Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2014, Qupperneq 8
Helgarblað 31. október–3. nóvember 20148 Fréttir
Lyfjaverksmiðja
í skattaskjóli
n Eigendabreytingar á fasteignaverkefninu í Vatnsmýrinni n Veðsett hjá Arion
F
asteignafélagið Sæmund-
ur ehf., nýr eigandi lyfja-
verksmiðju Alvogen við Sæ-
mundargötu í Reykjavík,
sem nú rís, hefur veðsett
fasteignina fyrir nærri 5,5 milljarða
króna. Tæplega 200 milljóna króna
skuldabréf frá Reykjavíkurborg
hvílir á fyrsta veðrétti eignarinnar
og 5,2 milljarða tryggingabréf frá
Arion banka er á öðrum veðrétti.
Fyrirsvarsmaður Alvogen á Íslandi
er Róbert Wessmann fjárfestir.
Eignarhaldið á meirihlutanum
í Sæmundi ehf. endar á Cayman-
eyjum í gegnum íslenska félagið
Aztiq Pharma ehf.
Framkvæmdir í gangi
Framkvæmdir við byggingu
hússins hófust í nóvember á síð-
asta ári. Í vikunni voru auglýst til
umsóknar 50 störf hjá Alvotech,
sem er dótturfyrirtæki Alvogen,
sem verður með starfsemi í húsinu.
Húsið verður um 13 þúsund fer-
metrar og verður opnað í ársbyrj-
un 2016. Framleiða á samheitalyf í
húsinu en í tilkynningu frá Alvogen
í vikunni sagði meðal annars: „Sex
líftæknilyf eru nú í þróun hjá Alvot-
ech í samvinnu við erlenda sam-
starfsaðila og fyrstu lyf fyrirtækis-
ins fara á markað árið 2018 þegar
einkaleyfi þeirra renna út. Lyfin eru
háþróuð stungulyf og m.a. notuð
við krabbameini og gigtarsjúkdóm-
um. Sala frumlyfjanna á árinu 2013
á heimsvísu var um 15 milljarðar
evra. Alvotech mun sjá um þróun
og framleiðslu lyfjanna en Alvogen
og önnur lyfjafyrirtæki munu sjá
um markaðssetningu þeirra.“
Fasteignin skipti um hendur
Fasteignin skipti um hendur í febr-
úar, eftir að hafa upphaflega ver-
ið skráð á fyrirtækið Alvogen Bio
Tech. ehf. sem nú heitir Alvot-
ech, og var skráð á Fasteignafélag-
ið Sæmund ehf. Alvotech er í eigu
Alvogen Iceland ehf. sem aftur er í
eigu Alvogen Lux Holdings S.A.R.L.,
eignarhaldsfélags í Lúxemborg.
Fasteignafélagið Sæmundur ehf.
er hins vegar vegar í eigu fyrirtækis-
ins Aztiq Pharma ehf. að 60 prósent
leyti og Alvogen Iceland ehf. að 40 pró-
sent leyti. Aztiq Pharma er í eigu fé-
lags á Cayman-eyjum sem heitir Azt-
iq Cayman L.P. Ekki liggur fyrir hver á
Aztiq Cayman L.P. samkvæmt opinber-
um upplýsingum á Íslandi. Lyfjaverk-
smiðjan í Vatnsmýrinni er því komin í
meirihlutaeigu ótilgreinds aðila.
Alvotech ehf. og Sæmundur ehf.
gerðu með sér samning í febrú-
ar síðastliðnum um að síðarnefnda
félagið tæki byggingaverkefnið yfir.
Ekki er tekið fram í samningnum af
hverju nýja félagið tók við verkefn-
inu af dótturfélagi Alvogen á Íslandi.
