Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2014, Síða 12
12 Fréttir Helgarblað 31. október–3. nóvember 2014
E
ignarhaldsfélag Kára Þórs
Guðjónssonar, Nolt ehf.,
hagnaðist um tæplega 860
milljónir króna í fyrra vegna
viðskipta með hlutabréf í
Skeljungi og færeyska olíufélaginu
P/F Magni. Þetta kemur fram í árs-
reikningi félagsins sem samþykktur
var á aðalfundi þess þann 25. sept-
ember síðastliðinn. DV hefur ekki
náð tali af Kára síðustu daga þrátt
fyrir ítrekaðar tilraunir.
Kári Þór var einn af starfsmönn-
um fyrirtækjaráðgjafar Glitnis sem
seldi þeim Svanhildi Nönnu Vig-
fúsdóttur, Guðmundi Þórðarsyni og
Birgi Bieltvedt meirihlutann í Skelj-
ungi skömmu fyrir efnahagshrunið
árið 2008. Aðrir starfsmenn fyrir-
tækjaráðgjafarinnar voru meðal
annars Einar Örn Ólafsson, sem var
framkvæmdastjóri hennar, og Halla
Sigrún Hjartardóttir, sem í dag er
stjórnarformaður FME.
Sem kunnugt er keyptu íslenskir
lífeyrissjóðir Skeljung og P/F Magn
fyrir rétt um átta milljarða króna í
fyrra í gegnum sjóðstýringarfyrirtæki
Arion banka, Stefni. Í viðskiptunum
innleystu hluthafar Skeljungs mik-
inn hagnað, 5 til 6 milljarða króna í
heildina.
Seljendur kaupa af kaupendum
Þau þrjú, Kári, Einar Örn og Halla,
eignuðust samtals 66 prósenta hlut í
eignarhaldsfélaginu Heddu ehf. sem
átti 66 prósenta hlut í P/F Magni og
25 prósenta hlut í Skeljungi í við-
skiptum við þau Guðmund Þórðar-
son og Svanhildi – Birgir Bieltvedt
seldi þeim Guðmundi og Svanhildi
hlut sinn. Morgunblaðið greindi frá
þessu á mánudaginn en samkvæmt
frétt blaðsins hagnaðist Halla Sig-
rún, sem Bjarni Benediktsson skip-
aði sem stjórnarformann Fjármála-
eftirlitsins síðla árs í fyrra, um 830
milljónir króna á viðskiptunum með
Skeljung. Þremenningarnir keyptu
hlutabréfin í Heddu árið 2012 en
Guðmundur og Svanhildur áttu
áfram 34 prósent í félaginu.
Starfsmenn Glitnis sem seldu
hlutabréf bankans í olíufélaginu
eignuðust því hlutabréf í fyrirtæk-
inu sem þau seldu þegar þau keyptu
bréfin af þeim sem höfðu keypt
hlutabréfin af bankanum. Við þetta
högnuðust þau þrjú um meira en
800 milljónir króna samkvæmt frétt
Morgunblaðsins. Ekki er hægt að sjá
hagnað Einars Arnar og Höllu svart-
an á hvítu, líkt og hagnað Kára, þar
sem eignarhaldsfélög þeirra sem
héldu utan um hlutabréfin í Heddu,
Einarsmelur ehf. og B10 ehf., hafa
ekki skilað ársreikningum fyrir síð-
asta ár.
Halla Sigrún sendi frá sér tilkynn-
ingu á miðvikudaginn þar sem hún
greindi frá því að hún ætlaði að hætta
sem stjórnarformaður FME í kjölfar
á fréttaflutningi Morgunblaðsins.
Hætti vegna trúnaðarbrests
Þetta púsl Morgunblaðsins um
hagnað þremenninganna á viðskipt-
unum með Skeljung vantaði inn um-
ræðu um starfslok þeirra Einars Arn-
ar og Kára Þórs sem var í fjölmiðlum
á sínum tíma. Einar Örn hætti snögg-
lega sem framkvæmdastjóri fyrir-
tækjaráðgjafar Íslandsbanka í lok
apríl vegna „trúnaðarbrests“ og Kári
fylgdi í kjölfarið. Báðir höfðu þeir séð
um sölu Skeljungs til þeirra Svan-
hildar, Guðmundar og Birgis.
Nokkrum vikum síðar var Einar
Örn svo orðinn forstjóri Skeljungs,
fyrirtækisins sem hann hafði komið
að því að selja út úr bankanum. Ís-
landsbanki taldi að hagsmunir bank-
ans og Einars Arnar færu ekki lengur
saman en hann hafði þá um skeið
ráðgert að hætta í honum og finna
sér aðra vinnu. Aðgerð Íslandsbanka
var fyrst og fremst fyrirbyggjandi en
grunur lék á að Einar Örn væri þá
þegar byrjaður að ræða við eigendur
Skeljungs um mögulegt samstarf og
átti bankinn ennþá 49 prósent í olíu-
fyrirtækinu.
Bankinn skoðaði störf Einars Arn-
ar fyrir bankann í kjölfarið en fann
ekkert sem leiddi til frekari aðgerða
af hálfu bankans. Málinu lauk því
með starfslokum Einars Arnar en til
marks um óánægju Íslandsbanka
vildu tveir stjórnarmenn bankans
í stjórn Skeljungs ekki samþykkja
hann sem forstjóra.
