Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2014, Side 31
Vikublað 21.–23. október 2014 Sport 31
Sjálfstortíming Tottenham gegn toppliðunum
þeim leikjum n Stórt tap gegn City um helgina átti ekki að koma á óvart
2 Einstaklingsmistök
Af toppliði að vera þá virðist Tottenham
gera óeðlilega mikið af einföldum mistök-
um í stórleikjum sem liðinu er reglulega
refsað fyrir.
Gegn Chelsea á Stamford Bridge, í
stöðunni 0–0 eftir 56 mínútur, hafði
Tottenham fengið mörg marktækifæri.
En þá ákvað títtnefndur Vertonghen
að reyna að bera boltann upp og leika
á Andre Schurrle. Hann rann á rassinn,
Schurrle stakk boltanum inn fyrir á Samu-
el Eto'o sem skoraði og fagnaði sem frægt
er orðið eins og „gamall kall.“
Og dæmin eru fleiri. Þegar Emmanuel
Adebayor lét reka sig af velli í
grannaslagnum gegn Arsenal árið 2012 í
stöðunni 1–0 fyrir Tottenham. Tottenham
tapaði leiknum 2–5.
Í síðasta mánuði, gegn Arsenal, klikkaði
Erik Lamela og gaf Arsenal jöfnunarmark-
ið á silfurfati með furðulegri tilraun til
hreinsunar, 1–1.
Í mars 2013 var Tottenham 2–1 yfir gegn
Liverpool á Anfield þegar Kyle Walker átti
sögulega hræðilega langa sendingu til
baka, Hugo Lloris kom út úr markinu og
reyndi að hreinsa en boltinn hrökk fyrir
fætur Stuarts Downing, af öllum mönn-
um, sem skoraði af yfirvegun. Liverpool
vann leikinn 3–2.
3 Lélegir bakverðir
Kyle Walker er næstum því frábær
bakvörður að mati Liews. Hann er góður
með boltann, fljótur og sókndjarfur. Hann
er líka ágætur í að vinna boltann, fínn
tæklari, góður í að koma sér fyrir fyrirgjafir
og erfitt að komast fram hjá honum. En
hann er algjörlega týndur þegar kemur að
staðsetningum. Hann les leikinn illa og
lætur allt of oft teyma sig út úr stöðu og
er sjaldan á sömu bylgjulengd og restin af
varnarlínunni. Á meðfylgjandi mynd lætur
hann Didier Drogba draga sig niður með
þeim afleiðingum að hann spilar Ramires
réttstæðan í 5–1 tapi gegn Chelsea í
undanúrslitum FA-bikarsins 2012.
En Walker er ekki eini slóðinn, enda
hefur hann verið meiddur síðan í mars.
Fingraför hans eru samt á flestum þessara
24 leikja sem eru hér til umfjöllunar, þar
sem hann hefur leikið þá flesta af varnar-
mönnum liðsins.
Danny Rose hefur sömuleiðis einstakt
lag á að láta draga sig út úr stöðu. Eins og
þetta fræga dæmi úr leiknum gegn Liver-
pool fyrr á leiktíðinni. Rose skilinn eftir í
ruglinu úti á kanti og skokkaði áhugalaus
til baka meðan Liverpool skoraði eitt af
þremur mörkum sínum.
4 Skóreimar Younes Kaboul
Þessi mynd frá 24. nóvember 2013 segir
meira en mörg orð. Stórleikur að hefjast á
Etihad-vellinum og varnarlína Tottenham
er að huga að sokkunum sínum. Younes
Kaboul er að reima skóna sína! Þrettán
sekúndum síðar hafði Jesus Navas
skorað fyrsta af sex mörkum City þennan
daginn.
En þetta hlýtur að vera einstakt tilfelli,
ekki satt? Rangt!
Þú manst eftir mistökunum þar sem
Vertonghen rann á rassinn, nokkrum sek-
úndum áður en hann datt hafði Kaboul
ákveðið huga aðeins að skóreimunum
sínum og var gjörsamlega úti á túni þegar
Eto'o slapp í gegn og skoraði.
5 Hver er lausnin?
Hvað er til ráða fyrir Pochettino sem
þrátt fyrir að hafa keypt Ben Davies og
Federico Fazio hefur erft mörg vandamál
fyrri stjóra? Vörn Tottenham er í topp
6 klassa, ekki topp 4 klassa að mati
Liews. Leikmenn á borð við Christian
Eriksen, Adebayor og Lamela henta illa
fyrir hápressu þar sem krafan er að allir
leggi hart að sér. Þar að auki hafa allir
keppinautar Tottenham styrkt sig líka.
