Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2014, Qupperneq 13
Fréttir 13Helgarblað 31. október–3. nóvember 2014
meirihlutinn í Skeljungi var seldur
til eignarhaldsfélagsins BG Partners,
meðal annars með láni frá Glitni og
með yfirtöku á eignum í Danmörku.
Eigendur þess félags voru þau Guð-
mundur Örn Þórðarson, Svanhildur
Nanna Vigfúsdóttir og Birgir Bielt-
vedt.“
Heimildarmaður DV sagði um
þessar tilraunir erlendu aðilanna til
að kaupa Skeljung að starfsmenn
Glitnis hefðu tekið þeim heldur fá-
lega. Áhuginn á Skeljungi virðist
því sannarlega hafa verið meiri en
bara frá þeim Guðmundi, Svan-
hildi og Birgi. Árið 2010 keyptu þau
Svanhildur Nanna og Guðmundur
minnihluta Íslandsbanka – 49 pró-
sent – í olíufélaginu.
Nokkuð var sömuleiðis fjallað
um það á sínum tíma að hluti kaup-
verðsins fyrir Skeljung hefði ver-
ið greiddur með fasteignum í Dan-
mörku sem þóttu ekkert sérstaklega
álitlegar síðsumars 2008. Fasteigna-
markaðurinn í Danmörku var að
hruni kominn og efnahagskrepp-
an var handan við hornið með falli
Lehman Brothers í september 2008.
Heildarkaupverð þeirra Guðmund-
ar og Svanhildar Nönnu á hlutafé Ís-
landsbanka í Skeljungi nam um 2,5
milljörðum króna.
Frá því Morgunblaðið birti frétt
sína um hagnað þeirra Einars Arnar,
Kára og Höllu Sigrúnar í viðskiptun-
um með Skeljung hefur DV gert til-
raunir til að ná tali af þeim. Þetta hef-
ur hins vegar ekki gengið.
Hýsti stuðnings mannafélag Bjarna
Bjarni Benediktsson hefur ekki enn-
þá svarað þeirri spurningu af hverju
Halla Sigrún var skipuð stjórnarfor-
maður FME. Greint var frá skipun
hennar á vef fjármálaráðuneytisins
þann 20. desember í fyrra. Þá var
Samkeppniseftirlitið nýbúið – þann
4. desember – að heimila söluna á
Skeljungi til lífeyrissjóðanna í gegn-
um Stefni. Því var sannarlega búið að
ganga frá sölunni á Skeljungi þegar
Halla Sigrún var skipuð en það var
einungis nýbúið að því. DV hefur
lagt fram spurningar til Bjarna Bene-
diktssonar um málið en ekki fengið
svör.
Halla Sigrún og Einar Örn Ólafs-
son eru sannarlega viðskiptafélagar
sem áttu saman Heddu eignarhalds-
félag ehf. ásamt þeim Kára og Guð-
mundi og Svanhildi og koma einnig
bæði að eldisfyrirtækinu Fjarðalaxi
á Tálknafirði. Þá koma þau einnig
að fyrirtækinu Póstmiðstöðinni
sem meðal annars sér um dreifingu
Fréttablaðsins.
Tengsl Einars Arnar og Bjarna
Benediktssonar, sem skipaði Höllu í
starfið, eru meðal annars þau að sá
fyrrnefndi hýsti stuðningsmanna-
félag Bjarna fyrir þingkosningarnar
árið 2007 á heimili sínu í Vesturbæ
Reykjavíkur. Stuðningsmannafélag
Bjarna var með heimilisfesti á heim-
ili Einars Arnar. Þetta bendir auðvit-
að til þess að Einar Örn sé sannar-
lega stuðningsmaður Bjarna og að
þeir þekkist.
Fóru saman í
golfferð til Skotlands
Í skýrslu rannsóknarnefndar Alþing-
is var sömuleiðis greint frá því að
Bjarni hefði flogið í einkaþotu á veg-
um Glitnis til Skotlands og farið þar
í golf í boði bankans. Bjarni var þá
stjórnarformaður olíufélagsins N1
og móðurfélags þess, BNT ehf. Einar
Örn var með í þeirri ferð til Skotlands
en þá var hann starfsmaður Glitnis.
Í skýrslunni segir um þetta: „Bjarni
Benediktsson alþingismaður ferð-
aðist dagana 20.–22. september 2007
í einkaþotu með Glitnismönnum
til Skotlands. Flogið var frá Reykja-
víkurflugvelli og lent á Prestwickflug-
velli við Glasgow. Í viðburðadagatali
Glitnis kemur fram að dagana 20.–
22. september hafi verið „golfferð
fyrirtækjaþróunar“. Í ferðinni voru
þrír yfirmenn hjá Glitni: Einar Örn
Ólafsson, Guðmundur Hjaltason og
Helgi Eiríksson. Tveir fyrrverandi
forstjórar Olíufélagsins, Hermann
Guðmundsson, forstjóri N1, og Hjör-
leifur Jakobsson, forstjóri Kjalar, sem
er í eigu Ólafs Ólafssonar og á hlut í
N1, voru með í för. Bjarni Benedikts-
son var á þessum tíma stjórnarfor-
maður N1.“
Mörgum spurningum ósvarað
Frétt Morgunblaðsins um hagn-
að þremenninganna úr fyrirtækja-
ráðgjöf Glitnis vegna sölunnar á
Skeljungi býr til enn frekari spurn-
ingar um sölu Glitnis á fyrirtækinu
árið 2008 og aðild umræddra starfs-
manna að henni. Salan á Skeljungi
til lífeyrissjóðanna vakti talsverða
athygli í fyrra og valdi Markaðurinn,
viðskiptakálfur Fréttablaðsins, hana
sem viðskipti ársins. Þetta er alls ekki
skrítið í ljósi þess að munurinn á
kaupverði og söluverði Skeljungs og
P/F Magns er á bilinu 5 til 6 milljarð-
ar króna sem hluthafarnir halda þá
eftir. Miðað við frétt Morgunblaðsins
fer um helmingur af þessum hagn-
aði til þremenninganna, Einars Arn-
ar Ólafsonar, Höllu Sigrúnar Hjart-
ardóttur og Kára Guðjónssonar.