Afneitaði Skeljungi
Frétt Morgunblaðsins vekur mikla
athygli fyrir ýmsar sakir. Í fyrsta lagi
þá hefur ekki áður komið fram op-
inberlega að Einar Örn, Kári og
Halla Sigrún hafi átt svo stóra hluti í
Skeljungi og P/F Magni. Sögusagnir
gengu sannarlega um þetta en þær
fengust ekki staðfestar. Ein af ástæð-
unum fyrir því var sú að Halla Sigrún
neitaði að eiga eða hafa átt hluta-
bréf í Skeljungi og P/F Magni í des-
ember í fyrra. Halla Sigrún hafði
skömmu áður hætt snögglega hjá
fjárfestingarbankanum Straumi og
skipaði Bjarni Benediktsson fjár-
málaráðherra hana sem stjórnarfor-
mann Fjármálaeftirlitsins. Sú skip-
un vakti nokkra athygli og nokkurt
umtal þar sem Halla Sigrún er rétt-
nefndur fjárfestir vegna umsvifa
sinna í viðskiptalífinu.
Í frétt DV í fyrra um tengsl Höllu
Sigrúnar og Skeljungs sagði orðrétt:
„Síðustu mánuði hafa gengið sög-
ur um ástæður starfsloka Höllu Sig-
rúnar hjá Straumi en hún hafði starf-
að þar í tvö ár. Þar áður hafði hún
unnið hjá Íslandsbanka frá 2002 til
2011. Sögursagnirnar sem um ræðir
tengjast meðal annars olíufélaginu
Skeljungi og einu af dótturfélögum
þess, P/F Magni í Færeyjum, sem var
í eigu olíufélagsins að ríflega 33 pró-
senta leyti. Stærsti hluthafi Magns
var eignarhaldsfélagið Hedda ehf.
sem keypti hlutinn af fjárfestingarfé-
lagi Pálma Haraldssonar, Fons ehf.,
en það félag átti tæplega 67 prósent
í Skeljungi. Sögusagnirnar ganga út
á að Halla Sigrún hafi átt hlut í um-
ræddu olíufélagi í Færeyjum.“
Halla Sigrún sagði þá aðspurð að
hún ætti ekkert í Skeljungi eða félög-
um sem tengjast olíufélaginu. „Ég vil
ekki tjá mig um fjárfestingar mínar í
fjölmiðlum […] Ég hef ekki átt nein
viðskipti við Skeljung umfram það
að kaupa bensín.“
Í samtali við DV í fyrra neitaði
Birna Káradóttir, yfirlögfræðingur
fjárfestingarbankans Straums, því að
starfslok Höllu Sigrúnar í bankanum
hafi borið að með óeðlilegum hætti.
Fjögurra milljarða hagnaður
Í ársreikningi Heddu eignarhalds-
félags ehf., sem Halla Sigrún, Ein-
ar Örn, Kári og Svanhildur og Guð-
mundur áttu saman, kemur fram að
hagnaður félagsins hafi numið rúm-
lega 3,8 milljörðum króna í fyrra. Fé-
lagið átti sem fyrr segir hlutabréf í
Skeljungi og P/F Magni.
Í ársreikningnum er bókfærður
hagnaður af „sölu eignarhluta“ ríf-
lega 3,7 milljarðar króna og skiptist
hann á milli eigendanna fjögurra,
eignarhaldsfélaganna sem héldu
utan um hlutabréfin. Félagið skuld-
aði þá nánast ekkert – 10 milljónir
króna – og var eiginfjárstaðan jákvæð
um ríflega fjóra milljarða króna.
Eignarhaldsfélag Höllu Sigún-
ar, B10 ehf., og eignarhaldsfélag
Einars Arnar Ólafssonar, Einarsmel-
ur ehf., hafa ekki skilað ársreikningi
fyrir síðasta ár og því er ekki hægt
að sjá bókfærðan hagnað þeirra af
viðskiptunum. Ætla má hins vegar
að hann sé álíka mikill og hagnað-
ur eignarhaldsfélags Kára Þórs þar
sem þau áttu öll þrjú jafn stóra hluti í
Heddu eignarhaldsfélagi ehf.
Fyrrverandi starfsmenn fyrir-
tækjaráðgjafar Glitnis, sem seldi
meirihlutana í Skeljung út úr bank-
anum árið 2008, hafa því sjálf hagn-
ast ævintýralega á sölu Skeljungs til
íslenskra lífeyrissjóða rúmum fimm
árum síðar.
Erlendir aðilar vildu Skeljung
Öll sagan er hins vegar langt frá því
að vera sögð þar með. DV greindi
frá því í vor að erlendir aðilar hefðu
haft áhuga á Skeljungi þegar Glitnir
átti olíufélagið og hafði hug á því að
selja það.
Í frétt DV um þennan áhuga
sagði: „Samkvæmt heimildum DV
höfðu erlendir aðilar sem starfa í
olíubransanum áhuga á að kaupa
meirihluta í Skeljungi og greiða fyr-
ir hlutinn í reiðufé. Þessir aðilar
funduðu með þeim Einari Erni og
Höllu Sigrúnu og lýstu yfir áhuga á
Skeljungi árið 2008. Ekkert varð hins
vegar af þeim viðskiptum þar sem
n Starfsmenn Glitnis sem komu að sölu Skeljungs 2008 fá hver um 800 milljónir
Högnuðust á dularfullum viðskiptum
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
„Ég hef ekki átt
nein viðskipti við
Skeljung umfram það að
kaupa bensín.
Halla Sigrún Hjartardóttir
Fá meira en 800 milljónir
Þrír fyrrverandi starfsmenn
Glitnis, meðal annars Einar Örn
Ólafsson, hagnast um meira en
800 milljónir á sölunni á Skeljungi
og P/F Magn. Þremenningarnir
komu að sölu Skeljungs út úr
bankanum árið 2008.