Fyrir leikinn gegn City um helgina sagði
Pochettino að hann væri að byrja með
hreinan skjöld. Fyrri úrslit væru ekki
að þvælast fyrir honum. Nú væri nýtt
tímabil, ný hugmyndafræði, nýr leikur.
Kannski var þetta hugmyndafræðin
sem hann var að tala um, sem sést á
meðfylgjandi mynd og mætti kalla
„þríhyrning þrjóskunnar.“
Tottenham lá til baka gegn Arsenal á
dögunum og beitti skyndisóknum. Þetta
skjáskot er ekki úr seinni hálfleik þegar
Tottenham var að reyna að hanga á 1–0
forystu, heldur frá byrjun leiksins. Allir
11 leikmenn Spurs fyrir aftan boltann og
sáttir við að leyfa Arsenal að vera með
hann. Tottenham var aðeins með boltann
31 prósent tímans sem er nýtt fyrir lið
Pochettinos. Bakverðir fengu skipun um
að halda aftur af sér og ekki láta grípa sig
í landhelgi með glórulausum hlaupum
fram völlinn. Varnarlínan var þétt og vel
skipulögð. Ef ekki hefði verið fyrir mistök
Lamelas hefði Tottenham getað stolið
sigrinum. Það var allt annað að sjá liðið
fram að því.
Margir velta fyrir sér hvort Pochettino
nái að leika eftir afrek sín með South-
ampton og gera betur með Tottenham.
Hann hljómaði þó ekki eins og stjóri
stórliðs eftir Arsenal-leikinn.
„Við mættum stóru liði eins og Arsenal
vel. Þetta var gott stig fyrir okkur.“
Kaldhæðnin er því kannski sú að mati
Liews að til að sigra loks eitt af stórliðun-
um þarf Tottenham kannski að fara að
hugsa eins og smálið.
*Heimild: „Tottenham Hotspur keep getting
thrashed by the big clubs - why does it
happen?“ eftir Jonathan Liew. Telegraph.
co.uk.
1 Varnarlína hátt uppi
Í lok leiks gegn City í nóvember í fyrra var
James Milner með boltann djúpt á eigin
vallarhelmingi. Jesus Navas, kantmaður
City, var að skokka við miðlínuna.
Varnarlína Tottenham var allt of ofarlega,
Milner sendi boltann langt fram og fjórum
sekúndum síðar hafði Navas skorað
eftir að hafa sloppið einn í gegn með Jan
Vertonghen, sem hafði reynt að komast
inn í sendinguna, á hælunum.
En hin háa varnarlína sem slík er
ekki vandamál. Svo lengi sem þú hefur
leikmenn til að standa undir henni. Liew
útskýrir að til að gera það þurfi fljóta
varnarmenn. Þó að Vertonghen sé ekki
hægur þá er Navas náungi sem hefur tekið
100 metrana á 10,8 sekúndum og bræddi
einu sinni úr hlaupabretti með því að
hlaupa of lengi á hæstu stillingu.
Það þurfa allir leikmenn líka að pressa.
Þannig náði Pochettino árangri hjá Sout-
hampton. Það þarf að pressa um allan völl
af áfergju því þú ert veikur fyrir löngum
boltum inn fyrir aftan hina háu varnarlínu.
André Villas-Boas komast að því að hann
væri ekki með leikmenn í þessa taktík og
Spurs spiluðu ekki alltaf svo hátt uppi.
Enda er það tifandi tímasprengja gegn
liðum með eldsnögga leikmenn, í lok leikja
þar sem leikmenn þínir eru orðnir þreyttir.
Of há varnarlína, þar sem menn eru ekki á
sömu bylgjulengd, getur breytt 1–2 marka
tapi í 5–6 marka tap.
Þríhyrningur þrjóskunnar
Eldsnöggur
Navas
Eldsnöggur
Navas
Vörnin
ofarlega
Sorgmæddur AVB
Mistækur Vertonghen
Allir aðrir
Vönkuð varnarlína
Ramires réttstæður
Sturridge að sækja á
vinstri bakvörð Spurs
Vinstri bakvörður Spurs
Að byrja
fótboltaleik
Þessir laga sokkana
Kaboul reimar
skóna
Eto'o bíður átektar
Já, Kaboul er að
reima skóna.