Til að mynda liggur ekki fyrir
hvort samningur um aðkomu Einars
Arnar, Höllu Sigrúnar og Kára að
Skeljungi hafi legið fyrir strax árið
2008 þegar Glitnir seldi þeim Guð-
mundi og Svanhildi Nönnu olíufé-
lagið. Það er í meira lagi einkennilegt
að sama fólk og seldi meirihlutann í
Skeljungi út úr bankanum hafi svo
fjórum árum síðar eignast 25 pró-
senta hlut í þessu sama fyrirtæki
og 66 prósenta hlut í dótturfélagi
þess. Af hverju seldu þau Svanhild-
ur og Guðmundur þeim umrædda
hluti þegar fyrir lá að Skeljungur
var á leiðinni að verða seldur með
miklum hagnaði, hugsanlega til líf-
eyrissjóða sem þyrsti í góðar fjár-
festingar? Voru viðskiptaleg sjón-
armið að baki þeirri sölu? Var það
vilviljun að það var sama fólkið sem
keypti hlutabréfin og unnið hafði að
sölu Skeljungs út úr Glitni?
Skeljungsviðskiptin voru,
kannski eðlilega, valin viðskiptin
ársins í fyrra vegna þess hagnaðar
sem þau náðu að skapa fyrir hlut-
hafa félagsins. Viðskiptin með Skelj-
ung, allt frá árinu 2008 þegar Glitn-
ir seldi meirihlutann í félaginu og
fram til ársins 2013, eru sömuleið-
is afar dularfull, einkennileg og líta
alls ekki vel út fyrir þá sem komu að
þeim. n
Ótrúleg saga
Saga viðskiptanna með Skeljung frá 2008 til 2014
5. nóvember 2008
Morgunblaðið greinir frá kaup-
um BG Partners á meirihluta
í Skeljungi af Glitni. Einar Örn
Ólafsson fer fyrir fyrirtækja-
ráðgjöfinni sem sá um söluna.
26. maí 2009
Greint frá ráðningu
Einars Arnar Ólafs-
sonar í forstjórastarf
Skeljungs.
27. maí 2009
DV greinir frá því að
Einar Örn Ólafsson
hafi hætt í Íslands-
banka vegna trúnað-
arbrests.
9. júní 2009
DV greinir frá því að
tveir stjórnarmenn
Íslandsbanka í
Skeljungi hafi verið
mótfallnir ráðningu
Einars Arnar
Ólafssonar í starf
forstjóra Skeljungs.
Greint frá því að
óháður aðili skoði
söluna á Skeljungi
innan Íslandsbanka.
4. júní 2010
Íslandsbanki selur
49 prósenta hlut
í Skeljungi til BG
Partners sem á
olíufélagið að fullu
í kjölfarið.
Högnuðust á dularfullum viðskiptum
nHalla Sigrún stígur til hliðar sem stjórnarformaður FME nÓ Sex ára saga
15. júlí 2011
DV greinir frá
þeirri niður-
stöðu úr skoðun
Íslandsbanka að
ekkert misjafnt
hafi fundist þegar
salan á Skeljungi
var athuguð.
2012
Einar Örn
Ólafsson, Kári
Guðjónsson
og Halla
Sigrún
Hjartardóttir
eignast
hlutabréf í
Skeljungi og
P/F Magn í
Færeyjum
í gegnum
Heddu ehf.
13. desember 2013
Greint frá kaupum á félagi í
rekstri Stefnis á öllu hlutafé
í Skeljungi og P/F Magn fyrir
um átta milljarða króna. Sölu-
hagnaður hluthafa hleypur á 5
til 6 milljörðum króna.
20. desember 2013
Bjarni Benediktsson skipar Höllu
Sigrúnu Hjartardóttur sem stjórn-
arformann Fjármálaeftirlitsins.
28. desember 2013
Halla Sigrún Hjartardóttir greinir
frá því í samtali við DV að hún
hafi ekki átt hlutabréf í Skeljungi
eða tengdum félögum.
28. október 2014
Morgunblaðið greinir frá því
að Einar Örn Ólafsson, Kári
Guðjónsson og Halla Sigrún
Hjartardóttir hafi hagnast
um ríflega 800 milljónir
króna á hlutabréfaviðskipt-
um í Skeljungi og P/F Magn.
Bankinn fann ekkert
Skoðaði söluna á Skeljungi
„Á árinu 2009 fór fram ítarleg skoðun innri
endurskoðunar og regluvörslu bankans á
viðskiptum með hluti í Skeljungi á árinu
2008. Við þá skoðun kom ekkert í ljós sem
gefur tilefni til að ætla að Einar Örn hafi
ekki haft hagsmuni bankans að leiðarljósi
í vinnu sinni fyrir bankann.“
Svar Íslandsbanka í júlí 2011 við fyrirspurn
DV um niðurstöðu skoðunar á sölu Skelj-
ungs innan Glitnis.
Seldu til þremenning-
anna Hjónin Guðmundur
Þórðarson og Svanhildur Nanna
Vigfúsdóttir seldu hluti í Heddu
eignarhaldsfélagi til þremenn-
inganna. Mynd Gunnar V. andréSSon