvötina nFimm náttúrulegar leiðir til að koma þér í stuð Þ að er fullkomnlega eðilegt að vera ekki alltaf í stuði fyrir kynlíf enda geta ótal hlutir haft neikvæð áhrif á kynhvötina. Hins vegar, ef þú vilt bæta náttúru þína, getur þú skoðað eftirfarandi lista. Kannski er auðveldara að koma þér af stað aft- ur en þú heldur – og það án lyfja. Hér eru fimm náttúrulegar leiðir til að auka áhuga á bólleikfiminni en listinn birtist fyrst í tímaritinu Healthy Women. 1 Frygðar-aukandi fæða Það eru fáar vís- indalegar rann- sóknir sem virð- ast sanna að matur sem talinn er hafa frygðaraukandi áhrif virki. Þú tapar samt engu á að prófa. Kannski hafa ostrur, fíkjur, súkkulaði og paprika engin líffræði- leg áhrif en það er aldrei að vita um þau sálfræðilegu. Fyrir utan að þessar fæðutegundir eru flestar hollar og góðar. 2 Mynd af makanum-Helen Fisher, mannfræðingur við Rutgers-háskólann í Bandaríkjunum, gerði rannsókn þar sem hún lét þátttakend- ur horfa á ljósmynd af elskhuga sínum í hálfa mínútu. Í ljós kom að heili þeirra fór að framleiða dópamín, hormón sem hefur jákvæð áhrif á kynhvöt- ina. Gríptu uppáhaldsmyndina af kærastanum og eyddu hálfri mín- útu á dag við að horfa á hana. 3 Hreyfðu þig Erfið- ar æfingar, eins og hlaup, hjól- reiðar og sund, bæta blóðflæð- ið til kynfæranna. Hreyfing eykur einnig framleiðslu endórfín-horm- óna sem bæta almenna líðan. Eftir góða æfingu eykst einnig testó- sterónmagn í blóði og þér finnst þú kynþokkafyllri en ella. 4 Drekktu rauðvín Það er ekkert leyndarmál að áfengi hefur áhrif á hömlur okkar og getur breytt fúlasta einstaklingi í daðrara. Rauð- vín er betri kostur en bjór og hvítvín bæði vegna rauða litarins og vegna þess að örlítið rauðvín bætir blóð- rásina. Samkvæmt einni rannsókn laðast bæði kynin meira að fólki sem klæðist rauðum lit en öðrum litum. 5 Knúsaðu þig í stuð Rannsóknir hafa sýnt að 20 sekúndna knús getur aukið magn oxýtósín, hormóns sem hjálpar okkur að bindast öðru fólki. Knús- aðu, faðmaðu og snertu makann oftar. Það gæti kveikt á einhverju skemmtilegu. n Knús Getur kveikt lostann, en það getur hreyfing einnig gert. Nóg að sjá maka Gríptu upp- áhaldsmyndina af kærastanum og eyddu hálfri mínútu á dag í að horfa á hana. Gerðu rúmið betra Til að fá góðan nætursvefn er nauðsynlegt að sofa í notalegu rúmi. Dýnan leikur þar stórt hlutverk, en það getur verið vandasamt að velja þá réttu. Sumum hentar að sofa á dýnu sem lagar sig að líkamanum á meðan aðrir geta það ekki. Slíkar dýnur henta til dæmis illa þeim sem eru mjög heitfengir, enda anda þær oft minna. Efnið í rúmfötunum skiptir líka máli. Þrátt fyrir að rúmföt úr bómullar- og pólýesterblöndu krumpist minna þá anda þau ekki eins vel og hrein bómull. Gættu þess líka að skipta reglu- lega um rúmföt svo ryk fari ekki að angra þig. Þá er einnig gott að skipta koddanum reglulega út. Hann á hvort tveggja til að safna alls konar óþverra í sig, þrátt fyrir að vera þrifinn reglulega, og að koðna niður með tímanum. Þannig veitir hann ekki nógu góðan stuðning við hálsinn. Karlmanns- flensa er til Konur hafa í gegnum tíðina oft hlegið að karlmönnum þegar þeir leggjast í rúmið með smá kvef og emja og væla yfir veik- indum sínum. Þessi smávægi- legu veikindi eru oft kölluð „man flu“ eða karlmannsflensa. En konur ættu kannski að hætta að hlæja af þessum greyjum því vísindamenn við Harvard- háskóla hafi komist að því að ónæmiskerfi karla er í raun veikara en kvenna. Þeir eru því kannski veikari en kvenfólk- ið kann að halda þó að þeir líti bara út fyrir að vera með kvef. Ef marka má niðurstöðurnar er það vegna skorts á kven- hormóninu estrógeni. Það ger- ir karlmenn móttækilegri fyrir lugnabólgu og öðrum öndunar- færasjúkdómum. ht.is HAFNARGÖTU 90 REYKJANESBÆ S: 414 1740 • EYRARVEGI 21 SELFOSSI S: 480 3700 • GARÐARSBRAUT 18A HÚSAVÍK S: 464 1600 • GLERÁRGÖTU 30 AKUREYRI S: 460 3380 • KAUPVANGI 6 EGILSSTÖÐUM S: 414 1735 • ÞJÓÐBRAUT 1 AKRANESI S: 431-3333 • SUÐURLANDSBRAUT 26 REYKJAVÍK S: 569 1500 með Android Næsta bylgja sjónvarpa er komin Philips Ambilight sjónvarp með Android stýrirkerfinu UMBOÐSMENN UM LAND ALLT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.