Leigja fyrir nærri
5 milljónir á mánuði
Alvogen Bio Tech gerði í nóvem-
ber í fyrra samning við félagið Vís-
indagarða Háskóla Íslands um
byggingu hússins. Vísindagarð-
ar leigja Alvogen byggingaréttindi
á lóðinni fyrir tæplega 5 milljón-
ir króna á mánuði út samningstím-
ann, til ársins 2038. Þá skuldbinda
Vísindagarðar sig til að leigja 3.000
fermetra af húsnæðinu, nærri fjórð-
ung, í allt að fimm ár. Með yfirfær-
slu á samningnum yfir til Fasteigna-
félagsins Sæmundar er nú kominn
annar aðili að byggingu hússins og
eigu þess. Alvotech mun hins vegar
sjá um framleiðslu lyfjanna í húsinu.
Keypti líka Borgarbókasafn
Líkt og áður segir liggur ekki fyrir
hver á Aztiq Pharma á endanum og
þar með meirihlutann í lyfjaverk-
smiðjunni í Vatnsmýrinni. Hins
vegar greindi DV frá því í fyrra að
þetta sama félag hefði keypt gamla
Borgarbókasafnið í Þingholtsstræti
af Ingunni Wernersdóttur. Þá sagði
í frétt DV að eignarhaldsfélagið væri
í eigu Róberts Wessmann, og fleiri
aðila sem tengdir eru samheitalyf-
jafyrirtækinu Alvogen. DV fékk hins
vegar ekki nákvæmari upplýsingar
um eignarhald félagsins en það.
Gamla Borgarbókasafnið verður
notað sem skrifstofuhúsnæði.
Því liggur ekki fyrir nákvæm-
lega hver á þetta félag sem nú á
meirihluta í fasteignaverkefninu
í Vatnsmýrinni. En fyrir liggur að
opinberir íslenskir aðilar, eins og
Vísindagarðar Háskóla Íslands og
Reykjavíkurborg, hafa verið í sam-
vinnu við Alvogen enda er verk-
efnið í Vatnsmýrinni stórt í sniðum.
Ekki náðist í upplýsingafulltrúa
Alvogen í gær, fimmtudag. n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is Í eigu Róberts
Lyfjaverksmiðjan
í Vatnsmýrinni
er nú komin í
eigu félags á
Cayman-eyjum
sem er í eigu Ró-
berts Wessmann
og annarra aðila
sem tengjast
Alvogen.
„Alvotech
mun sjá um
þróun og fram-
leiðslu lyfjanna
H
öskuldur Þórhallsson, þing-
maður Framsóknarflokks-
ins, verður nýr forseti Norð-
urlandaráðs eftir að hafa
haft betur í kosningu um embættið
gegn Steingrími J. Sigfússyni í Stokk-
hólmi á fimmtudaginn. Flokkahópur
Vinstri græningja í ráðinu ákvað að
bjóða Steingrím fram gegn Höskuldi
þrátt fyrir að ekki tíðkist að kosið sé
á milli manna þegar forseti Norður-
landaráðs er kjörinn.
Yfirleitt tilnefnir hvert land bara
einn fulltrúa á fimm ára fresti og við-
komandi er svo sjálfkjörinn í emb-
ættið. Löndin fimm sem mynda
Norðurlandaráð skiptast þannig á að
vera með sjálfkjörinn forseta í ráðinu
á fimm ára fresti.
Framboð Steingríms mæltist ekki
vel fyrir hjá öðrum flokkahópum í
Norðurlandaráði og tók valnefnd
ráðsins ekki vel í það á fundi sínum
á þriðjudaginn. Vinstri græningj-
ar ákváðu samt að bjóða hann fram.
Steingrímur fékk hins vegar aðeins 9
atkvæði af 62 í kosningunni, Hösk-
uldur fékk 52 og 1 var ógilt.
Ljóst má telja hins vegar að
Vinstri græningjar hafa vitað að
kosningin færi svo í ljósi viðbragða
hinna flokkahópanna. Í viðtali við
Steingrím á þriðjudaginn sagði hann
við DV að ágætt væri að hrista að-
eins upp í fyrirkomulaginu í forseta-
kjörinu. „Margir telja að það sé allt í
lagi að hrista aðeins upp í þessu og
ýtt aðeins við þessu fyrirkomulagi.
