Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2014, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2014, Page 20
Helgarblað 31. október–3. nóvember 201420 Fréttir S jávarauðlindin og rafork- an eru í dag stærstu nátt- úruauðlindir Íslands. Útlit er fyrir að olía finnist í vinnan- legu magni á Drekasvæðinu annars vegar og á svæði sem kallast Gammur hins vegar. Lítið hefur ver- ið fjallað um hugsanlega olíuvinnslu á Gammi, enda engar fyrirætlanir um vinnslu þar og raunar enn talið ólík- legt að gas og olíu sé þar að finna í nægilegu magni til að vinnsla borgi sig. Þrátt fyrir að olía sé víða tengd við auð og uppgang er það ekki alltaf raunin að ávinningur vinnsl- unnar verði eftir í nærsamfélaginu. Í sögulegu samhengi hefur fylgifiskur náttúruauðlinda – sérstaklega jarð- efnaauðlinda – verið spilling, um- hverfisvá, ofbeldi og jafnvel afturhvarf í lífsgæðum samfélagsins. Fiskurinn og heppnin „Þróunarhagfræðin myndi telja fisk- inn frekar góða og sérstaka auðlind vegna þess að þú þarft, og sérstaklega þurftir, mikinn mannafla til þess að ná í hann,“ segir Kristinn Hermanns- son, menntamálahagfræðingur við Glasgow-háskóla í Skotlandi. „Mannaflinn sem þarf hef- ur kunnáttu vegna þess að það er ákveðin list að veiða. Þess vegna höfðu skipstjórar samningsstöðu og þeir þurftu að hafa góðar áhafnir og svona. Þess vegna fór ávinningurinn, af þessari auðlind, inn í samfélagið í gegnum laun og gegnum alla þessa veltu iðnaðarins. Það var, sérstaklega áður, ekkert hægt að sniðganga þetta vinnuafl vegna þess að það var alveg nauðsynlegt í ferlinu öllu. Það sem er aftur hættulegra við jarðefnaauð eins og olíu, demanta og slíkt er að þegar náman er komin í gang og samband þá þarf sáralítið frá samfélaginu til þess að halda því gangandi. Þetta er auðvitað sérstaklega áberandi í auð- lindaríkum löndum Afríku. Vegna þess hve auðvelt er að halda þessu gangandi, þegar náman er komin í gang á annað borð, þá er ekkert sjálf- gefið að arðurinn skili sér eitthvað út í samfélagið.“ Kristinn segir ekki víst að auð- lindahagfræðingar taki undir þetta en út frá sýn þróunarhagfræðinnar hafi Íslendingar hingað til verið nokkuð heppnir með sína auðlind, fiskinn. Rentusóknin og spillingarhvatar Auðlindaböl eru fylgifiskar náttúru- auðlinda kallaðir en rentusókn er einmitt einn fylgifiskur. Rentusókn er hvatinn til að sækja í auðlindarentuna með öllum tiltækum ráðum. Þor- valdur Gylfason hægfræðingur hef- ur skrifað töluvert um auðlindaböl, þar á meðal í ritgerðinni Náttúra, vald og vöxtur sem rituð var fyrir sjávarút- vegsstofnun árið 1998. Um rentu auðlinda segir Þorvald- ur: „Renta af auðlind er frábrugðin rekstrarhagnaði í venjulegum skiln- ingi (það er tekjum umfram kostnað) að því leyti, að flestar auðlindir nátt- úrunnar aðrar en vatn og loft eru tak- markaðar, svo að nauðsyn ber þá til að hafa hemil á nýtingu þeirra með því að skerða aðgang að þeim. Þeir, sem eig- andi auðlindarinnar – almannavald, fyrirtæki, einstaklingur – veitir aðgang að auðlindinni og afnotarétt fram yfir aðra, hreppa því ávinning umfram þann arð, sem þeir gætu átt von á við óskertan aðgang: þessi ávinningur er rentan af auðlindinni.“ Vegna þess að aðgengi að auðlindanýtingu er tak- mörkað þá ýtir hátt rentuhlutfall ekki undir innkomu fleiri aðila inn í iðnað- inn en búast má við í umhverfi þar sem aðgengi er ekki takmarkað. Renta í olíuiðnaði á landi getur þannig verið allt að 80 prósentum. Alla jafna myndi slíkt ýta undir meiri vinnslu og fleiri aðila en sökum þess að auðlindir eru ekki ótakmark- aðar gilda almennar reglur mark- aðskerfisins ekki með sama hætti. Vegna þess hve há rentan er myndast hvati til að beita bolabrögðum til að tryggja aðgengi fárra að henni í stað þess að dreifa henni til samfélagsins. Góðar og vondar auðlindir Kostnaðurinn við að sækja og nýta fiskinn virkar þannig sem eins konar mótvægisaðgerð gegn óheftri rentu- sókn. Kristinn segir að Íslendingar hafi þannig um tíma notið ávinnings þess að eiga „demókratíska auðlind“ en ekki olíu þar sem rentan er auð- sótt. „Auðlindahagfræðingar segja reyndar að rentan sé ofsalega góð. Þeir segja bara frábært, því það verð- ur til öll þessi renta þarna. Hana má nota til að gera alla skapaða og mögu- lega hluti. Reynslan sýnir samt að yfirleitt er það einhver sem tekur rentuna með yfirgangi og frekju. Það er líka svo ofsalega mikill hvati til þess „Við erum ekki Noregur“ n Saga íslensks regluverks slæm n Sköpuðum auðlindaböl með kvótakerfi Atli Þór Fanndal atlithor@dv.is Vorum heppin Kristinn Hermannsson, lektor við Háskólann í Glasgow, segir Íslendinga hafa verið heppna með sjávarauð- lindina sem hafi nánast innbyggða lýðræðislega hvata. Mynd Atli ÞóR FAnndAl „Sagan ætti samt að kenna okkur að vera ekki of bláeyg „Þróunarhagfræðin myndi telja fiskinn frekar góða og sérstaka auðlind.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.