Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2014, Page 22
Helgarblað 31. október–3. nóvember 201422 Fréttir Erlent
HARÐSKELJADEKK
Mundu eftir að finnaBESTAVERÐIÐáður en þú kaupir dekk!
Smiðjuvegi 34 · Rauð gata · www.bilko.is · Sími 557-9110
Eldgos, mótmæli
og launaröðin
Það gengur á með eldgosum og mótmælum víðar í heiminum en á Íslandi. Í Palestínu standa menn í röð við pósthús og bíða eftir launa-
greiðslum, á Havaí á fólk fótum sínum fjör að launa undan eldgosi og horfir á allt sitt hverfa í hraunbreiðuna. Í Mexíkó berjast kennarar
við lögregluna og krefjast þess að fá að vita um afdrif nemenda en læknar á Spáni undirbúa sig undir starf á ebólusmituðum svæðum.
Reykurinn
stígur upp
Það gýs víðar en á
Íslandi. Hér má sjá
rjúkandi hraunbreiðu
við eldfjallið Kilauea á
Havaí. Hraunið hefur
fundið sér farveg yfir
bóndabæ og íbúðahverfi
á Stóru-eyjunni. Hraunið
ógnar híbýlum þúsunda
manna og er nálægt
bæjarmörkum gamallar
plantekru. Hraunið færir
sig um 15 metra á dag.
Launaröðin Hér má sjá opinbera starfsmenn Hamas-samtakanna bíða fyrir utan pósthús á Gaza. Fólkið bíður allt eftir því
að fá launin sín. Alls 24 þúsund einstaklingar starfa fyrir Hamas og margir þeirra hafa ekki fengið greidd laun í heilt ár. Á miðvikudag var þó
hægt að greiða út laun, en peningarnir komu frá Katar, samstarfsríki Hamas. MyndiR ReuteRs
setja upp hanskana Starfsmaður Rauða Krossins á Spáni hagræðir
hönskum á hlífðarbúningi sínum. Á Spáni var á dögunum haldin viðbragðsæfing fyrir starfs-
menn sem gætu þurft að sinna sjúklingum sem smitaðir eru af ebólu. Rauði krossinn þjálfar
lækna, hjúkrunarfræðing og sjúkraliða til að sinna þessum verkefnum og til þess að fara
á vettvang í Vestur-Afríku þar sem neyðin er stærst. Fyrst fer fólkið þó allt á tveggja daga
námskeið þar sem það lærir réttu handbrögðin en fyrst og fremst hvernig hægt er að kom-
ast hjá smiti. Byggt hefur verið æfingasvæði sem líkist sjúkrahúsi í Kenema í Síerra Leóne.
Á tali?
Afganskur
lögreglumaður
talar í síma en
í fjarska má sjá
lögreglumenn
brenna ólögleg
eiturlyf. 20 tonn
af eiturlyfjum
voru handlögð af
lögreglunni sem
brenndi þau svo
öll á mánudag.
Kennara-
mótmæli
Miklar óeirðir hafa verið
í borginni Chilpancingo í
Guerrero í Mexíkó undan-
farna daga. Þar hefur
kennarasamband Guerrero
mótmælt hvarfi nemenda
úr Ayotzinapa-kennarahá-
skólanum. Kennararnir
kveiktu í bílum en í fjarskja
má sjá óeirðalögregluna
reyna að berja mótmælin til
baka. Lögreglan í Guerrero
segist hafa handtekið fjóra
gengjameðlimi sem sagðir
eru hafa rænt 43 nemendum
úr skólanum. Nemendurnir
eru taldir af.