Ég man ekki til þess að forsetavalið
hafi endað í kosningu. Það er ágætt
að hafa smá fjör í þessu.“
Ætla má að Steingrímur hafi feng-
ið sex atkvæði frá fulltrúum Vinstri
græningja í Norðurlandaráði, eitt frá
Róbert Marshall, þingmanni Bjartrar
framtíðar, og svo tvö frá einhverjum
öðrum óþekktum fulltrúum. n
ingi@dv.is
Höskuldur með öruggan sigur
Lagði Steingrím með 52 atkvæðum gegn 9
Öruggur sigur Höskuldur Þórhallsson
verður næsti forseti Norðurlandaráðs eftir að
hafa lagt Steingrím J. Sigfússon örugglega í
kosningu um embættið. Mynd FRaMsóKnaRFLoKKuRInn
Vistaður á
réttargeðdeild
Héraðsdóm ur Reykja vík ur
úr sk urðaði í vikunni 29 ára
gamlan karlmann til að sæta
ör ygg is gæslu á rétt ar geðdeild
Land spít al ans á Kleppi til 27.
nóv em ber næstkomandi. Þetta
staðfestir lögfræðingur manns-
ins í samtali við DV.is á miðviku-
dag. Maður inn er grunaður um
að hafa orðið eig in konu sinni að
bana á heim ili þeirra í Breiðholti
28. september síðastliðinn.
Maðurinn sætir enn geð-
rannsókn og segir lögfræðingur
hans að honum sé gert að sæta
öryggisgæslu á Kleppi vegna ná-
lægðar við lækni. Að sögn lög-
fræðingsins er óvíst hvenær má
vænta niðurstöðu úr geðrann-
sókn og mati á sakhæfi manns-
ins. Þá er einnig beðið eftir
niðurstöðu krufningar. Maður-
inn er grunaður um að hafa
þrengt að önd un ar vegi konu
sinn ar, sem var 26 ára göm ul,
þannig að hún hlaut bana af.
Börn hjón anna, tveggja og
fimm ára, voru á heim il inu þegar
at vikið átti sér stað, en þeim var
komið í viðeig andi umönnun hjá
barna vernd ar yf ir völd um í kjöl-
far at viks ins.
Maður inn var hand tek inn 28.
sept em ber síðastliðinn og var í
upp hafi úr sk urðaður til að sæta
gæslu v arðhaldi á Litla-Hrauni
til 17. októ ber á grund velli rann-
sókn ar hags muna. Fyrsta hálfa
mánuðinn var hann í ein angr-
un í fang els inu. Hinn 17. októ ber
var gæslu varðhaldið yfir hon um
fram lengt til 14. nóv em ber.
Hugo Boss söluaðilar:
Reykjavík:
Gilbert úrsmiður Laugavegi 62 s: 551-4100
Gullúrið–úra og skartgripaverslunv Mjódd s: 587-4100
Úra- og skartgripaverslun Heide Glæsibæ s: 581-3665
Meba Kringlunni s: 553-1199
Meba - Rhodium Smáralind s: 555-7711
Hafnarfjörður
Úr & Gull Firði-Miðbæ Hafnarfjarðar s: 565-4666
Keflavík:
Georg V. Hannah, úrsmiður Hafnargötu 49 s: 421-5757
Selfoss:
Karl R. Guðmundsson, úrsmiður Austurvegi 11 s: 482-1433
Akureyri:
Halldór Ólafsson úrsmiður Glerártorgi s: 462-2509
Akranes:
Guðmundur B. Hannah, úrsmiður Suðurgötu 65 s: 431-1458
Egilsstaðir:
Klassík Selási 1 s:471-1886
Úra- o skartgripaversl n
Heide Glæsibæ - s: 581 36 5